Bændablaðið - 31.08.2004, Page 24

Bændablaðið - 31.08.2004, Page 24
24 Þriðjudagur 31. ágúst 2004 Landssam- band kúa- bænda Haustfundir LK Eins og kúabændur landsins vita var haustfundum LK á síðasta ári frestað vegna samningavinnunnar og því féllu þeir niður það ár. Nú hefur verið ákveðið að halda haustfundi LK og aðildarfélaganna um allt land lok október og byrjun nóvember nk. Reiknað er með að fyrsti fundur verði haldinn þriðjudaginn 26. október og að haustfundunum ljúki miðviku- daginn 3. nóvember. Flestir fundanna verða á kvöldin. Á fundunum verður farið yfir ýmiss innri málefni bú- greinarinnar, s.s. samningamál og hugsanleg áhrif WTO samkomulags á nýjan mjólkursamning, verðlags- og kjaramál sem og framleiðslu- og sölumál mjólkur og nautakjöts. For- svarsmenn LK verða með framsögur á fundunum, en Magnús Ólafsson, forstjóri Osta- og smjörsölunnar og formaður Markaðsnefndar mjólkur- iðnaðarins, verður einnig með fram- sögu um markaðsmál mjólkurvara á nokkrum fundum. Verðbreytingar á kjöti minni en breytingar á vísitölu neysluverðs Hagstofa Íslands heldur utan um verðbreytingar á kjöti til neytenda og samkvæmt nýjum tölum fyrir ágúst kemur í ljós að ef litið er til verð- breytinga á öllu kjöti hérlendis sl. 2 ár, þá hefur kjöt til neytenda hækkað að jafnaði um 0,3% en vísitala neyslu- verðs hinsvegar hækkað um 5,3%. Á þessum tíma hefur nautakjöt (nýtt eða frosið) hækkað um 1,4%. Skýring á þessu felst fyrst og fremst í miklu verðfalli sem varð vegna offramboðs á svína- og alífuglakjöti fyrir 2 árum, sem leiddi til þess að verðhækkanir urðu mun minni á öðru kjöti en á vísitölu neysluverðs. Sl. ár (september 2003 til ágúst 2004) hefur hinsvegar verð til neytenda hækkað umfram vísitölu neysluverðs. Vísitala neysluverðs hefur hækkað um 3%, en "vísitala" nautgripakjöts um 9,8%. Á sama tíma hækkaði verð til nautgripabænda um tæp 5%. Í byrjun ágúst hækkaði verð frá sláturleyfshöfum til nautgripa- bænda og ef tekið er mið af þeirri verðhækkun nemur hækkun til nautgripabænda sl. 12 mánuði um 11%, en rétt er að taka fram að hugsanlegt er að áhrif vegna þessa eigi eftir að koma fram í tölum frá Hagstofunni í byrjun september. Ánægjuleg þróun með hlutfall ungnautakjöts á Íslandi Á undanförum árum hefur hlutfall ungnautakjöts á markaði hérlendis aukist verulega (sjá mynd) og er nú svo komið að magn nautakjöts af ungum gripum er hátt í 70% af öllu nautgripakjöti á markaðinum og hlut- fallið því orðið áþekkt eða hærra en gerist í nágrannalöndum okkar. Nokkuð hröð breyting hefur orðið á þessu hérlendis á síðustu árum og hefur hlutfall ungnautakjöts aukist um 9,3% á fjórum árum og á sama tíma hefur hlutfall kjöts af eldri gripum minnkað um 14,9%. Skrifstofa LK Sími: 433 7077, fax: 433 7078. Snorri Sigurðsson, framkvæmdastjóri Snemma í maí var haldið í Reykjavík málþing undir heitinu "Viljum við erfðabreytt matvæli?". Þeir sem boðuðu til málþingsins voru VOR- Verndun og ræktun, sem er félag framleiðenda í lífrænum búskap, Neytendasamtökin og áhugahópur neytenda. Frummælendur voru Guðfinnur Jakobsson í Skaftholti, bóndi í lífrænni ræktun, Gunnar Á. Gunnarsson, framkvæmdastjóri Vottunarstofunnar TÚN, Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna og Þórður Halldórsson, garðyrkjubóndi í lífrænni ræktun og formaður VOR. Fundarstjóri var Svanborg R. Jónsdóttir kennari og verslunin Yggdrasill bauð málþingsgestum lífrænt vottaðar veitingar í fundarhléi. Útbreiðsla erfðabreyttra lífvera (GMO) og notkun þeirra við matvæla- og lyfjaframleiðslu hefur verið furðu lítil og svo til gagnrýnislaus hérlendis þótt þetta mál hafi fengið gífurlega umfjöllun erlendis um árabil. Þar við bætist að lagasetning og reglugerðarsmíð um þessi efni er veikburða og seint á ferðinni hér á landi og er sennilega vægt til orða tekið að tómlætis hafi gætt um ýmsa þætti þessara mála. Nokkur þáttaskil urðu þó í vetur þegar Náttúrulækningafélagið beitti sér fyrir ágætum kvöldfundi um erfðabreyttar