Bændablaðið - 11.12.2001, Qupperneq 11
Þriðjudagur 11. desember 2001
BÆNDABLAÐIÐ
11
U’NAOARBANklNN
btiiíKi
notað og farið yfir ýmsa þætti
samstarfsins, auk þess sem hann
kynnti nýju útgáfuna af forritinu.
Næstu skref í áframhaldandi
þróun forritsins fyrir íslenskan
markað verða að við fáum nýju
útgáfuna í endanlegri rnynd til
skoðunar og prófunar upp úr
áramótum. Þá verður þróunar-
hópur kallaður saman til að skoða
og rýna í einstaka þætti forritsins,
einkum þá sem eru nýir. Menn
munu vega og meta hvað af þeirn
verður tekið upp og hvemig í
nýrri uppfærslu ÍSKÝRINNAR
sem ráðgert er að komi á markað
hér á landi 2003.
Endurskoðun sumstarfssumn-
ings BÍ og Landax as.
Samkvæmt ákvæðum í sam-
starfssamningi BÍ og Landax tek-
ur verðlagning forritsins mið af
verðlagningu þess í Noregi. All-
margir bændur hafa látið í Ijós að
þeim þyki forritið of dýrt (um 25
þúsund án virðisauka) og það
hamli útbreiðslu þess. Meðan á
heimsókn Torleifs stóð voru
verðlagningarákvæði samningsins
endurskoðuð og ákveðið að lækka
verð þess verulega. Hins vegar
verða engar teljandi breytingar á
árlegum þjónustugjöldum.
Frá og með 1. nóvember 2001
kostar nautgriparæktarforritið
„ÍSKÝR" kr.'"11.900 án vsk.
(Verð með vsk er kr. 14.815.) .
Með þeim breytingum og endur-
bótum sem gerðar hafa verið, svo
og umtalsverðri verðlækkun, von-
umst við til að kúabændur sjái sér
hag í að kaupa og nota ÍSKUNA.
Maríanna H. Helgadóttir
þjónustufulltrúi á ráðgjafarsviði
BÍ kom til fullra starfa aftur eftir
fæðingarorlof urn rniðjan nóvember.
Eitt af hennar aðalverkefnum er
að þjónusta notendur forritsins og
viljum við hveta þá sem áhuga
hafa á að kynna sér forritið eða
þurfa aðstoð af einhverju tagi að
snúa sér til hennar. Hægt er að ná
í þjónustufulltrúa alla virka daga
frá 09:00 - 12:00 og ffá 13:00 -
15:00 í síma 563-0300 eða með
tölvupósti á netfangið:
mhh@bondi.is
Ennfremur er að finna
upplýsingar um forritið og hægt
að panta það á heimasíðu Bænda-
samtakanna: www.bondi.is
Að sjálfsögðu fjölmenntu íbúar á frumsýningu myndarinar.
ÍSKÝR
lilý uppfœrsla Mins
Þegar Bændablaðið berst
lesendum verða flestir notendur
nautgriparæktarforritisins ÍSKÝR
búnir að fá nýja uppfærslu, en frá
því í vor hefur verið unnið að
endurbótum á fyrstu útgáfunni
sem sett var á markað í upphafi
árs 2000. Búið er að endurbæta
fjölmargt en það mikilvægasta
tengist auknurn möguleikum
notenda til að skrá heilsufar naut-
gripanna, sjúkdóma og kvilla,
lyQameðhöndlun og lyfjanotkun.
Aframhaldandi þróun
Hugbúnaðarfyrirtækið Landax
as í Noregi hannaði frumútgáfu
ískýrinnar. í byrjun næsta árs
setur fyrirtækið á markað nýja út-
gáfu í Noregi. Hún er verulega
breytt og endurbætt. Helstu
nýjungar lúta að viðmóti forritsins
gagnvart notendum en einnig er
búið að bæta við fjölmörgum
nýjum möguleikum til fram-
setningar á upplýsingum, með-
höndlunar og úrvinnslu á gögnum
um gripina og reksturinn. Einnig
byggir hin nýja útgáfa á gagna-
flutningum í gegnum intemetið.
Nýja forritið er skrifað í sama for-
ritunarmáli og það sem gert hefur
verið hér á landi við ískúna. Það
verk hefur Páll Eggertsson forrit-
ari og kúabóndi á Kirkjulæk
unnið. Samningur BÍ við Landax
as tryggir að þær geti á auðveldan
hátt tengst nýju útgáfunni.
Forsvarsmaður og aðaleigandi
Landax, Torleif Bratlie, kom til
landsins í lok október Hann
heimsótti kúabændur til að kynna
sér íslenskar aðstæður. Meðan á
heimsókninni stóð var tækifærið
Sérstakur
hópur notenda og
héraðsráöunauta -
„Þróunarhópur
ISKÝR"- sem
stofnaður var í
ársbyrjun, lagði
drög að forgangs-
röðun þeirra
endurbóta og
lagfæringa sem
gerðar eru nú.
Hópurinn hefur
einnig prófað for-
ritið eftir breyting-
arnar áður en það
er sent út til al-
mennra notenda. I
þróunarhópi
ISKÝR eru
Þórunn
Andrésdóttir,
kúabóndi í Bryðju-
holti, Guðmundur
Jóhannesson,
héraðsráöunautur
á Selfossi, Guðný
Helga Björns-
dóttir, kúabóndi á
Bessastöðum,
Þórarinn Leifsson,
kúabóndi í Keldu-
dal, Oddur Gunn-
arsson, kúabóndi á
Dagverðareyri og
María Svanþrúður
Jónsdóttir,
héraðsráðunautur
á Húsavík. Auk
þeirra eru í
hópnum þau Jón
V. Jónmundsson,
Jón Baldur Lor-
ange og Maríanna
H. Helgadóttir frá
B.í.
