Bændablaðið - 11.12.2001, Page 28
28
BÆNDABLAÐIÐ
Þríðjudagur 11. desember 2001
Gleðileg jól,
óskum bœndum og búaliði
hagsœldar á komandi ári.
Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði
Gleðileg jól. Óskum bændum og búaliði hagsœldar á komandi ári. é
Landssamband kúabænda
Gleðileg jól, gott og farsœlt
komandi ár. Þökkum
viðskiptin á árinu.
Vallhólmur
VALLHÓLMUR
FOÐURSMIÐJA
Gleðileg jól, gott og farsœlt komandi ár!
Þökkum viðskiptin á árinu.
HÁÍRlKÍ ehf
Færanleg sögunarsamstæða
Símar 852 2629, 554 4341
Gleðileg jól, gott og
farsælt komandi ár.
Samtök selabænda
Oskum viðskiptamönnum
okkar og landsmönnum
öllum gleðilegra jóla og
farsœls komandi árs
J0u
Lánasjóður
landbúnaðarins
Gleðileg jól, gott og
farsœlt komandi ár
Landssamtök sauðfjárbænda
Gleðileg jól, y-Kr%
gott ogfarsœlt komandi ár! t &
Svínaræktarfélag íslands /V/ AN\^
Gleðileg jól,
gott ogfarsœlt komandi ár!
Rannsóknastofnun
landbúnaðarins
Oskum félagsmönnum og
viðskiptavinum okkar gleðilegra
jóla og farsœls komandi árs.
Landssamband kartöflubænda
Hestaútflutningur
Óskum viðskiptavinum okkar gleðilegra jóla
og farsældar á árinu 2002
Anna Þóra Jónsdóttir
Sími/Fax: 567-5756
GSM: 897-5759
Tölvupóstur:
annath@itn.is
Snemmsumars efndu Bænda-
samtökin til forvals um kostnað
við aðlögun á nýju bókhaldskerfi
fyrir bændur meðal fimm hug-
búnaðarfyrirtækja. í kjölfar þess
var gengið til formlegs samstarfs
við fyrirtækið dkRetis ehf um
aðlögun á dk Viðskiptahugbúnaði
að þörfum bænda (dk stendur fyrir
debet og kredit).
Um er að ræða heildstætt,
myndrænt og íslenskt bókhalds-
og upplýsingakerfi sem var smíðað
frá grunni af starfsmönnum fyrir-
tækisins. Kerfíð er byggt upp af
mörgum einingum sem setja má
saman eftir þörfum. Auðvelt er að
byrja með fáar einingar og bæta
síðan við. Notendaviðmót er
samræmt sem gerir það að verkum
að reynsla og kunnátta notenda
nýtist að fullu þegar ný eining er
tekin í notkun.
dkRetis ehf er ungt hug-
búnaðarfyrirtæki með á annan tug
starfsmanna. Fyrirtækið hefur
þróað bókhalds- og upplýsinga-
kerfi fyrir allar stærðir fýrirtækja.
Auk „dk Viðskiptahugbúnaðar"
hefur fyrirtækið einnig þróað og
sett á markað „dk Framtalsforrit"
sem bæði bændur og búnaðar-
sambönd hafa notað, ásamt
bókhaldsstofiim og endurskoðunar-
skrifstofum Flestir starfsmenn fyr-
irtækisins störfuðu áður að þróun á
bókhaldskerfínu TOK.
Aðlögunarvinna er nú í fullum
gangi og stefnt að því að bjóða
nýja bókhaldskerfið um miðjan
febrúar. Vinnuheiti kerfisins er
„dkBúbót“ til aðgreiningar frá
göntlu búbótinni, „Búbót-dos“.
Nýja bókhaldskerfið býður upp
á alla helstu þætti nútíma
bókhalds. Helstu nýmæli eru;
a) dkFramtalsforrít verður
samtengt dkBúbót sem mun auð-
velda bókhaldsstofum/búnaðar-
samböndum og bœndum framtal
og skil á landbúnaðarframtali.
b) Rafrœnn gagnaflutningur
verður auðveldur á milli notenda
og bókhaldsstofu / búnaðarsam-
bands á öllum stigum bókhalds-
vinnslunnar.
c) Byggður verður upp mið-
lœgur gagnagrunnur þannig að
rafrœn dreifing kerfisins til
notenda verður mjög einfold.
Einnig verður sjálfvirk uppfœrsla
og afritataka möguleg ef vill.
d) Bókhaldskerfið verður
boðið í mismunandi þrepum eftir
þörfum notendanna og þeir geta
siðan bœtt við einingum eftir
þörfum.
e) Notendur munu geta valið
um hvort þeir vinna bókhald sitt
miðlœgt (vista gögn oggeyma afrit
í miðlœgum gagnagrunni) eða
vinna eingöngu staðbundið á sinni
einkatölvu.
Lögð er áhersla á að viðmót
bókhaldskerfisins verði skýrt og
einfalt. Einnig er eftir fongum
reynt að aðlaga það ýmsum þáttum
í daglegri vinnu sem notendur hafa
vanist í Búbót-dos. Verið er að
skoða möguleika á flutningi bók-
haldsgagna úr eldri bókhalds-
kerfiim yfir í dkBúbót. Möguleikar
á rafrænum bókhaldsfærslum frá
helstu viðskiptaaðilum bænda, af-
urðastöðvum og viðskiptabönkum,
er einnig til skoðunar.