lífverur. Þar komu fram ýmsar gagnlegar upplýsingar um þessi efni og umræður endurspegluðu mjög andstæð sjónarmið, annars vegar þeirra sem telja litla eða enga vankanta á útbreiðslu erfðabreyttra lífvera og hins vegar þeirra sem vilja að farið sé varlega og vilja alls ekki að þessum efnivið sé sleppt lausum í landbúnaði og þar með matvælaframleiðslu. Í fyrri fylkingunni ber mest á talsmönnum líftæknifyrirtækja sem eiga mikilla hagsmuna að gæta vegna vona um atvinnusköpun og stórgróða, og í seinni fylkingunni fara fremstir lífrænir bændur, umhverfisverndarfólk og forystumenn neytenda. Umfjöllun um áform líftæknifyrirtækisins ORF Líftækni ehf. var mjög fyrirferðarmikil á fundi Náttúrulækningafélagsins. Þar vakti m.a. athygli að þótt talsmenn þess teldu enga hættu á mengun frá ræktun erfðabreytts byggs í sveitum landsins vildu þeir ekki ábyrgjast hugsanlegar skaðabætur til lífrænna bænda sem gætu tapað vottun á afurðum sínum ef í þeim fyndist aðkomið erfðabreytt efni. Það skal tekið fram að notkun erfðabreyttra lífvera, hvort sem er jurta- eða dýrakyns, er bönnuð í lífrænni ræktun. Segja má að málþingið í maí hafi verið rökrétt framhald fundar Náttúrulækningafélagsins, þ.e. að ræða betur matvælaþáttinn og sérstaklega viðhorf neytenda hér og erlendis. Guðfinnur Jakobsson benti á að með útbreiðslu erfðabreyttra lífvera væri verið að grípa inn í lífkeðjuna með óafturkræfum og ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Ræktun erfðabreyttra jurta, einkum soyabauna, maíss, olíurepju og bómullar hafi byrjað fyrir aðeins tæpum áratug, einkum í Bandaríkjunum, Argentínu, Kanada og Kína. Enn sem komið er hafi uppskera á hverja flatareiningu ekki aukist og notkun eiturefna ekki minnkað gagnstætt því sem spáð var. Þeir Gunnar Á. Gunnarsson og Þórður Halldórsson tilgreindu ýmsar erlendar upplýsingar, m.a. um mengun frá ökrum þar sem sáð hefur verið erfðabreyttu fræi, um málaferli þar sem fjölþjóðafyrirtæki hafa lögsótt bændur vegna einkaleyfa á erfðabreyttu fræi og um þá hættu sem skapast ef þessi stórfyrirtæki komast í einokunaraðstöðu við sölu fræs, áburðar, eiturefna o.fl. aðfanga. Þeir töldu að líftæknifyrirtækið ORF gæti skaðað hreinleikaímynd íslensks landbúnaðar með ræktun byggs á ökrum í sveitum landsins þar sem ekki yrði hægt að hafa stjórn á útbreiðslu hins erfðabreytta efniviðar. Jarðvegurinn myndi mengast, búfé gæti komist inn á slíka akra og með fuglum loftsins gæti erfðabreytt efni borist víða. Sérstaklega yrði þetta alvarlegt gagnvart þróun lífræns landbúnaðar hér á landi sem væri vaxtarbroddur með framtíðarmöguleika. Erlendis væri jafnvel reynt að fá yfirlýsingar stjórnvalda um að tiltekin landsvæði verði algerlega friðuð gegn ræktun erfðabreyttra jurta (Austurríki, Ítalía). Það myndi vekja mikla athygli í heiminum ef Ísland yrði friðlýst að þessu leyti. Jóhannes Gunnarsson sagði ekkert hafa enn bent til þess að bændur og neytendur högnuðust á ræktun erfðabreyttra jurta til matvælaframleiðslu. Neytendur víða um lönd hefðu gagnrýnt þessa þróun harðlega og vildu að farið verði hægar í sakirnar. Enn væri mörgu ósvarað og ljóst að stjórnvöld væru undir miklum þrýstingi, einkum frá Bandaríkjunum þar sem flest stóru líftæknifyrirtækin hefðu mikil áhrif. Hann sagði Neytendasamtökin fylgjast vel með þróun þessara mála. Mikill meirihluti neytenda í Evrópu vildi ekki erfðabreytt matvæli. Í framsöguerindum og umræðum kom skýrt fram að í fyrsta lagi þurfi að gera ræktendur erfðabreyttra nytjajurta ábyrga fyrir þeim skaða sem þeir kunna að valda bæði í hefðbundnum landbúnaði og í lífrænni ræktun. Í öðru lagi yrði að skylda framleiðendur og dreifingaraðila matvæla og fóðurs með erfðabreyttum lífverum að merkja vörurnar greinilega. Hér vantar enn reglur um þessi efni og svo mikið er andvaraleysið að Umhverfisstofnun veitti líftæknifyrirtækinu ORF leyfi til útiræktunar á erfðabreyttu byggi á árinu 2003. Fram komu þau sjónarmið á málþinginu að slík ræktun ætti aðeins að