Bændablaðið - 25.02.2003, Page 9

Bændablaðið - 25.02.2003, Page 9
Þriðjudagur 25. febrúar 2003 Bændobloðíð 9 Fjðlgun máva, álfta og gæsa vandamál til sveita Það er löngu vitað að mávum hefur fjölgað stórlega hér á landi en þeir hafa lengst af haldið sig við sjávarsíðuna. Nú er svo komið að ágengi máva hefur stóraukist langt inni í landi. Þá hefur álftum og gæsum fjölgað mjög hin síðari ár að sögn bænda. Eftir því sem kornrækt hefur aukist í landinu hafa þessar fuglategundir orðið að miklu vandamáli fyrir ræktendur. Skagfirðingar sem stunda korn- rækt kvarta sáran yfir ágengi álfta og gæsa og kornræktendur á Suðurlandi kvarta yfir gæsinni. Fyrir Búnaðarþingi, sem hefst í byrjun mars, liggja tvö erindi um þetta vandamál. Búnaðarsamband Eyjafjarðar leggur fram erindi um að Bændasamtökin leiti leiða til að hafin verði markviss fækkun máva. Segja þeir í greinargerð með tillögunni að mávar leiti langt inn í land, jafnvel tugi kílómetra frá sjó, sem bendi til mikillar fjöigunar hans. Hitt erindið er ffá Búnaðar- sambandi Skagafjarðar um það vandamál sem álftin er orðin í komökrum bænda. Ottast salmonellusmit Svana Halldórsdóttir, formaður Búnaðarsambands Eyjafjarðar, segir að bændum þyki ásókn máva vera orðin yfirþyrmandi. „Þar að auki er svo umræðan um salmonelluna, en margir telja að mávar séu þar smitberar. Þeir sitja í bithaga og synda á vatns- bólum dýra og hafa hópar sést i berjamó og menn óttast smit frá þeim. Þar að auki er mikið af driti þeirra í heyinu því þeir sitja við vikum saman og loks má ekki gleyma því að þeir leggjast á egg og unga mófúgla. Þess vegna viljum við að hafin verði markviss fækkun þeirra," sagði Svana Hall- dórsdóttir. Alft oggœs iSkagafirði í viðtali við tíðindamann Bændablaðsins í vetur lýsti Þórar- inn Leifsson, bóndi í Keldudal í Skagafirði, hremmingum kom- ræktarbænda vegna offjölgunar á álff sem fer hundruðum saman um akra bænda á sumrin og eyði- leggur þá. Hann leggur til að ríkið aðstoði komræktendur við að búa til tálakra fyrir álftina en það hefur gefið góða raun erlendis. Hann sagði álftina orðna svo spaka að hún hreyfí sig ekki þótt komið sé upp fúglahræðum. Skaði kom- ræktenda nemur tugum milljóna árlega af völdum álfta. Sverrir Magnússon, formaður Búnaðarsambands Skagafjarðar, segir bændur vilji beina því til um- hverfisráðherra að gerðar verði raunhæfar ráðstafanir til að halda álft frá komökmm bænda. Hann bendir á að álftin sé alfriðuð og því ekki hægt að fækka henni með því að skjóta hana. Hann segir að á austursvæði Skagafjarðar sé gæsin mesta vandamálið, en hins vegar sé álftinni að fjölga þar. Fram í Héraði, á láglendinu, sé það álftin sem veldur skaða hjá komrækt- endum. Sverrir segir að tálakrar séu taldir til bóta og sömuieiðis sé það ráð til að minnka ágang bæði álftar og gæsar að sá komi alveg að girð- ingum akra eða ftam á skurðbakka því þessir fúglar verða að hafa lendingarbrautir. Þeir demba sér ekki niður í akrana. „Það er alveg greinileg offjölg- un á álftinni. Menn hér á austur- svæði Skagafjarðar muna ekki eftir henni að neinu ráði fyrr en hin síðari ár að álftir streyma hingað síðsumars bæði fúgl með unga sem og geldfúglinn," sagði Sverrir Magnússon. Álftir á kornakri i Skagafiröi. Þæar fara hundrum saman um akra bænda og eyðileggja þá._____________________________Bændablaðið/Alfreð Schiöth Miklar annir hjá aðfangaeítirlitinu: Reglugerðir og pappírsflöð frá Evrúpusambandinu í svari Guðna Ágústssonar land- búnaðarráðherra á Alþingi við spurningum Koibrúnar Halldórs- dóttur um erfðabreyttar lífverur í fóðri, sáðvöru og öðrum að- föngum landbúnaðar og ýmsar merkingar þeim viðkomandi kom fram að aðfangaeftirlitið hefði eftirlit