Bændablaðið - 11.12.2001, Page 16
16
BÆNDABLAÐIÐ
Þriðjudagur 11. desember 2001
Aðbúnaður^hrossa
Behir mð ef duga skal
Um síðustu áramót rann út
frestur til að uppfylla skilyrði um
skjól fyrir útigangshross sam-
kvæmt reglugerð um aðbúnað og
heilbrigðiseftirlit hrossa. Forða-
gæslumenn og héraðsdýralæknar
hafa eftirlit með því að reglu-
gerðinni sé framfylgt og hefur
verkaskipting verið ákveðin þann-
ig að forðagæslumenn sjá um
grunneftirlitið en héraðsdýralæknar
fylgja eftir kröfum um úrbætur.
Forðagæslumenn könnuðu
sérstaklega aðbúnað hrossa á úti-
gangi við vorskoðun 2001. Mest
áhersla var lögð á að fá yfirlit yfir
stöðu þessara mála og finna hvar
brýnust þörf væri á úrbótum.
Nokkur vandi er að meta gæði
hrossaskjóla hvort sem þau eru frá
náttúrunnar hendi eöa mannvirki
og sama má segja um aðgang að
vatni. Skýrar reglur eru ekki
tiltækar og aðstæður margbreyti-
legar. Hlutverk forðagæslumanna
er því erfitt en vonandi mun byggj-
ast upp reynsla og þekking sem
auðveldar þetta mat. Ákveðið var
að byrja með mjög einfalda flokk-
un: gott, viðunandi og óviðunandi.
Ekki töldu allir forðagæslu-
menn sig í stakk.búna til að sinna
eftirlitinu síðastliðinn vetur af mis-
munandi ástæðum. Upplýsingar og
eyðublöð vegna eftirlitsins bárust
heldur seint og átti það einnig sinn
þátt í að skil urðu ekki betri en raun
ber vitni.
Niðurstöður
veturinn 2000 - 2001
Upplýsingar bárust um 948
staði eða hrossahólf þar sem var að
finna 16.566 hross. Þetta er aðeins
um þriðjungur útigangshrossa í
landinu. Á flestum stöðum vóru
skjólin talin vera góð eða
viðunandi, en óviðunandi á 48
stöðum. Víðast var eingöngu um
náttúrulegt skjól að ræða, en á 20%
af stöðunum voru manngerð skjól
og á 7% þeirra var hvoru tveggja.
Aðgangur að vatni var yfirleitt
góður eða viðunandi en óviðunandi
á 24 stöðum.
Þar sem skjól og/eða aðgangur
að vatni var óviðunandi hafa
héraðsdýralæknar nú farið skrif-
lega fram á úrbætur fyrir komandi
vetur. Alls fengu 56 aðilar slík
bréf.
Þar sem skil á aðbúnaðar-
skýrslum voru ekki betri en raun
ber vitni verður að ætla að úrbóta
sé þörf á mörgum stöðum til
viðbótar en áhersla verður lögð á
að ná til allra næsta vetur.
Ráðleggingar
Fyllsta ástæða er einnig fyrir þá
sem hafa haldið hross sín við
viðunandi aðstæður að huga að
úrbótum fyrir komandi vetur.
Hrossin þurfa að geta leitað skjóls
við öllum vindáttum og víða er
þörf á að koma upp manngerðu
hrossaskjóli þó svo náttúrulegt
skjól sé þokkalegt. Fjölbreyttir
möguleikar til að leita skjóls eru
alltaf til bóta fyrir hrossin. Einnig
þarf að taka tillit til hrossafjöldans
þegar skjól er metið.
Gott manngert skjól skal vera
a.rn.k. 2,5 m hátt og með 3 veggj-
um hið minnsta. Það skal staðsett á
þurrum stað og stærð þess skal vera
í samræmi við hrossaíjöldann.
Skjól þessi geta verið úr timbri eða
öðru efhi og best er að þau brjóti
vindinn eins og þétt grindverk. Þá
geta skjólin verið úr jarðvegi eða
rúllum en þar sem þau loka alveg
fyrir vind þurfa þau að vera hærri..
Hvers konar hús geta myndað skjól
fyrir hross en hrossin þurfa að
komast í kringum þau til að nýta
sér skjól þeirra gegn veðri úr öllum
áttum. Lélegar byggingar geta
verið hættulegar vegna fokhættu og
hross hræðast þær í roki fremur en
leita þar skjóls.
Til að náttúrulegt skjól teljist
gott þurfa að vera hólar, hæðir,
klettar eða lautir í landslaginu með
hæðarmun sem að lágmarki svarar
til þess sem kveðið er á fyrir mann-
gerð skjól. Skjólbelti og annar
trjágróður geta einnig veitt gott
skjól. Gagnlegt getur verið fyrir
hrossaeigendur að fara urn landið í
vondum veðrum til að komast að
því hvort þar sé nægilegt skjól að
finna.
