Bændablaðið - 11.12.2001, Qupperneq 21
Þriðjudagur 11. déSember 2001
BÆNDABLAÐIÐ
21
pökkunaraðstöðu og tæknibúnaðar.
Stærðarmörk (3,43% vextir):
2.100 m2 ásamt tilheyrandi aðstöðu
að mati sjóðsins.
Vextir: 3,43% að stærðarmörkum
og síðan 7,25%.
3.9. Garðávaxtageymslur.
Lánað til:. Byggingar
garðávaxtageymslna,
pökkunaraðstöðu og kælibúnaðar.
Vextir: 3,43% eða,7;25% eftir
umfangi búnaðargjaldsskyldrar
framleiðslu.
3.10. Vélageymrslur
Lánað til: Byggingar vélageymslna.
Hámarksstærð: .150 m2, þaraf mest
50 m2 einángraðir.
Vextir: 3,43% eða-7,25% eftir
umfangi búnaðárgjaldsskyldrar
framleiðSlu.
3.11. Byggingar vegna kornræktar
Lánað til: Byggingarkornhlaða og
þurrkunarbúnaðar fyrir korn.
Hámarksstærð: Ákvörðun sjóðsins
hverju sinni.
Vextir: 3,43% eða 7,25% eftir
umfangi búnaðargjaldsskyldrar
framleiðslu.
3.12. Loðdýrahús.
Lánað til: Byggingar loðdýraskála,
búra og tilheyrandi aðstöðu -að mati
sjóðsins.
Lánshlutfall: Allt að 65% af
matsverði bygginga, allt að 50% af
matsverði búra! Eingöngu er lánað
til kaupa á nýjum búrum.
Stærðarmörk (3,43% vextir):
1.200 minkalæður e'ða 330
refalæður.’
Vextir: 3,43% að stærðarmörkum
og síðan'7,25%.
3.13. Æðarrækt.
Lánað til: Byggingar
dúnhreinslinarhúsa og tilheyrandi
aðstöðu að mati sjóðsins og kaupa á
dúnhrein§unarvélum.
Vextir: 3,43% eða 7,25% eftir
umfangi búnaðargjaldsskyldrar
framleiðslu.
3.14. Lán til fjárrétta og
leitarmannahúsa.
Lánað til: Byggingar fjárrétta,
leitarmannahúsa og tilheyrandi
aðstöðu að mati sjóðsins.
Lánstími: Nýbyggingar allt að 20 ár,
stækkun og endurbætur allt að 15 ár.
Veð: Veð í viðkomandi framkvæmd
eða ábyrgð sveitarsjóðs að ósk
Lánasjóðsins.
Vextir: 7,25%.
3.15. Lán til fiskiræktar
í ám og vötnum.
Lánað til: Byggingar veiðihúsa og
annarra mannvirkja í eigu
félagssamtaka bænda.
Lánstfmi: Nýbyggingar allt að 20 ár,
stækkun og endurbætur allt að 15 ár.
Vextir: 7,25%. '
4. Til vatns- og
varmaveitna og
virkjana
4.1. Vatns-og
hitaveituframkvæmdir.
Lánað til: Framkvæmda frá
stofnæð/lind/holu að húsi, þ.m.t.
hvers konar lagnir, dælur, dæluhús
og nauðsynlegur búnaður í þeim.
Ekki er lánað til borunar á
vinnsluholum, né búnaðar í þeim, og
ekki er lánað vegna kostnaðar sem
kann að hljótast af inntaki eða
breytinga sem kunna að vera gerðar
innanhúss.
Lánshlutfall: Allt-að 50% af
matsverði framkvæmda, þó að
hámarki kr. 1.200.000.
Lánstími: Allt að 20 ár.
Vextir: 7,25%.
4.2. Rafstöðvar í sveitum.
Lánað til: Byggingar
heimarafstöðva og
markaðsrafstöðva, þ.m.t. gerð
vatnsmiðlunar, stöðvarhúss og
búnaðar. Skilyrði fyrir láni er að
framkvæmd hafi farið í viðurkennt
arðsemismat og sé viðurkennd af
stýrihópi iðnaðarráðuneytisins.
Lánshlutfall: Allt að 50% af
matsverði framkvæmda.
Lánstími: Allt að 40 ár.
Vextir: 7,25%.
5. Lán til
skuldbreytinga
5.1. Lán til endurfjármögnunar.
Lánað til: Endurfjármögnunar á
föstum lánum og lausaskuldum
bænda sem tengjast búrekstrinum
með það að markmiði að bæta
greiðslustöðu þeirra. Með umsókn
um endurljármögnunarlán skal fylgja
tæmandi listi yfir skuldir umsækjanda
og afrit af greiðsluseðlum eða
staðfesting lánadrottins. Með
endurfjármögnunarláni er í samvinnu
við lánastofnanir og aðra lánadrottna
reynt að tryggja að heildarlausn fáist
á fjármálum umsækjanda. Skilyrði er
að lántaki hafi viðunandi
rekstrarforsendur eftir
endurfjármögnun.
Lánshlutfall: Ákvörðun sjóðsins
hverju sinni. Hámarkslán kr.
