blaðið - 09.12.2005, Side 2
2 i IWWLEWDAR FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005 blaöiö
Utanríkisversluti:
Um 52% meiri
innflutningur
á þessu ári
Vöruinnflutningur í nóvembermán-
uði nam um 27,5 milljörðum án
innflutnings skipa og flugvéla sam-
kvæmt bráðabirgðartölum frá fjár-
málaráðuneytinu sem birtar voru í
gær. Reynast tölurnar réttar er nóv-
ember stærsti innflutningsmánuður-
inn á árinu og er innflutningur um
52% meiri en á sama tíma í fyrra. Sé
horft til fyrstu 10 mánuða ársins er
verðmæti innflutnings það sem af er
þessu ári rúmlega þriðjungi meira
en í fyrra. Meginskýring á þessari
aukningu er fyrst og fremst rakin
til magninnflutnings á fjárfestinga-
vörum sem að stærstum hluta er til-
kominn vegna stóriðjuframkvæmda.
Þjóðarbúskapur:
Gert ráð fyr-
ir miklum
hagvexti
Útlit er fyrir mikinn hagvöxt á
þriðja ársfjórðungi þessa árs
samkvæmt Greiningardeild
íslandsbanka. Mikil aukning á
einkaneyslu sem og áframhald-
andi stjóriðjufjárfestingar eru
taldar vera helstu ástæður þess en
í heild gerir Greiningardeildin ráð
fyrir um 6% hagvexti á árinu. Til
samanburðar má nefna að á öðrum
ársfjórðingi þessa árs mældist
hagvöxtur um 7%. Þá gerir deildin
ráð fyrir því að eitthvað dragi úr
hagvexti á næsta ári m.a. vegna
mettunaráhrifa í einkaneyslu og
samdráttar í stóriðjufjárfestingum.
Nátthrafnar athugið
Opið til kl. 05:00 á laugardags og
tll kl. 07:00 á sunnudagsmorgnum
CluiznosSuB
HHMH...GLÓÐAÐUR
Lækjargata 8
Félagsmálaráðherra
rassskelltur af Hæstarétti
Ríkið dæmt til sex milljóna króna bótagreiðslna vegna þess að Árni Magnússon, félagsmálaráðherra, hafði knúið Val-
gerði H. Bjarnadóttur, jafnréttisstýru, til afsagnar. Ráðherrann ávítaður fyrir að gœta ekki meðalhófs ogfyrir að hafa
sniðgengið lögboðna stjórnsýslu.
Hæstiréttur dæmdi í gær íslenska
ríkið til að greiða Valgerði H. Bjarna-
dóttur, fyrrverandi framkvæmda-
stýru Jafnréttisstofu, 6 milljónir
króna f bætur vegna starfsloka
hennar árið 2003. Segir Hæstiréttur
að Árni Magnússon, félagsmálaráð-
herra, hafi bakað ríkinu skaðabóta-
ábyrgð með þvf að hafa með ein-
dregnum tilmælum sínum knúið
Valgerði til að fallast á að láta af starf-
inu, en það gerði hún eftir að vafi
kom upp um heilindi hennar í jafn-
réttismálum árið 2002. Með þessu
er dómi Héraðsdóms Reykjavíkur
snúið við, en þar var ríkið sýknað.
Árni Magnússon sagðist í gær
ekki draga dul að þessi niðurstaða
Hæstaréttar ylli sér vonbrigðum,
enda væri hún andstæð héraðsdómi
og mati ríkislögmanns og annarra
lögfræðilegra ráðgjafa sem hann
hafi leitað til.
1 dómi Hæstaréttar segir að
engin rök hafi verið færð fyrir því
að ekki hefði mátt skapa frið um
Valgerður H. Bjarnadóttir,
starfsemi Jafnréttisstofu með því að
Valgerður viki tímabundið úr starfi
þar til Hæstiréttur hefði dæmt í
máli leikfélagsins, eins og hún
lagði til. Með þessu hafi ekki verið
virt regla um meðalhóf við töku
stjórnvaldsákvörðunar.
Þá dæmir Hæstiréttur að ráðherra
hafi knúið Valgerði til að fallast á að
láta af starfinu í stað þess að fylgja
lögboðinni málsmeðferð, sem ætlað
sé að tryggja réttaröryggi aðila. Því
hafi ráðherra bakað ríkinu skaða-
bótaskyldu gagnvart Valgerði.