Þó aðeins sé kveðið á um skjól
fyrir útigangshross að vetri má
öllum sem eiga hross og fylgst hafa
með atferli þeirra vera ljóst að
þörfín er ekki minni bæði að hausti
og vori.
Aðgangur hrossa að vatni
verður að vera tryggur í ffosta-
köflum á vetrum sem og öðrum
veðrum til að teljast viðunandi.
Ekki er viðunandi að hross þurfi að
leita í skurði eða aðra hættulega
staði til að ná sér í vatn.
Ekkert er þó eins mikilvægt
fyrir velferð hrossa á útigangi og
að þau séu í góðum holdum og hafi.
nóg að bíta og brenna. Flokka þarf
hrossin eftir aldri, holdafari og
fóðurþörf og tryggja þannig að
hver einstaklingur fái það atlæti
sem honum ber.
Eftirlit meó aðbúnaði
veturinn 2001-2002.
Ákveðið hefur verið að
ffamkvæma eftirlitið með
svipuðum hætti og síðastliðinn vet-
ur. Aðeins verður þó farið fram á
að forðagæslumenn fylli út.
aðbúnaðarskýrslu ef skjól eða
aðgangur að vatni telst óviðunandi.
1 athugasemdum skulu þeir nú
einnig geta um holdafar hrossanna.
Affit af skýrslunni skal sent
viðkomandi héraðsdýralækni innan
viku frá skoðun og ákveður hann
ffekari aðgerðir.
Sigríður Björnsdöttir,
dýralœknir hrossasjúkdóma.
Hestaheilsa
Eiðfaxi hefur gefið út bókina
Hestaheilsa eftir Helga Sigurðsson
dýralækni. Er þetta 2. útgáfa
bókarinnar, en hin fyrri kom út
árið 1989. Bókin fjallar, eins og
nafnið gefur til kynna, um hrossa-
sjúkdóma og er 285 bls. í stóru
broti og prýdd hundruðum ljós-
mynda. Höfundurinn segir í for-
mála að tilgangur bókarinnar sé að
vera handbók fyrir hestamenn
þegar þeir þurfa hennar nauð-
synlega við. Hann segir að miklar
breytingar hafi orðið í öllu um-
hverfi hestamennskunnar hér á
landi á þeim rúma áratug sem liðin
er frá því fyrri bókin kom út. Þetta
á jafnt við um sjúkdóma sem
önnur atriði er snerta hesta-
mennskuna. Bókin skiptist í 33
kafla sem snerta flest þau
vandamál sem hestamenn hér á
landi standa ffammi fyrir.
Til sölu Kverneland tvískera-
plógur 12" í góðu lagi. Verð
ca.70.Ó00.- +vsk. Til sölu 2 stk
Alfa-Laval Duovac með
rafmagnssogskiptum kr.20.000
+vsk /stk. Einnig Alfa-Laval sog-
dæía árg.'95 notað I tvö ár
kr.50.000.- + vák. Uppl. í símum
437-2065, 853-7695, 861-3966.
GLEÐILEG JÓL
Þökkum viðskiptin á
líðandi ári
DEKKJAHÖLLIN
AKUREYRI S. 462 3002 *
FELLABÆ S. 471 1115
Sóireinsun gróðurhúsa
Nú er sá tími kominn að margir
garðyrkjubændur eru að undirbúa
gróðurhúsin fyrir nýjar plöntur.
Það er engin spuming að rækileg
þrif og sótthreinsun áður en
plöntumar koma í húsin geta
sparað mikil útgjöld á ræktunar-
tímanum og skilað aukinni fram-
leiðni.
Til að sjúkdómar og meindýr
verði vandamál þarf þrennt til:
1. Sjúkdómurinn eða mein-
dýrið að vera til staðar
2. Skilyrði þurfa að vera
hagstæð fyrir sjúkdóminn eða
meindýrin.
3. Plöntumar þurfa að vera
móttækilegar.
Hér á eftir er stiklað á stóm
yflr hreinsun og sótthreinsun
gróðurhúsa en á þann hátt drögum
við úr líkunum á að sjúkdómar og
meindýr komi í ræktunina.
1. Haldið hitastigi nægilega
háu í lok ræktunar til að hugsanleg
meindýr og sjúkdómar fari ekki í
dvala.
2. Hafi meindýr eða sjúkdómar
verið til staðar, úðið eða svælið
með viðeigandi lyQum eða
sótthreinsiefnum í auknum styrk
áður en hent er út.
3. Ef erfíðir sveppasjúkdómar
hafa verið í ræktuninni er ráðlagt
að svæla eða úða með formalíni
eða klóríndíoxíð.
4. Að því loknu er öllu grænu,
plöntum og illgresi, fargað tryggi-
lega.
5. Dropapinnar og slöngur þarf
að sótthreinsa svo og áhöld og tæki
sem nálægt ræktuninni koma.