Bókhaldslykillinn sem er
notaður í Búbót-dos verður endur-
skoðaður eftir þörfum af þróunar-
hópnum og felldur inn i nýja
kerfið.
Markmið með innleiðingu
nýja bókhaidskerfisins er að efla
notkun bókhalds sem
bústjórntækis fyrir bændur,
efla og styrkja upplýsingagrunn
til áætlanagerðar í iandbúnaði,
auka og efla hagtölusöfnun og
hagrannsóknir.
Þróunarhópurinn á vinnufundi. F.v. Óli Þór Þórarinsson frá Bssl, Stefanía
Birna Jónsdóttir, Leiðbeiningamiðstöðinni í Skagafirði, Gunnar Guð-
mundsson, BÍ, Dagbjartur Pálsson, dkRetis, Magnús Pálsson, dkRetis,
Gylfi Þór Orrason, BÍ, Jón Hlynur Sigurðsson, BSE, María Líndal, BV og
Jón B. Lorange, Bl.
Hiigsað uppliðtt
Það er mikil hamingja fyrir
hvem einstakling að stunda það
starf sem gefur honum lífsfyllingu,
njóta þess dag hvem að ganga til
þeirra starfa sem eiga hug hans
allan og sjá árangur batna sökum
verka sinna .
Sauðfjárbúskapur veitir mörgum
þessa hamingju og lífsfyllingu,og
hana ber að þakka af heilum hug.
Sauðkindin þakkar okkur á
sinn hátt, hún fagnar okkur þegar
komið er í húsin, þakkar hjálpina
við burðinn, að vera hýst þegar
kólna fer, og ef við emm svo
heppin að geta reist hana við ef
Þýsk stúlka
óskar eftir atvinnu
á íslandi
Nítján ára gömul þýsk stúlka,
Kathrin Munnes Virchowstr.
13, 19055 Schwerin, sími: +
0162/1012532. Óskar eftir
starfi á íslenskum sveitabæ
(helst þar sem búið er með
hross) frá og með miðjum
september 2002. Netfang
hennar er: katamo@web.de
hún fer af-
velta. Ég hef
ekki fengið
betri þakkir
um dagana
en í vor
þegar ég gat
aðstoðað
kind á fætur,
því það er
margt hægt
að segja með augnaráði.
Já, sauðfjárbúskapur er óska-
atvinnugrein fyrir marga en það er
nú einu sinni svo að við lifum ekki
á loftinu, eins og sagt er, og það
sem vantar fyrst og fremst em
auknar tekjur. Ég vil sjá unnið
miklu markvissar að útflutningi á
dilkakjöti, auk þess að auka innan-
landssölu með fjölbreyttara úrvali
af skyndiréttum. Mér finnst alltof
mikil uppgjöf í þessum málum
,eins og mörgum öðrum hjá okkur
og ætla ég því að snúa mér að því
máli sem átti að vera aðalmál
þessa pistils. En það eru hin marg-
umtöluðu landsbyggðarmál.
Hvað er lattdsbyggð?
Landsbyggðin er jú allt í kring
um landið, en ég ætla að einbeita
mér að Þingeyjarsýslunum sem em
mín vagga.
í sannleika sagt finnst mér
okkur líða ósköp vel hér, margar
fegurstu náttúmperlur landsins eru
innan okkar sýslu ásamt fleiri
gæðum til lands og sjávar.
Mannauður er til staðar, en
vinnum við ekki of mikið hvert í
sínu homi?
Það vantar meiri samvinnu,
opnari tjáskipti og að láta heyra
kröftuglega frá okkur að það sé
fullur vilji til að standa vörð um
byggðina okkar, það hvetur
stjómvöld til dáða að standa með
okkur og það mun verða gert,
bemm við gæfu til þess að snúa
strax vöm í sókn.
Atvinnufyrirtækin þurfa að
vera í höndum okkar sjálfra, afli
sem berst á land verður að skapa
atvinnu heima.
Við eigum að sameinast um
það að standa vörð um okkur sjálf
og styrkja hvert annað. Heil-
brigðisstofnun Þingeyinga er ein
sú stofhun sem við eigum að efla.
Ég er nýkomin heim ffá mánaðar-
dvöl þar og þar var gott að vera.
Ég nefni þetta einstaka dæmi um
stofnun sem við eigum að láta
okkur varða, en auðvitað em stofn-
anir um allt héraöið sem okkur ber
skylda að hlúa að.
Já, kæm Þingeyingar og aðrir
landsbyggöamtenn, látum í okkur
heyra og lofum öómm að komast
að því hvað er gott að búa á lands-
byggðinni, þegar stjómvöld skynja
hinn ntikla baráttuvilja okkar
sjálfra.
Lokaorð.
Sérstakar þakkir til þeirra sem
björguðu Hraunsrétt, þar em mikil
menningarverómæti.
Ritað í byrjun aðventu.
Krístín á Syðrí-Brekkum