Bændablaðið - 25.03.2003, Síða 1
6. tölublað 9. árgangur Þriðjudagur 25. mars 2003 ISSN 1025-5621
Hreindýrakjöt trá Grænlandi
unnið oo pakkað á Húsavík
PalMsum-
ræOur um
landhúnaft
armál i Barg-
araesi I kvðld
Fclög sauðfjár- og kúabænda í
Borgarfirði efna til fundar/pall-
borðsumræðna með frambjóð-
endum stjórnmálaflokkanna um
landbúnaðarmál á Hótel Borg-
arnesi, þriðjudagskvöldið 25
mars kl: 20.30. Til fundarins eru
boðaðir fulltrúar Sjálfstæðis-
flokks, Framsóknarflokks, Sam-
fylkingar, Vinstrihreyfingarinn-
ar græns framboðs og Frjáls-
lynda-flokksins.
Fulltrúar flokkana munu byrja
á því að flytja stutt ávarp og að því
loknu taka við pallborðsumræður
þar sem fúlltrúar búgreinafé-
laganna munu leggja spumingar
fyrir frambjóðenduma. Fundar-
mönnum gefst svo kostur á því að
bera fram fyrirspumir úr sal.
Allir sem áhuga hafa á íslensk-
um landbúnaði em hvattir til að
mæta á fundinn.
Mjúlkuruppgjör
2001 staðfest
Nýlega var kveðinn upp
dómur í Héraðsdómi
Reykjavíkur í máli bónda gegn
íslenska ríkinu vegna
mjólkuruppgjörs 2001.
Dómurinn staðfestir ákvörðun
landbúnaðarráðherra, varðandi
gildandi samning um
mjólkurframleiðsluna, að
mjólkurframleiðendum sé ekki
heimilt að semja við aðra
framleiðendur um að framleiða
mjólk í sínu nafni. Þá segir í
dómnum að enda þótt sú nýting
sem stefnandi viðhafði hafi
tíðkast í einhverjum mæli frá
því lög nr. 112/1992 tóku gildi,
sé ekki hægt að líta svo á að
nýtingin hafi orðið venjubundin
með þeim hætti að hún víki til
hliðar ákvæðum laganna sem
lúta að heimilli nýtingu
greiðslumarks. Þó fallist sé á
það með stefnanda að
ákvörðunin hafi verið afturvirk
að því leyti að stefnandi hafði
ekki möguleika á því eftir lok
verðlagsársins að bregðast við
ákvörðun ráðherra, t.d. með því
að fjölga kúm, þá sé til þess að
líta að í reglugerðum hér að
lútandi er gert ráð fyrir því að
greiðslumark sem ekki er nýtt,
nýtist sem jafnast þeim
bændum sem framleiða meira
en greiðslumarki þeirra nemur
og hlýtur þessi réttur að sínu
leyti að hafa bundið hendur
ráðherra. Því er ekki fallist á að
ógilda beri ákvörðun hans.
Landbúnaðarráðherra f.h.
íslenska ríkisins var því
sýknaður af kröfum stefnanda.
Stefnendur hafa nú áfrýjað
dómnum til Hæstaréttar.
Stefán Hrafn Magnússon, hrein-
dýrabóndi á Grænlandi, og
bræðurnir Logi og Gunnar Óli
Hákonarsynir á Húsavík ætla að
stofn hlutafélag um innflutning á
hreindýrakjöti frá Grænlandi
sem síðan yrði fullunnið og
pakkað á Húsavík.
Logi Hákonarson sagði í sam-
tali við tíðindamann Bændablaðs-
ins að Stefán hefði komið sér upp
sláturhúsi á Grænlandi en hefði
þurft að senda kjötið til Noregs til
vinnslu og dreiflngar. Nú stendur
til að flytja kjöt af þrjú þúsund
hreindýrum, um 50 til 60 lestir, til
Húsavíkur og fúllvinna og pakka
því þar. Síðan yrði það flutt út
nema eitthvað smávegis sem
myndi fara á íslenskan markað. Þá
yrði sótt um tollkvóta og síðan yrði
að greiða toll af kjötinu þegar það
fer á íslenska markað.
En til þess að hægt sé að flytja
kjötið ffá Grænlandi til Húsavíkur
í vinnslu verður að fá tolla af því
fellda niður. Það hefur nú verið
heimilað með lögum sem sam-
þykkt voru á Alþingi nóttina áður
en fúndum þingsins var frestað.
Nú er málið í höndum land-
búnaðarráðherra sem mun setja
reglugerð þar sem kveðið verður
nánar á um skilyrði niðurfellingar,
lækkunar eða endurgreiðsiu tolla.
Um nóttina þegar lögin voru
samþykkt fór landbúnaðarráðherra
í ræðustól á Alþingi og spurði
flutningsmenn ffumvarpsins hvort
þeir ættu ekki einungis við með
þessu ffumvarpi það sem sneri að
hreindýrakjötinu frá Grænlandi.
Drífa Hjartardóttir, formaður land-
búnaðamefndar, sem flutti ffum-
varpið á Alþingi, staðfesti að svo
væri. „Eg vona að málið sé í
ömggri höfn og ég mun setja
reglugerð um innflutning á hrein-
dýrakjöti ffá Grænlandi sem fari í
vinnslu hér á landi en verði síðan
sent aftur til baka strax að vinnslu
lokinni," sagði Guðni Ágústsson.
Logi Hákonarson sagði að
þessi kjötvinnsla gæti hugsanlega
skapað atvinnu fyrir 6 til 8 manns
ffá hausti og ffam á vor. Logi segir
að þeir séu búnir að fá vilyrði fyrir
húsnæði gömlu mjólkurvinnslunn-
ar á Húsavík til starfseminnar.
Næsta skref er að hingað til lands
kemur sænskur maður sem sá um
að sláturhús Stefáns Hrafns á
Grænlandi fengi útflutningsleyfi.
Fyrirtæki Svíans hannar kjöt-
vinnslur og kemur þeim í gegnum
eftirlitsstofnanir þannig að þær fá
starfsleyfí. Hann mun teikna stöð-
ina og síðan taka iðnaðarmenn við.
Logi segist vonast til að kjöt-
vinnslan verði tilbúin næsta haust.
...frœgar fyrir forvitni!
!
Bændablaöið/Jón Eiríksson.