Bændablaðið - 25.03.2003, Page 17
Þridjudagur 25. mars 2003
Bændabloðið
17
Kostnaður vegna
þjóðlendumálaferla
Jón Bjarnason bar fram
spurningar til fjármálaráðherra
vegna kostnaðar einstaklinga og
sveitarfélaga í framhaldi af
lagasetningu Alþings um
þjóðlendur.
Jón spurði hvernig
ríkisvaldið hyggðist tryggja
fjármuni til þess að sveitarfélög
og einstaklingar verði
fjárhagslega skaðlaus vegna
þeirrar vinnu og málareksturs
sem þau hafa þurft og þurfa að
kosta til í framhaldi af
lagasetningu Alþingis um
þjóðlendur.
Þessa spurningu sagði
ráðherra vera villandi en sagði
síðan:
„Samkvæmt ákvæði 17. gr.
þjóðlendulaga, nr. 58/1998, eins
og þeim var breytt með 7. gr.
laga nr. 65/2000, skal
nauðsynlegur kostnaður vegna
hagsmunagæslu fyrir
óbyggðanefnd greiddur úr
ríkissjóði. Obyggðanefnd skal
sjálf úrskurða um kröfur aðila
af þessu tilefni.
Við mat á því hvort um
nauðsynlegan kostnað hafi verið
að ræða, er nefndinni
samkvæmt framangreindu
heimilt að líta til þess hvort
aðstoð lögmanna og annarra
sérfræðinga hafi verið samnýtt
af aðilum með svipaða og
samrýmanlega hagsmuni.
Nefndinni er jafnframt skylt að
líta til þess hvað telja megi
sanngjarnt og eðlilegt
endurgjald lyrir
hagsmunagæslu í viðkomandi
máli. Þannig er í lögunum
kveðið á um að óbyggðanefndin
leggi með tilteknum hætti mat á
málskostnað og hún samþykki
þess vegna ekki sjálfkrafa hvern
þann málskostnaðarreikning
sem farið kann að vera fram á.
Akvörðun um málskostnað
kemur fram í úrskurði
óbyggðanefndar. Sé
úrskurðaður lægri
málskostnaður en málsaðili
hefur verið krafinn um vegna
vinnu lögmanns eða annarra við
málið verður að sjálfsögðu til
einhver mismunur. Og á því
geta verið tilteknar skýringar
sem ástæðulaust er að rekja hér,
en það er þó fyrst og fremst
vegna þess að ekki er um
nauðsynlegan kostnað að ræða
samkvæmt mati nefndarinnar,
eða þá að hann er umfram það
sem nefndin telur sanngjarnt og
eðlilegt endurgjald fyrir
hagsmunagæslu í málinu. Ber
þá að hafa í huga að í nefndinni
eru reyndir dómarar og
lögfræðingar sem þekkja til þess
frá dómstólum hvernig mat er
lagt á slíkan kostað," sagði
fjármálaráðherra.
Jón spurði líka hve mikið
hafi verið greitt til einstaklinga
og sveitarfélaga vegna
málarekstrar sem þau hafa
orðið að standa í á grundvelli
þjóðlendulaganna.
Ráðherra sagði að
samkvæmt þeim upplýsingum
sem ráðuneytið hefur aflað frá
óbyggðanefnd var úrskurðaður
málskostnaður ásamt greiddum
útlögðum kostnaði í Árnessýslu
samtals rétt tæplega 10,5 millj.
kr. Til samanburðar má geta
þess að greiddur kostnaður
vegna hagsmunagæslu ríkisins á
árunum 1999--2002 vegna
kröfulýsingar í Árnessýslu,
Austur- og Vestur-
Skaftafellssýslum og
Rangárvallasýslu, auk
málflutnings í Árnessýslu og
hluta Vestur-Skaftafellssýslu,
var samtals rúmar 11,7 millj. kr
Þarftu að selja jörð?
Fasteignasalan Bústaður sérhæfir sig í sölu eigna á
landsbyggðinni. Skrifstofur á Sauðárkróki, Akureyri, Siglufirði,
Hvammstanga og Grundarfirði. Ekkert skoðunargjald.
Símar 453-6012 og 893-3003. Netfang: bustadur@krokur.is
tf
Félag fasteignasala
BUSTAÖUR
a2. tölublað er nýkomið út!
Að þessu sinni er blaðið
helgar nýloknu
búnaðarþingi.
jr . j I
I LANDSTOLPI 1
Fjós eru okkar fag
• Fagleg ráðgjöf í fjósbyggingum • - Nýbyggingar - Vidbyggingar - Breytingar • Hönnun og ráðgjöf við skipuiag fjósa. Höfuni velferð kúnna, vinnuspamað og vinnulétti að leiðarljósi. -Hafið samband - við mætum á staðinn!
• Weelink - fóðrunarkerfi Léttir og sparar vinnu. 1,5—2,0 kist. á viku að fóðra 60 kýr. • Ametrac - hollenskar innréttingar í fjós Innréttingar fyrir lcýr og kvígur. Gæði og gott verð. • Pasture Mat básadýnur Kanadískar gæðadýnur með vökvaþéttum dúk. • Steinbitar í gólf gripahúsa Mismunandi lengdir - mikið úrval. • Dairypowcr - flórsköfukerfi Vökvasköfukerfi. Bæði ofan á slétt gólf og steinbita. • PropyDos - súrdoðabrjóturinn Lausn á vandamáli, en ekki leið til að búa við það. • Urban - kjarnfóðurbásar og kálfafóstrur Gerið verðsamanburð.
Landstólpi ehf. Lárus Pétursson Arnar Bjarni Eiríksson s: 4370023 / 8694275 s: 4865656 / 8989190
s.
Komdu, skobaöu og prófaöu
ríkulega búinn Isuzu Trooper
SVONA BILL KOSTAR 3.689.
Búnaöur m.a.
32" dekk, vindskeib, vibarinnrétting,
dráttarbeisli, langbogar...
----.—
ISUZU TROOPER
- betur búinn - sama ver&
©
Bílheimar
Sævarhöf&a 2a
Sími 525 9000
www.bilheimar.is
4>