Bændablaðið - 31.08.2004, Blaðsíða 27
Þriðjudagur 31. ágúst 2004 27
Þeir sem þekkja til innan veggja Nautastöðvarinnar á Hvanneyri átta sig strax á þessari einkennilegu “skepnu”
sem Ingimar Einarsson, starfsmaður stöðvarinnar, klappar svo ljúflega. Ingimar hefur um langt skeið haft þann
starfa að taka sæði úr nautum stöðvarinnar og þá kemur þessi gervikýr að góðum notum. Þess má geta að
“kýrin” er klædd húð af skagfirskri kú.
Skepnan hans Ingimars...
Í vor ákvað veiðistjórnunarsvið
Umhverfisstofnunar að banna
netaveiði á silungi í Eyjafirði frá
15. maí til 15. ágúst. Vegna
harðra viðbragða bænda á
svæðinu var veiðibannið stytt og
gilti frá 15. júlí til 15. ágúst. Hins
vegar var ákveðið að framvegis
gildi bannið frá 15. maí til 15.
ágúst. Það var að ósk veiðifélaga
á Eyjafjarðarsvæðinu sem þetta
bann var sett á. Bændur héldu
mikinn fund um málið,
samþykktu ályktun sem send
var veiðifélögunum þar sem
banninu var mótmælt sem órök-
studdu. Þessu neituðu veiði-
félögin.
Sveinberg Laxdal, bóndi á
Túnsbergi, sagði í samtali við
Bændablaðið að þá um leið hafi
bændur ákveðið að kæra málið
með stjórnsýslukæru til land-
búnaðarráðuneytisins sem hafnaði
kærunni.
,,Þannig er staðan núna og við
erum að undirbúa kvörtun til um-
boðsmanns Alþingis og hann fær
málið til sín á næstu dögum. Við
stofnuðum félag sem heitir Félag
eigenda sjávarjarða við austan-
verðan Eyjafjörð og höfum ráðið
okkur lögmann, Jörund Gauksson.
Við erum ákveðnir í að fara með
þetta mál eins langt og við þurfum
til að ná fram rétti okkar, jafnvel til
Evrópudómstólsins ef með þarf,"
sagði Sveinberg.
Hann sagði að bændur við
Skjálfandaflóa og í Þistilfirði
hefðu orðið fyrir svona banni líka.
Þar eru sveitarstjórnir komnar í
málið en sveitarstjórnir Sval-
barðsstrandarhrepps og Grýtu-
bakkahrepps eru búnar að álykta
gegn banninu. ,,Það er verið að
taka þessi hlunnindi af okkur.
Bændur hafa alla tíð getað aflað
heimilum sínum matar með því að
leggja net frá landi. Það hefur
aldrei verið veitt meira á þessu
svæði en heimilin þurfa til matar.
Sala hefur engin verið og mótmæli
okkar byggjast á því að okkur
þykir óþolandi að eignarréttur
okkar skuli skertur með þessum
hætti," sagði Sveinberg Laxdal.
Netaveiðibannið á silungi í Eyjafirði
Bændur vísa málinu til
umboðsmanns Alþingis
Handverksfélagið Fléttan í Austur-
Skagafirði efndi í vetur til samkeppni um
gerð minjagripa. Úrslit í keppninni voru
kunngerð á samkomu sem haldin var í
tilefni af velheppnaðri Jónsmessuhátíð á
Hofsósi fyrir skömmu. Fyrstu verðlaun í
keppninni, eitt hundrað og fimmtíu þúsund
krónur, hlaut Ásdís Kjartansdóttir,
húsfreyja á Melstað í Skagafirði. Hugmynd
hennar byggðist á að nota efnivið sem
sóttur er í sjávarfjöruna. Önnur verðlaun
komu í hlut Sigurmons Þórðarsonar,
bifreiðarstjóra á Hofsósi, og þau þriðju
hlaut Þórey Jónsdóttir, húsmóðir í Keflavík
í Skagafirði. Þá var ákveðið að veita
þremur aðilum sérstök hvatningarverðlaun
fyrir hugmyndir sínar. Þau sem þessa
viðurkenningu hlutu voru: Jóhanna
Thorarensen Hólum Hjaltadal, Ingibjörg
Sigurðardóttir Hofsósi og Kjartan H.
Grétarsson Reykjavík. Viðurkenningin
felst í því að Atvinnuþróunarfélag Norður-
lands vestra mun veita höfundunum
ókeypis ráðgjöf í sambandi við framleiðslu
á þeirra munum.