Kvikmynd um mannlíf í Svína-
vatnshreppi í Austur-Húna-
vatnssýslu var frumsýnd fyrir
skömmu. Við það tækifæri var
meirihluti íbúa hreppsins
samankominn í samkomuhúsi
sveitarinnar til að fylgjast með
og var fólk mjög ánægt með
hvernig til hefur tekist. Myndin
var tekin árin 1999 og 2000 og
annaðist Viggó Jónsson á
Sauðárkróki myndatökur, sem
og klippingu og hljóðsetningu.
Hún tekur um 140 mínútur í
sýningu og fengu öll heimili í
sveitinni eintak af myndinni til
eignar. Myndin er tekin að
frumkvæði sveitarstjórnar Svína-
vatnshrepps og bar hreppurinn
allan kostnað af henni. Hún er
ekki síst hugsuð sem heimiidar-
mynd fyrir seinni tíma um
hvernig mannlíf og búskapar-
hættir voru í lok tuttugustu
aldar.
Jóhann Guðmundsson oddviti
sagði að myndað hefði verið á
öllum heimilum í sveitinni og
væru myndir af öllum ábúendum.
Þá eru afar fallegar myndir teknar
úr lofti af sveitinni og öllum
bæjum í hreppnum. Búskap eru
gerð góð skil og eru myndir frá
ýmsum atburðum, s.s. smala-
mennsku á hrossum og sauðfé
og sundurdrætti i Auðkúlurétt,
rúningi, vali líflamba og óm-
skoðun, heyskap, jarðrækt og frá
veiðiskap í Svínavatni. Farið var í
sláturhúsið og mjólkursamlagið á
Blönduósi og fylgst með úrvinnslu
landbúnaðarafurða.
Ennfremur eru myndir frá
skólastarfi í Húnavallaskóla, skím,
jarðarför og erfídrykkju, sem og
frá ýmsu tómstundastarfi hrepps-
búa. Þá var myndað á Hvera-
völlum og Blönduvirkjun og starf-
semi hennar gerð góð skil, en
virkjunin er stærsti atvinnurekand-
inn í hreppnum. Er hér aðeins
stiklað á stóm því flestum þáttum
mannlífs í sveitinni em gerð nokk-
ur skil í myndinni.
FttOurnafn misritaOist
Þegar Bændablaðið sagði ffá
þeirri skemmtilegu hugmynd
Eiríks K. Eiríkssonar á Gafli í
Villingaholti að nota plasthólka
innan úr rúlluplasti í girðingar-
staura misritaðist foðumafn hans.
Hann var sagður Ketilsson en er
Eiríksson. Eiríkur er beðinn af-
sökunar á þessari misritun.
Plastristar
Margar tegundir og styrkleikar
fyrir nautgripi, kindur og svín
VELAVAL-Varmahliö nr
Simi 453 8888 Fax 453 8828
Veffang www.velaval.is
Netfang velaval@velaval.is
LÁTTU ÞÉR LÍÐA VEL
www,
við sjdum um fjármdlin
Um textagerð með myndinni
sá Unnar Ingvarsson en Jóhann
oddviti flytur textann. Þess má svo
geta að í myndinni er heimafengin
tónlist, bæði úr tónlistarskóla
Austur-Húnavatnssýslu og einnig
söngur Karlakórs Bólstaðahlíðar-
hrepps sem svo sannarlega spillir
ekki fyrir verkinu í heild. Að mati
blaðamanns hefur verið vandað til
verka við gerð myndarinnar og er
þama um stórmerkilegt framtak
hjá þeim Svínhreppingum að
Viggó Jónsson tv. afhenti Jóhanni
Guömundssyni oddvita fyrsta
eintakiö af myndinni.
Heimilislínan er víðtæk fjármálaþjónusta fyrir einstaklinga og
heimili sem hægt er að sníða að þörfum hvers og eins. Þjónustan er
ætluð skilvísum viðskiptavinum sem vilja nýta sér fjölbreytt
þjónustuúrval bankans á hagstæðum kjörum. í þjónustunni felst m.a.
Hærri innlánsvextir
Allt að 500.000 kr.
yfirdráttarheimild á Cullreikningi
án ábyrgðarmanna
Lægri vextir á yfirdráttarheimild
og eingöngu er greitt fyrir nýtta
heimild
Visa Farkort eða MasterCard
Heimskort
Aðgangur að Heimilisbankanum á
Internetinu
Allt að 500.000 kr. skuldabréfalán
til allt að fimm ára án
ábyrgðarmanna
A Heimilislínan
' '• -fjármibn I öruggum höndum
%
Allt að 1.000.000 kr. reikningslán á
hagstæðum kjörum
Creiðsluþjónusta með útgjalda-
dreifingu, mánaðargjald
Útgjaldadreifing i
Heimitisbankanum á Internetinu
Netklúbbur Heimilislínu
Húsnæðislán til allt að 25 ára
Ódýrari bilalán Lýsingar
Ekkert árgjald
»
*
Myndin um Svínavainshrepp irumsýnd