fara fram í gróðurhúsum "undir lás og slá", þarna ætti svokölluð "varúðarregla" að gilda enda ljóst að dreifing erfðabreyttra lífvera og sá landbúnaður sem þeim tengist ætti lítið skylt við sjálfbæra þróun. Nýlega var greint frá því í hinu virta vísindariti New Scientist (17. apríl 2004, bls. 40-43) að stórfelld ræktun erfðabreyttra soyabauna í Argentínu undanfarin sjö ár hafi átt verulegan þátt í að skapa mikinn efnahagsvanda vegna ósjálfbærra breytinga í landbúnaðarframleiðslu. Þær umræður og blaðaskrif sem orðið hafa síðustu mánuðina benda til þess að stjórnvöld þurfi að endurskoða afstöðu sína til dreifingar erfðabreyttra lífvera hér á landi. Til þessa hafa hugsanleg jákvæð áhrif fengið mesta athygli enda óspart rekin áróður í þá veru. Það gengur ekki lengur að þeir sem eru að benda á hugsanlega eða líklega vankanta, og þar með sennileg neikvæð áhrif á ímynd íslensk landbúnaðar, séu stimplaðir sem þröngsýnir öfgamenn. Ég tel að í þessum efnum þurfi að sýna meiri varkárni og móta reglur sem samræmast markmiðum sjálfbærrar þróunar þannig að bændur og neytendur geti við unað. Líftæknifyrirtækin eiga ekki að ráða ferðinni. Ólafur R. Dýrmundsson, landsráðunautur í lífrænum búskap og landnýtingu, Bændasamtökum Íslands Andstaða gegn erfðabreyttum matvælum N okkrar umræður urðu um þá algengu staðhæfingu að notkun erfðabreyttra lífvera til jurtakynbóta væri eina raunhæfa leiðin til að sjá heimsbyggðinni fyrir nægilegum matvælum í framtíðinni. Nú ætti að hressa upp á hina svokölluðu "Grænu byltingu" sem væri að ganga sér til húðar vegna margvíslegra umhverfis- og þjóðfélagsvandamála sem hún hefur skapað. Líkt og Græna byltingin myndi notkun erfðabreyttra nytjajurta valda miklum skaða og stuðla að aukningu gróðurhúsalofttegunda, sem tengjast loftslagsbreytingum, vegna þess að ræktunaraðferðirnar eru þær sömu eða því sem næst. Áfram muni ræktunin byggjast á mikilli notkun tilbúins áburðar, eiturefnadreifingu og áveitum þannig að einhæf og mengandi ræktun, uppsöfnun salts í jarðvegi og jarðvegseyðing í akurlendi haldi áfram. Bent var á hina sjálfbæru búskaparhætti lífrænnar ræktunar sem eina þeirra leiða sem færar væru til að framleiða matvæli án þess að valda stórskaða á umhverfi og sveitabyggð, ekki síst í þriðja heiminum./ÓRD Theódór Kristjánsson líffræðingur varði meistaraverkefni sitt, ,,Endurnýting á fersku vatni í bleikjueldi", við Háskóla Íslands miðvikudaginn 2. júní. Verkefnið var unnið undir leiðsögn Helga Thorarensen, Hólaskóla, og Loga Jónssonar hjá Háskóla Íslands Niðurstöður Theódórs benda til þess að uppsöfnun ammóníaks sé helsti takmarkandi þáttur við endurnýtingu á fersku vatni í bleikjueldi. Hins vegar má draga úr vatnsnotkun í bleikjueldi allt að 16 falt með einfaldri endurnýtingu. Mjög mikið vatn þarf til fiskeldis og sagði Theódór í samtali við Bændablaðið að verkefnið gengi út á það sýna fram á að hægt er að draga úr frumrennsli vatns og nýta það vatn sem er til staðar betur en gert hefur verið. Sem dæmi um hve vatnsnotkunin er mikil í fiskeldi sagði Theódór að til að framleiða eitt kíló af bleikju þyrfti 100-120 þúsund lítra af 8 gráðu heitu vatni. Theódór segir að sérstaklega í Evrópu sé mikil hefð fyrir því að endurnýta vatn í fiskeldi ekki síst vegna umhverfisreglugerða. Í Danmörku, Þýskalandi og Hollandi verða menn að hreinsa allt skolp frá fiskeldisstöðvunum og þegar búið er að hreinsa vatn sem einu sinni er búið að fara í gegnum stöðina er að sjálfsögðu upplagt að nota það aftur. ,,Ef hiti er af skornum skammti geta menn dregið úr rennsli á köldu vatni og notað varmann betur úr heita vatninu við endurnýtingu vatnsins. Hér á landi er það oft á tíðum þannig að hiti er af skornum skammti. Þá geta menn hækkað eldishitann með því að draga úr rennsli á köldu vatni og ná þannig meiri framleiðslu úr einingunni," segir Theódór Kristjánsson. Hægt að draga verulega úr vatnsnotkun í bleikjueldi

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.