Alls bárust þrjátíu tillögur í samkeppninni.
Handverksfélagið Fléttan var stofnað fyrri-
hluta ársins 2003 og eru félagar 46. Við
athöfnina á Hofsósi lét formaður félagsins,
Elínborg Hilmarsdóttir, þess getið að Fléttan
hafi auk Atvinnuþróunarfélagsins notið
stuðnings Byggðastofnunar,sveitarfélagsins
Skagafjarðar og Smáverkefnasjóðs land-
búnaðarins við að hrinda minjagripa-
samkeppninni í framkvæmd. Á meðfylgjandi
mynd má sjá fjögur þeirra sem hlutu viður-
kenningar hjá Fléttunni. Frá vinstri: Ingibjörg
Sigurðardóttir, Sigurmon Þórðarson, Ásdís
Kjartansdóttir og Jóhanna Thorarensen. /ÖÞ.
Áhugaverðar hugmyndir að minjagripumSláturfélag
Suðurlands tapar
Tap samstæðu Sláturfélags
Suðurlands á tímabilinu janúar
til júní 2004 nam 97,6
milljónum króna en 2,2 milljóna
króna hagnaður var af rekstri á
öðrum ársfjórðungi. Á sama
tíma í fyrra nam tapið 59,9
milljónum króna. Verri afkoma
nú skýrist fyrst og fremst vegna
afkomu dótturfélaga sem nú eru
hluti af samstæðuuppgjöri.
Eigið fé SS er 1.074 milljónir og
eiginfjárhlutfall samstæðunnar
er 29%.
Afkoma Sláturfélagsins hefur
jafnan verið þyngst framan af ár-
inu en best á síðasta ársfjórðungi.
Þetta stafar m.a. af afkomu af-
urðadeildar en umsvif hennar auk-
ast við haustslátrun sauðfjár. Í
fréttatilkynningu frá SS segir að
kjötmarkaðurinn sé nú farinn að
færast hægt í átt að auknu jafn-
vægi sem á að leiða til betri
afkomu í rekstri félagsins á síðari
árshelmingi. Þetta kemur fram í
fréttatilkynningu frá SS.
Lifandi landbúnaður
blæs til sóknar
Lifandi landbúnaður; grasrótarhreyfing kvenna í landbúnaði,
blæs til sóknar og auglýsir verkefnið Stórbaggar í stæðunni.
Hámarksfjöldi þátttakenda í hvert verkefni eru 15 konur. Í
fyrsta verkefnishópnum er æskilegt að taki þátt reyndar konur
sem geta bæði verið virkir þátttakendur og eins lagt mat á
verkefnið í heild. Skráningarform og frekari upplýsingar er að
finna á heimasíðu Lifandi landbúnaðar undir landbunadur.is
og bondi.is
Í gegn um verkefnið Stórbaggar í stæðunni hittast núverandi
leiðtogar og leiðtogar framtíðarinnar – hvar verður þú? Kynntu þér
verkefnið á heimasíðu Lifandi landbúnaðar undir landbunadur.is og
bondi.is
Hver er ávinningur kvenna af því að
taka þátt í verkefninu Stórbaggar í stæðunni?
Meðbyr og tækifæri
Ný tengsl og markviss þátttaka í tengslaneti kvenna í Lifandi
landbúnaði
Aðferðir, tækni og árangur- hagnýt þekking
Nýjar hugmyndir – ónýtt tækifæri – eitthvað fyrir þig ?
Persónuleg skrifleg umsögn – styrkleikar og veikleikar -
stefnumótun
Hagnýt þekking, reynsla og víðsýni
Framtíðarsýn í landbúnaði
Yfirlit yfir stöðu kvenna innan landbúnaðarins
Mentoring- gagnkvæm tengsl og handleiðsla
Tækifæri til þess að hafa áhrif á allt verkefnið til frambúðar
Þarna hittast núverandi leiðtogar
og leiðtogar framtíðarinnar - hvar verður þú ?
Umsjón með undirbúningi, verkefnisstjórnun, kennslu og endurmati eru:
Kristín Linda Jónsdóttir, Miðhvammi bóndi og ritstjóri
midhvammur@simnet.is s 4643521
Ragnhildur Sigurðardóttir, Álftavatni, Lifandi Landbúnaður
ragnhildur.umhverfi@simnet.is simi 4356695
Hansina B Einarsdóttir, Hótel Glym, Skref fyrir skref
hansina@hotelglymur.is simi 4303100