6.000.000.
Lánstími: Allt að 15 ár.
Vextir: 7,4%.
5.2. Lán til skuldbreytingar
afborgana.
Lánað til: Skuldbreytingar
gjaldfallinna afborgana í fast lán.
Skilyrði fyrir lánveitingu er að
gjaldfallnir vextir, dráttarvextir og
annar kostnaður sé greiddur. Að
jafnaði skal ekki veita hverjum
lánþega slíkt lán oftar en einu sinni.
Lánshlutfall: Allt að 100%
afborgunar.
Lánstími: Allt að 15 ár.
Vextir: 7,8%.
6. Til annarrar
atvinnustarfsemi í
sveitum
6.1. Til annarrar atvinnustarfsemi í
sveitum.
Lánað til: Annarrar atvinnustarfsemi
í sveitum.
Lánshlutfall: Ákvörðun sjóðsins
hverju sinni.
Lánstími: Ailt að 20 ár.
Vextir: Ákvörðun sjóðsins hverju
sinni.
7. Til afurðastöðva
og þjónustu-
stofnana við land-
búnað
Lánasjóðurinn veitir lán til byggingar
afurðastöðva, þ.e. mjólkurstöðva,
sláturhúsa, kjötfrystihúsa,
kjötvinnslustöðva og birgðageymsla
fyrir jarðávexti og grænmeti. Einnig
veitir sjóðurinn lán til byggingar
ýmissa þjónustustofnana við
landbúnað, s.s. sæðingastöðva,
dýraspítala, kynbótastöðvar og
búnaðarsambanda.
7.1. Lán til afurðastöðva og
þjónustustofnana við landbúnað.
Lánað til: Byggingar húss,
frárennslis-, vatns- og raflagna,
loftræstingar, hitakerfis, fastra
innréttinga og færibanda, undirstaða
véla, véla og vélbúnaðar, frágangs á
umhverfi, teikninga og eftirlits.
Lánshlutfall: Allt að 50% af
matsverði lánshæfra framkvæmda.
Lánstími: Allt að 20 ár.
Vextir: Skv. ákvörðun sjóðsins
hverju sinni.
Lán til endur-
fjármögnunar
Lánasjóður landbúnaðarins veitir nú lán til
endurfjármögnunar á lausaskuldum bænda sem
tengjast búrekstrinum. Með lausaskuldum er átt
við viðskiptaskuldir og veðskuldir með
upphaflegan lánstíma skemmri en 5 ár.
Með endurfjármögnunarlánum er ætlunin að bæta
greiðslustöðu og tryggja betur rekstrarstöðu
bænda. Möguleikar til endurijármögnunar eru
metnir í samráði við aðra lánadrottna með það að
markmiði að fá sem besta heildarlausn á
skuldamálum umsækjanda.
Með umsókn um endurfjármögnunarlán verða að
fylgja eftirfarandi gögn:
1. Veðbókarvottorð, ekki eldra en mánaðar
gamalt.
2. Skattframtöl síðustu tveggja ára,
persónuframtal og landbúnaðarframtal.
Afrit skattframtals skal vera staðfest af
skattstofu, endurskoðanda, búnðarsambandi
eða öðruna þeim aðila sem sjóðurinn tekur
gildan. Óstaðfest framtal gildir ekki.
3. Tæmandi listi yfír skuldir og lánadrottna.
Á listanum skal koma fram hver er
lánadrottinn, upphæð skuldar og hvers eðlis
hún er (yfirdráttur, veðskuld, viðskiptaskuld
o.s.ffv.). Ef um er að ræða veðskuld verður
að geta um hvenær til hennar var stofnað og
til hve langs tíma. Ennfremur verður að
fylgja afrit síðasta greiðsluseðils eða
staðfesting lánadrottins á skuld.
4. Búrekstraráætlun til 5 ára.
Við mat á umsóknum er metið hvort
rekstrarforsendur eru fyrir hendi og skilyrði fyrir
lánveitingu er að svo sé.
Lán má einungis veita gegn fullnægjandi
tryggingum að mati sjóðsins. Heildarskuldir
umsækjanda við Lánasjóð landbúnaðarins og aðra
sem eru á veðrétti á undan honum, mega ekki
nema hærri upphæð en sem svarar til 65% af
verðmæti veðandlags.
Lánasjóður
landbúnaðarins
Lánasjóður landbúnaðarins, Austurvegi 10,
800 Selfoss, sími 480 6000, fax 480 6001,
netfang: llb@llb.is
Heimasíða: www.llb.is
Umsækjendur eru hvattir til að fylla
umsóknareyðublöð vandlega út og senda öll
umbeðin gögn með umsókn. Rétt útfyllt
umsóknareyðublað ásamt öllum tilheyrandi
gögnum tryggir fljótari og vandaðri afgreiðslu
umsóknar.
Nánari upplýsingar um lánareglur, útreikning
á greiðslubyrði, umsóknareyðublöð og ýmislegt
er tengist undirbúningi umsóknar er að finna á
heimasíðu Lánasjóðsins www.llb.is