Bændablaðið - 25.03.2003, Qupperneq 27
Þriðjudagur 25. mars 2003
BændaUoðid
27
i
Allt að
30% afsláttur
á takmörkuðu magni véla
■ SAME Antares 100 dráttavél
100 hö. m/moksturst. og
frambúnaði notuð 1880 vst.
■ Avant fjósvélar (minivélar).
■ Álrampar fyrir minivélar.
■ Þrítengiskúffa 2,2 m3.
■ Diskasláttuvél 290 cm.
■ 4stj. It. heytætla 580 cm.
■ L.t.hjólrakstr.vél 2,8-3,5m.
■ Dragt. hjólrakstr.vél 6m.
■ Hnífatætarar 185-250 cm.
■ Pinnatætarar 300 cm.
■ Fjaðraplógherfi 260 cm.
■ Fjórskorin plógur 140-160 cm.
■ Haughræra m. vökvastillingu.
■ Mykjudæla 2800 Itr/min.
■ Brunadæla.
■ Grastætari 190 cm.
■ Snjóblásarar 2,3 - 2,6 mt.
■ Sand-saltdreifi.
■ Ýtubiað 250 cm. vökask.
■ Skófla m. yfirgreip 230 cm.
Upplýsingar í síma: 5876065.
£
0)
Æðardúnn óskast
Okkar vantar æðardún til útflutnings
Vinsamlegast hafið samband
Xco ehf.
Inn og útflutningur
Vatnagörðum 28
104 Reykjavík
Sími: 581-2388
Netfang: xco@xnet.is
GJAFAGRINDUR Á
FRÁBÆRU VERÐI
FYRIR VETURINN
Vélsmiöja Ingvars Guðna ehf.
Tanga, 801 Selfoss
Sími: 486-1810 Fax 486 1820
vig@vig.is www.vig.is
^IÉLSMIÐJ^
8apríl - útkomudagur nœsta
Bœndablaðs. Þarft þú að
auglýsa? Síminn er 563 0300
Frá Lánasjóði landbúnaðarins
Vaxtalækkun
Stjórn Lánasjóðs landbúnaðarins hefur ákveðið að f.o.m. 1. apríl
nk. lækki vextir hjá sjóðnum þannig að vextir lána sem bera nú
vexti lægri en 7,25% lækki um 0,10 %-stig (10 punkta) og vextir
lána sem bera nú 7.25% vexti eða hærri lækki um 0,30 %-stig (30
punkta).
Lækkun vaxta tekur til allra lána sem bera breytanlega vexti,
hvenær sem þau hafa verið tekin. Að öðru leyti eru lánskjör
óbreytt.
Vextir lána sem nú bera 4,00% vexti verða því f.o.m. 1. apríl nk.
3,90%, vextir lána sem eru 5,00% verða 4,90%, vextir lána sem nú
eru 7,25% verða 6,95% o.s.frv.
Selfossi 12. mars 2003,
Lánasjóður landbúnaðarins
já
Lánasjóður
landbúnaðarins
AOalftindup SS i nœstu viku
Aðalfundur Sláturfélags
Suðurlands verður haldinn
föstudaginn 4. apríl nk. Stjórn
félagsins mun þar leggja til að
greiddur verði 5% arður af
nafnverði hluta í B-deild
stofnsjóðs, alls 10 milljónir
króna og 3% vextir verði
reiknaðir á höfuðstól inneigna í
A-deild stofnsjóðs, alis 6,3
milljónir. Arður verður
greiddur út eigi síðar en 31. maí.
Rekstrarhagnaður
Sláturfélags Suðurlands á árinu
2002 var 19 milljónir króna, en
59 milljón króna tap var á árinu
áður. Bætt afkoma stafar fyrst
og fremst af lækkun
fjármagnsgjalda milli ára.
Rekstrarárið einkenndist af
mikilli samkeppni sem leiddi til
fækkunar aðila í slátrun og í
kjötiðnaði en afkoma beggja
greina var óviðunandi á árinu.
Fjárhagsstaða Sláturfélagsins er
þó áfram traust með eigið fé
tæpar 1.217 milljónir og 42%
eiginfjárhlutfall
FRAMLEIÐNISJOÐUR
LANDBÚNAÐARINS
AUGLÝSIR
Framleiðnisjóður landbúnaðarins styður með styrkjum og lánum
verkefni til nýsköpunar og framleiðniaukningar í landbúnaði og við aðra
eflingu atvinnu í dreifbýli, sbr. lög nr. 89/1966.
Framleiðnisjóður leggur áherslu á að fjármagn sjóðsins verði til viðbótar
framlögum frá ábyrgðaraðilum verkefnanna, bæði eigin fjár og því sem
þeir kunna að afla frá öðrum.
Framleiðnisjóður leggur á árinu 2003 áherslu á viðfangsefni sem
hafi þessi markmið:
a. að auka framleiðni búgreina með rannsókna- og þróunarverk-
efnum
b. að styrkja tekjumöguleika á einstökum búum með nýsköpun í
búrekstri
c. að efla kunnáttu og færni í búrekstri
d. að efla og styrkja markaði fyrir búvörur og þjónustu búanna
e. að styðja hagræðingu í úrvinnslu búsafurða og efla atvinnufyrir-
tæki í dreifbýli
Mikilvægt er að í umsókn sé
# markmið verkefnis sett fram með skýrum og mælanlegum hætti,
# sýnt fram á faglega og fjárhagslega möguleika umsækjanda til
þess að leysa verkefnið af hendi,
# glögg grein gerð fyrir kostnaði við verkefnið og hvernig það skuli
fjármagnað; einkum er mikilvægt að gera grein fyrir eigin framlagi
umsækjanda til verkefnisins.
# sýnt fram á fýsileika verkefnis og áætlaðan ábata af því á
fyrirsjáanlegum tíma.
Framleiðnisjóður landbúnaðarins áskilur sér rétt til þess
# að meta með sjálfstæðum hætti getu umsækjenda til þess að
standa undir fyrirætlunum sínum og taka tillit til hennar við úthlutun
styrkja (einkum hvað snertir faglega kunnáttu/færni á sviðinu og
fjárhagslega burði/möguleika/stöðu);
# að meta framvindu og árangur verkefnis, sem styrkur hefur verið
veittur til og haga greiðslu hans samkvæmt niðurstöðu slíks mats. í
því sambandi er styrkþegum skylt að veita sjóðnum þær
upplýsingar sem hann telur sér nauðsynlegar í allt að fimm ár frá
lokaúthlutun.
Umsóknum skal skilað til skrifstofu Framleiðnisjóðs landbúnaðarins,
Hvanneyri - 311 Borgarnes, á umsóknareyðublöðum sem þar fást.
Umsóknareyðublöð fást einnig á skrifstofum búnaðarsambandanna
og á heimasíðu sjóðsins, veffang: www.fl.is
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
Framleiðnisjóðs landbúnaðarins, Hvanneyri, 311 Borgarnes.
Sími 430-4300 / myndsími 430-4309 / netfang fl@fl.is
*
4r
r