Bændablaðið - 25.03.2003, Síða 14
14
Bændabkiðið
Þriðjudagur 25. mars 2003
Sigrídur
Jóhannesdóttir
SJ sagði að aðgerðir til að bæta
hag starfandi bænda í landinu
hefðu látið á sér standa; afkoma
bænda væri afar slök - sérstaklega
á sauðíjárbúum - þrátt fyrir að
"beingreiðslur og sfyrkir vegna bú-
vöruframleiðslu á íslandi hafí á því
herrans ári 2001 numið 5,7 mill-
jörðum kr. samkvæmt útreikn-
ingum ffá OECD ... Þetta hlýtur að
kalla á vangaveltur um hvort ekki
megi koma þessum styrkjum með
beinni hætti til bænda, t.d. í formi
stuðnings við atvinnuvegi í sveit-
um, því að það má ljóst vera að
bændur á smærri og meðalstórum
búum lifa ekki af búrekstrinum
einum saman. Ef við teljum, sem
ég vona að allir séu sammála um,
að brýnt sé að halda landinu sem
mest í byggð tel ég að hvort
tveggja þurfí að koma til, breyta
þurfí fyrirkomulagi á styrkjum til
íandbúnaðar þannig að þeir verði
byggðatengdir og að sfyrkja þurfi
enn frekar uppbyggingu atvinnu-
lífs í sveitum." Sigríður spurði
landbúnaðarráðherra til hvaða ráða
hann ætlaði að grípa til að bæta
kjör bænda og einnig vildi hún vita
hvort von væri á aðgerðum til að
bæta starfskjör í landbúnaði fyrir
kosningar.
r
A dögunum fór fram
umrœða á Alþingi um
fátœkt bœnda. Um-
rœðan var að beiðni
Sigríðar Jóhannes-
dóttur. Við grípum
niður í rœður nokkurra
þeirra þingmanna sem
tóku til máls.
'Guðni
Agústsson
GA sagði að verðmætasköpun
í landbúanði væri 22-25 milljaðar.
Það ríkti krafitur í flestum bú-
greinum og mikil fjárfesting hefði
átt sér stað - ekki síst í mjólk-
urframleiðslu. Ráðherra sagði að
kjör sauðfjárbænda væru slök en
þau hefðu þó batnað ffá 1995 um
20%. Þá sagði GÁ að hafín vasri
samningagerð við kúabændur. "Ég
mun gera allt sem ég get til þess að
reyna að taka á með bændunum í
heild sinni. Það eru mikil sókn-
arfæri hjá sauðfjárbændum og í
kjötffamleiðslunni," sagði GÁ og
bætti við að þar væri vissulega um
vanda að etja og að hann teldi að
stjómvöld ættu að aðstoða bændur
án þess að ganga gegn samkeppni
og samkeppnislögum.
Þuríður
Backman
ÞB sagði nú væri offfamleiðsla
í "hvíta kjötinu" og afurðir seldar
undir framleiðsluverði. "Fram-
leiðendur nautakjöts hafa um lang-
an tíma orðið að selja sínar afúrðir
undir ffamleiðsluverði og blasir
gjaldþrot við þeim innan tíðar ef
ekkert verður að gert," sagði ÞB
"Offfamleiðsla er mikil og
sláturleyfishafar og bankar bera
ábyrgð á því ástandi sem nú ríkir á
kjötmarkaði."
Drífa
Hjartardóttir
DH sagði mikla hagræðingu
hafa átt sér stað í mjólkurffam-
leiðslu á síðustu ámm. "Kynbætur
hafa bætt stöðuna með vaxandi af-
urðum og hagkvæmni í fram-
leiðslunni og framtíð þessara
bænda er best tryggð með stöðug-
leika í rekstrarumhverfi sem best
verður treyst með ffamlengingu á
óbreyttum samningi." DH sagði
stöðu sauðfjárbænda sem ekki
hefðu annað starf slæma. "Það er
mikið hagsmunamál fyrir lands-
byggðina að finna leiðir til
lækkunar á flutningskostnaði. Það
þarf að halda áffam að stuðla að
fjölbreyttara atvinnulífi í sveitum
landsins með öflugan landbúnað
sem kjölfestu."
Jón
Bjarnason
JB sagði mikið af kjöti koma á
markað á undirverði. Þegar við
bættist fákeppni á smásölumarkaði
hlyti eitthvað undan að láta.
Venjulegir bændur, sagði JB, svo
ekki væri talað um sauðljárbændur
gætu "ekki keppt við langtíma-
niðurboð studd af öflugustu fjár-
málastofnunum landsins." JB
sagði heilbrigða og gagnsæja sam-
keppni sjálfsagða en ef það væri
hægt að rústa byggð og bú-
setumynstri í landinu á örfáum
misserum í skjóli samkeppnislaga
eða annarra slíkra laga þyrfti að
breyta þeim lögum. "Það verður að
grípa tafarlaust í taumana og rétta
hlut bænda í þeim frumskógi
villimennskunnar sem nú ríkir á
kjötmarkaði," sagði JB.
Einar Oddur
Kristjánsson
EOK sagði að sauðfjárræktin
ætti í gríðarlegum vandræðum og
vandi hennar væri vandi byggð-
anna. "Ég lít svo á að það sé lífs-
nauðsynlegt að sfyrkja íslenska
sauðíjárrækt. En við verðum að
gera það á réttum forsendum og
við eigum að standa rétt að því. ...
við ætlum að standa með íslensk-
um landbúnaði og hjálpa bændum
í gegnum þessi vandræði."
Sigríður
Jóhannesdóttir
SJ sagði æskilegt að minnka
milliliðakostnað í hefðbundnum
búgreinum "þannig að bóndinn fái
sanngjamara hlutfall í sinn vasa af
afúrðaverði."
' Guðni
Agústsson
GÁ sagði sauðfjárbúskap góða
aukabúgrein og rekinn á þeim for-
sendum til hliðar við margt annað.
Landbúnaðarráðherra sagði að nú
væri verið að skoða hvemig væri
hægt að hindra gjaldþrot sem af-
leiðingu offramleiðslunnar.
louisen
www.poulsen.is
Ljósabretti á
kerrur og vagna
L: 123 cm. B:14cm.
Rafmagnssnúra 6 m.
Stök Ijós ■ 4 í einu
Bremsu-, stefnu-,
stöðu- og númeraljós
Skeifunni 2-108 Reykjavík
Sími 530 5900 • poulsen@poulsen.is
Orkuver ehf
Heildarlausn fyrir þig!
Hugaðu að bæjarlæknum.
Bjóðum eftirfarandi búnað til
virkjana
Túrbínur 0.5- 20.000 kW
Rafalar / allar stærðir
Jarððstrengir
Rafbúnaður / stýringar
Þrýstipípur / margar gerðir
og stærðir fáanl.
Leitið upplýsinga!
S: 5 34 34 35
VlDSklPl AVINIIÍ
VI IIU(.II)
VÁRAN SEND frítt
HEIM TIL 1. MAÍ
EF PANTAÐ ER f
NETVERSLUN V&Þ
www.velar.is
VÉLARi
ÞJðNUST/W__________________________
ÞfJJlTI* fhur ►JÓNUSTV
JUunUui 1(11« RitkjavIk ■ SlMl: 5-800-100 . Fax: 5-800-110 . www.rtUi.il
ótmi U ■ 603 Aittmi • SImi: 361-4040 ■ Fac 461-4044
linder Súrkornsbásar
VELAVAL-Varmahlíö m
Sími 453 8888 Fax 453 8828
Veffang www.velaval.is
Netfang velaval@velaval.is