Bændablaðið - 11.12.2001, Qupperneq 19
Þriðjudagur 11. desember 2001
BÆNDABLAÐIÐ
19
Rílhöfundurinn sem fær oft
góðar hugmyndir að spennu
og glæpasðgum f fjtsioo!
Þeir sem fylgjast með bóka-
útgáfu og spennu- og glæpa-
sögum kannast eflaust margir
við nafnið Birgitta Halldórs-
dóttir. Birgitta hefur undanfarin
19 ár sent frá sér nýja skáldsögu
á hverju ári og nú á hún tvær
bækur á jólamarkaðnum. Hún
hefur tvímælalaust skapað sér
sess meðal afkastamestu rit-
höfunda landsins. Færri vita að
Birgitta er húsfreyja í sveit en
hún býr ásamt eiginmanni
sínum. Sigurði Inga Guðmunds-
syni, og börnunum, Halldóri og
Guðbjörgu, á Syðri-Löngumýri í
Austur-Húnavatnssýslu. Tíðinda-
manni blaðsins lék forvitni á að
vita hvernig gengi að samræma
ritstörf og húsmóðurstarf á
sveitaheimili og heimsótti Birgittu
á dögunum.
„Eg tel að það gangi alveg
bærilega. Eins og flestir vita er
rólegri tími í sveitinni yfir vetrar-
mánuðina og þann tíma nota ég til
að skrifa. Yfirleitt skila ég handriti
að bókunum mínum til útgefanda á
tímabilinu febrúar til mars og
fljótlega eftir það er ég komin með
drög að næstu bók sem ég sest svo
aftur yfir að haustinu og vinn til
loka. En það er ofsalega misjafnt
hvað ég eyði miklum tíma í hverja
bók. Eg á ffekar auðvelt með að
semja og þarf ekki að skrifa á
neinum ákveðnum tíma dagsins og
því nýtist tíminn vel. En ég skrifa
miklu minna á sumrin. Þá vil ég
sinna útivinnunni og vera með í
sauðburðinum og heyskapnum,
það er þá til einskis að búa í sveit
ef maður getur það ekki."
í ár kemur frá þér viðtalsbókin
Ljósið að handan, auk skáldsögu
sem heitir Játning. Hvemig kom
það til?
„Þegar ég, ung og alveg
reynslulaus, fór með handritið að
fyrstu bókinni minni, Ingu, til
Bjöms Eiríkssonar eiganda Skjald-
borgar tók hann mér mjög vel og
hefúr síðan gefíð út allar bækumar
mínar. Hann hefur reynst mér
ákaflega vel, svo þegar hann bað
mig um að skrifa samtalsbók við
Valgarð Einarsson miðil gat ég
hreinlega ekki sagt nei. Þetta var
að sjálfsögðu heilmikil viðbót en
mjög skemmtilegt að kynnast
Valgarði og fá að takast á við þetta
verkefni. En ég hef reyndar kornið
að viðtalsbók áður, hún var við
Guðrúnu Ólafsdóttur reikimeistara
og kom út árið 1995. En um
skáldsögumar mínar má segja að
þær séu ástar-, spennu-og
glæpasögur sem gerast hér á landi,
þó með smávegis undantekningum."
Er búið stórt?
„Við emm með rúmlega 100
þúsund lítra framleiðslu í mjólk og
um 150 fjár og dálítið af hrossum.
Það sem að mér snýr í búskapnum
er fjósið og á þeim tíma sem ég er
að skrifa er ágætt að hugsa í
fjósinu. Kýmar em svo rólegar
og virka óskaplega vel á
mig og ég fæ oft góðar
hugmyndir meðan ég er
að sinna þeim. Þegar ég
var að byrja að skrifa var
þetta bara hobbý og þá fannst
mér ég vera að taka tíma ffá
annarri vinnu. En svo breyttist
þetta, enda geri ég meira en að
skrifa bækur, hef tekið viðtöl m.a.
fyrir tímaritið Heima er best þann-
ig að nú leyfi ég mér að skrifa þeg-
ar mig langar enda er þetta orðinn
hluti af minni vinnu."
Em engin vandkvæði fyrir
rithöfund að búa út í sveit?.
„Eftir að Intemetið kom til
sögunnar em öll samskipti svo
miklu miklu auðveldari en áður og
vandkvæðin alveg hverfandi lítil.
Mér fmnst bara gott að búa í
sveitinni og vera með krakkana
héma. Þetta er ffekar lítið
samfélag en Svínavatnshreppurinn
er ákaflega góð sveit og góður
andi ríkjandi . Mér líður bara
ákaflega vel hér," sagði Birgitta
Halldórsdóttir að lokum. /ÖÞ.
Það er alltaf eitthvað nýtt
og spennandi á Agromek!
Hvernig væri að fá sér stutt vetrarfrí og skella sér á
landbúnaðarsýninguna Agromek 2002 í Danmörku? Ásamt því
að skoða sýninguna, verða danskir kúabændur sóttir heim og
nokkur dönsk fyrirtæki. Farið verður sunnudaginn
20. janúar og komið heim föstudaginn 25. janúar.
Fararstjóri: Snorri Sigurösson, framkvæmdastjóri LK
Síðasti frestur til skráningar er 20. desember
Nánari upplýsingar:
Ferðaskrifstofa Vesturlands s. 437 2323,
Netfang FV: travest@simnet.is
Netfang LK: www.naut.is
Óskum viðskiptamönnum okkar og
landsmönnum öllum gleðilegra jóla ogfarsœls
komandi árs
LAIUDSTÚLPI
Gleðileg jól. Óskum
bœndum og búaliði
hagsœldar á komandi ári
Dúnhreinsunin,
Flatahrauni 29b
www.buvelar.is
Gældu við þig,
Sparaðu fé
og verndaðu
umhverfið
Valtra er vöruruerki Partek
PARTEK
Vaitra
Power Partner
Valtra er mest selda dráttarvél á noröurlöndum
6750 Nýjung sem
tekið er eftir!
EcoPower
Hinn nýji Valtra 6750 er
• 4 strokka SisuDiesel vél
með forþjöppu og millikæli
• Tölvustýrð gírskipting
með vendigír 36-36
• Autotraction
• Sjálvirk tengsli
• Stiglausir DPS milligírar
• Vagnbremsuloki
• Agroline mælaborð
105 HÖ
hlaðinn búnaöi:
• Plægingartölva
• 7 tonna lyftigeta á afturbeisli
• Fjöðrun á afturbeisli
• 3 tvívirk vökvaúttök
• Hliðarpúst
• Loftfjaðrandi ökumannssæti
• Mótorhitari
• 6 vinnuljós
• Aukaaðalljós í þakskyggni
Ávinningur þinn af Valtra Ecopower er margvíslegur:
• Lægri snúningshraði • Minni eldsneytiseyðsla
• Minni hljóðmengun • Umhverfisvænni vél
• Lengra milli olíuskipta • Hámarks snúningsvægi
• Minna slit á vél 530Nm við 1150 sn/mín.
Þegar gæðin skipta máli
Austurvogi 69 • 800 Selfossi • Sími 482 4102 • Fax 482 4108