Bændablaðið - 11.12.2001, Page 27
Þriðjudagur 11. desember 2001
BÆNDABLAÐIÐ
27
Engar breyt-
ingar á reglu-
gerð um jöfnun
námskostnafiar
Drífa Snædal varaþing-
maður spurði menntamála-
ráðherra á Alþingi hvort fyrir-
hugað væri að breyta reglugerð
um jöfnun námskostnaðar til að
betur yrði hægt að sinna því
hlutverki að jafna aðstöðumun
nemenda af landsbyggðinni,
hvaðan sem þeir koma eða
hvaða nám sem þeir ætla sér að
stunda? Hún tók dæmi
spumingu sinni til stuðnings:
Til að úthluta styrkjum er
landinu skipt í A-, B- og C-
svæði eftir því hve langt er í
næsta skóla. Þannig eru t.d.
nemendur frá Akureyri og
Reykjavík á svæði A en
nemendur frá Dalvík á svæði C.
Nemi frá Akureyri sem leggur
stund á hársnyrtiiðn þarf að fara
til Reykjavíkur, en er samt á
svæði A og fær þess vegna
lægsta námsstyrk. Annar nemi
frá Dalvík í sama námi fær
fullan námsstyrk af því að hann
er á svæði C. Báðir nemendur
þurfa að flytja á milli landshluta
til að geta stundað nám sitt.
Sömuleiðis spurði hún hvort
fyrirhugað væri að breyta
reglugerðinni þannig að náms-
styrkur komi til frádráttar við
ákvörðun námslána? Varðandi
þessa spumingu benti hún á að
um leið og námsmaður nýtir sér
rétt til námslána fellur réttur
hans til dreifbýlisstyrks niður.
Menntamálaráðherra svaraði
báðum þessum spumingum
neitandi og sagði m.a.:„í sjálfu
sér hefur ráðuneytið því ekki
áfonn um neinar frekari stór-
breytingar á þessari reglugerð
niiðað við þá stöðu sem er."
Varðandi síðari spuminguna
sagði ráðherra:„...Því er til að
svara að það hefur ekki verið til
athugunar að menn geti notið
hvors tveggja."
I síðasta biaði misritaðist í
myndatexta nafn umboðsaðila
DeLaval. Fyrirtækið heitir að
sjáifsögðu Vélaver.
Tækni við mjalfir og
Ráðstefna verður haldinn á
vegum tækniskorar NJF (Samtaka
norrænna búvísindamanna) 11.-
13. febrúar í Hamri, Noregi.
Nánari auglýsingu má finna á
slóðinni www.njf.dk og einnig má
hafa samband við Eirík Blöndal
(ebl@bondi.is, sími 4371215) til
að fá nánari upplýsingar. Ráð-
stefnan tekur á eftirfarandi mál-
efnum:
■Nútíma rekstrarfyrirkomulag
og byggingar fyrir mjólkurfram-
leiðslu.
■Mjaltakerfi, mjaltaþjónar og
þróun mjaltabása.
■Ahrif vélmjalta á kýr og
mjaltafólk.
■Aðferðir til mœlinga á mjólk,
mjólkurgœðum viðbrögðum kúa
við mjöltun.
Markhópur ráðstefhunnar em
búvisindamenn, kennarar, ráðu-
nautar, mjólkureftirlitsmenn,
rannsókna- og þróunarfólk frá
iðnaðinum, nemendur og kúa-
bændur. Síðasti skráningardagur
er 17. desember. Þátttökugjald er
2.250 DKK en 1.500 DKK fyrir
meðlimi NJF. Fyrirlestrar verða á
ensku.
Bœndasamtök
Islands óska
íslenskum bœndum
og fjölskyldum
þeirra gleðilegra
jóla og farsœldar á
komandi ári.
jólagjafa hesta menn
Pöntunarþjónusta, ókeypis sending til jóla
Sleipnir
kr. 111.900,
MRTölt 2000
kr. 44.900,-
HNAKKAR OG DYNUR I URVALI
Kallquists
loðhúfur kr. 5.490,'
úlpurkr. 10.490,-
buxurkr. 11.990,-
Hanskar
verð frá kr. 1.490,-
Loðhúfur kr. 4.900,-
LOÐHUFUR OG HANSKAR
Jofa
reiðhjálmur
kr. 4.290,-,
Codeba .
reiðhjálmur
kr. 4.990,-
Reiðhjálmur
kr. 4.490,-
REIÐHJALMAR
Leðurreiðskór
kr. 7.900,-
Gegningaskór
kr. 3.900,-
Lynghálsi 3 • 110 Reykjavík
Sími: 5401125 *Fax: 5401120
MRbúðin
íshestamiðstöðinni • Sörlaskeið 26
220 Hafnarfjörður • Sími: 555 7025
REIÐSKOR
Avallt í leiöinni ogferðarviröi