með innflutningi á öllu fóðri og sáðvöru sem fiutt er til landsins. Olafúr Guðmundsson er for- stöðumaður aðfangaeftirlitsins. Hann sagði að það væru þrjár aðalreglugerðir, ásamt þeim breytingum sem gerðar hefðu verið við þær, sem unnið væri eftir og langmest vinnan væri varðandi fóðrið. Annað væri tímabundið, kæmi í tömum eins og áburðurinn og síðan sáðvaran í sumarbyrjun. Olafúr segir að erfðabreytt grös séu ekki á markaði og alls ekki yrki sem hægt sé að nota hér á landi. Hins vegar sé á markaðnum fóður með erfðabreyttum efhum. Erfðabreytt fóður leyft „Það er ekki bannað að flytja inn erfðabreytt fóður og nánast engar reglur til um það. Við vitum að sjálfsögðu af þessu fóðri og fylgjumst með en það ekki í okkar verkahring að skipta okkur sér- staklega af því. Nú stendur til að breyta reglum þannig að skylt verði að gefa upp hvaða efni eru í fóðrinu og merkja umbúðimar sérstaklega innihaldi fóðrið eriðabreyttar líf- vemr eða efni framleidd af þeim. Hjá Evrópusambandinu er verið að vinna að tveimur reglugerðum um þessi mál. Þegar þær taka gildi munum við líka taka þær upp í íslenska löggjöf. í kjölfarið fer Evrópusambandið að vinna að því að setja sambærilegar reglugerðir fyrir sáðvömna. Varðandi sáð- vöruna er nú í gildi reglugerð um- hverfisráðuneytisins um að bannað sé að flytja inn erfðabreyttar lífvemr nema þær sem hafa verið leyfðar á Evrópska efnahagssvæðinu," sagði Ólaíúr. Örar breytingar Hann segir að sífellt fjölgi reglugerðunum og það svo ört að menn rétt hafi við að laga eftirlitið að þeim reglum sem í gildi em hveiju sinni. „Við hjá aðfanga- eftirlitinu sjáum um stærstan hluta þeirra landbúnaðarmála sem heyra beint undir EES samninginn. Við getum ekki skotið okkur undan samningnum þótt okkur þyki stund- um að ekki sé rétt að taka upp til- skipanir frá ESB, sem off eru settar með milljóna þjóðir í huga og falla því misvel að okkar aðstæðum," segir Ólafúr Guðmundsson. UNDSTOtfl1W Fjós eru okkar fag Kúabændur - hópferð til Evrópu! Landstólpi stendur fyrir hópferð til Þýskalands og Hollands í byijun apríl. Flogið verður til Amsterdam þriðjud. I. apríl og heim frá Amsterdam sunnud. 6. apríl. Þriðjudagur: Flogið út. Heimsótt fyrirtæki í Hollandi. Miðvikudagur: Heimsótt tvö ný fjós (60-80 kýr) í Hollandi, og tvö fyrirtæki. Fimmtudagur: Ekið yfír til Þýskalands, og heimsótt tvö risabú (1.500-2.000 kýr). í leiðinni verður komið við hjá fyrirtækinu Urban, sem framleiðir kálfafóstrur og kjamfóðurbása. Föstudagur: Heimsótt tvö nýleg fjós (60-100 kýr) í Hollandi, tilraunabúið í Waiboerhoeve, og eitt fyrirtæki. Laugardagur: Fijáls dagur í Amsterdam. Sunnudagur: Flogið heim. Verð u.þ.b. 80 þús. kr. (m.v. tvíbýli). Innifalið er flug, rúta, og hótel með morgunverði alla dagana. Frestur til að tilkvnna bátttöku rennur út 7. mars. Landstólpi ehf. Lárus Pétursson Arnar Bjarni Eiríksson s: 4370023 / 8694275 s: 4865656 / 8989190 ÞJARKURINN Helstu tækni- upplýsingar: • 20 hö diselhreyfill. • liðstýrð 4x4. • beygjuradíus 53 sm • breidd 79-99 sm • lyftigeta 700 kg •þyngd 1,495 kg í samvinnu við Schaffer Lader verksmiðjuna í þýskalandi getum við nú boðiö nýja gerð af liðléttingnum sem er hönnuð fyrir íslenskar aöstæöur. Hann hefur fengiö nafniö ÞJARKUR. Tilboðsverð kr. 988.000+vsk. 1.230.060 m. vsk. Þegar gæöin skipta máli Austurvegi 69 • 100 SeHocsi • Sími 4S2 4102 • Fsx 4I241M www.buvelar.is Stálgrindarhús frá Weckman Steel Fjöldi stærða og gerða í boði Verðdæmi Stærðl 1.3x21.5 m. Verð kr. 1.890.000 með virðisaukaskatti Stærð 14,4 x 29.9 m. Verð kr. 2.950.000 með virðisaukaskatti. iMl Sími 588-1130 Fax 588-1131 ^ I B p- Heimasími 567-1880

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.