6. Húsið er nú úðað með sterkri
grænsápulausn, hún látin þoma á
og að því loknu er það þrifið með
háþrýstidælu.
7. Jarðvegur sótthreinsaður
eftir því sem aðstæður leyfa.
8. Nú er ráðlegt að svæla eða
úða á ný með Formalini, Deosan
Flora, K.lóríndíoxíði eða Virkon S
ef sjúkdómar hafa verið vandamál.
Sótthreinsun.
Þegar svæla á grænmetishús að
loknu ræktunartímabili er best að
plöntumar séu enn i húsunum.
Tveimur til þremur dögum fyrir
svælinguna er hitinn hækkaður í
húsinu (gjaman í um 30oC) til að
hugsanleg egg meindýra klekist
fiekar út. Æskilegt er að rakastigið
sé ekki undir 70% og hitastig um
20oC. í 100 m3 þarf 4 lítra af
formalíni og 1 kg af kalíum-
permanganati.
Til að verkið gangi sem
hraðast fyrir sig, þarf að koma öllu
sem haganlegast fyrir. Ákveðnum
fjölda af tunnum eða stórum
kerjum er dreift um húsið og
fomialíninu hellt í. Mikilvægt er
að kerin séu nægilega stór til að
lausnin frussist ekki út úr þegar
kalíumpermanganatið fer að virka.
Kerin verða að vera a.m.k. 10
sinnum stærri en formalínmagnið.
Við hliðina á kerinu er lagður
pappírs- eða strigapoki, með réttu
magni af kalíumpermanganati.
Best er a.m.k. 2 persónur byrji
samtímis, innst í húsinu, að setja
kalíumpermanganatpokana ofan í
kerin. 1-2 mínútum síðar byijar
formalínið að frussast og "sjóða" og
eiturgufúr myndast. Því er mikil-
vægt að verkið gangi sem fljótast
fyrir sig. Að því loknu er húsinu
lokað og haldið vandlega læstu ffam
á næsta dag þegar loflað er vel út.
Hafa ber í huga að formalín er
hættulegt efni og er m.a. talið
krabbameinsvaldandi. Mjög mikil-
vægt er því að sýna ýtrustu aðgát
við notkun.
Einnig má nota kaldþokutæki til
að svæla með formalíni. Notað er
10 1 formalín í 1000 m2 hús.
Heilgríma með síu B3 og galli eru
nauðsynleg ef fara á inn í húsið
fljótlega eftir svælingu eða úðun.
1. Kaldþokun með Virkon S.
Úðað með 1:200 (0.5%) lausn af
Virkon S a.m.k 1 lítri af lausn í
100m3 ,
2. Úðun með Deosan Flora.
Ekki er ráðlegt að kaldþoka með
Deosan Flora þar sem lampar eða
annar rafbúnaður er heldur skal úða
með 3.0% lausn (300 ml í 10 lítra).
Lágmarks snertitími er 15 mínútur
en ástæðulaust er að þvo efhið af.
3. Úðun með Klóríndíoxíð.
Úðun eða kaldþoka með 1:200 (100
ppm). Efnið er mjög lítið tærandi og
á ekki að þurfa að skola innan úr
húsinu. Efiiið verkar mjög vel á
stuttum tíma.
Hreinsun og
sótthreinsun dropakerfa.
Hreinsun á dropaslöngum er
háð því hvað á að hreinsa burt.
Þannig er saltpéturssýra notuð ef
um útfellingar er að ræða, en
bleikiklór, Klóríndíoxíð, Deosan
flora, Korsolín og/eða joðsambönd
ef urn sótthreinsun er að ræða, AIIs
ekki blanda lausnum af sýru og
bleikiklór saman. Notuð er 2ppm
lausn saltpétursýru í vökvun að
staðaldri. Ef leggja á kerfíð í bleyti
er notuð sterkari lausn eða allt að
2% saltpéturssýra eða 5%
fosfórsýra. Endatappar teknir úr
áður og skolað í gegn með hreinu
vatni. Elektróður fyrir pH og
leiðni þola illa sótthreinsiefni og
alls ekki sýruna og þarf því að
fjarlægja þær áður.
Ef bleikiklór er notaður þarf
um 3 lítra í 100 lítra af vatni.
Auðveldast og ódýrast er að setja
lausnina í tunnu og rúlla dropa-
slöngunni ofan ’í hana. Ekki má
framkvæma svona hreinsun í
gegnum kerflð á rneðan plöntumar
eru til uppskeru, það gæti kostað
þær lífíð. Skola slöngumar síðan
vel með hreinu vatni.
Vökva má með 100 ppm
Klóríndíoxíð í lok ræktunar.
Efnin fást hjá eftirtöldum
aðilum: Frjó , Gróðurvömr, Phar-
maco og Tandur.
Magnús A. Agústsson,
ylrœktarráðunautur BÍ