Hæstiréttur taldi eðlilegt, með
hliðsjón af dómaframkvæmd og að-
stæðum í málinu, að ríkið greiði Val-
gerði 6 milljónir króna í bætur.
Jafnréttisstýra átti sjáif
frumkvæðið að afsögn
Valgerður var skipuð framkvæmda-
stýra Jafnréttisstofu árið 2005 til
fimm ára, en hún var einnig for-
maður stjórnar Leikfélags Akur-
eyrar. Á þeim vettvangi beitti hún
sér fyrir ráðningu Þorsteins Bach-
mans í stöðu leikhússtjóra árið 2002,
en kærunefnd jafnréttismála taldi
hana brjóta í bága við jafnréttislög
og var sú niðurstaða staðfest í hér-
aðsdómi um miðbik árs 2003.
Þetta setti Jafnréttisstofu og fram-
kvæmdastýru hennar í erfiða stöðu,
enda var trúverðugleiki beggja mjög
dreginn í efa á opinberum vettvangi.
Ritaði Valgerður félagsmálaráðherra
þá bréf, þar sem hún kvaðst tilbúin
til þess að starfa áfram þrátt fyrir
þrönga stöðu, en sagðist „einnig til-
búin til að víkja ef [stjórnvöld] telja
það fyrir bestu.“ Sama dag fundaði
hún með ráðherra og þar sagði hann
Valgerði að hún nyti ekki trausts
síns. Féllst hún við svo búið á að láta
af störfum. Gerði ráðuneytið í fram-
haldinu einhliða starfslokasamning
við hana, sem nam eingreiðslu sex
mánaðarlauna, samtals 3,6 milljónir
króna.
Hálfu ári síðar féll hins vegar
dómur Hæstaréttar um ráðningu
leikhússtjórans á annan veg en í hér-
aði. f framhaldinu krafði Valgerður
ríkið um bætur vegna starfslokanna
og byggði á því að hún hefði látið
af störfum að kröfu ráðherra og án
sakar af hennar hálfu. ■
Aldraðir:
Ráðstöfunartekjur
hæstar á íslandi
Ráðstöfunartekjur aldraðra eru
hæstar á fslandi í samanburði við
tekjur aldraðra á Norðurlöndum.
Þetta kemur fram í vefriti fjármála-
ráðuneytisins sem birt var í gær. For-
maður Landssambands eldri borg-
ara gagnrýnir þessar niðurstöður og
segir þær ekki sýna alla myndina.
Háar ráðstöfunartekjur
f vefriti fjármálaráðuneytisins
kemur fram að samkvæmt nýjustu
samantekt Nordisk Socialstatistik
(NOSOSKO) eru ráðstöfunartekjur
aldraðra hæstar á íslandi. Tölurnar,
íslensk list er góÖ gjöf
Gallerí Fold - Kringlunni og Rauðarórstíg -
OpiS í Kringlunni mánudaga til laugardaga 10-22,
sunnudaga kl. 13-22
OpiS á RauSarárstíg laugardaga 11-16,
sunnudaga kl. 14-16
Sjáumst í Galleríi Fold
RauSarárstig 14, sími 551 0400
Kringlunni, sími 568 0400 • www.myndlist.is
sem unnar eru úr skattaframtölum,
byggja á því að allar skattskyldar
tekjur aldraðra að meðaltali eru
taldar saman svo sem atvinnutekjur,
fjármagnstekjur og ellilífeyrir. Þá
kemur fram í vefritinu að helstu
skýringar fyrir þessum háu ráðstöf-
unartekjum eru lágir skattar og
mikil atvinnuþátttaka aldraðra á
fslandi. Einnig er þess getið að árið
2002 hafi tekjutryggingarauki Trygg-
ingastofnunar tvöfaldast og í dag fái
um 8.000 ellilífeyrisþegar hlutdeild
í þessum tekjutryggingarauka.
Sýnir ekki alla myndina
Ólafur Ólafsson, formaður Lands-
sambands eldri borgara, segir það
vissulega rétt að ráðstöfunartekjur
aldraðra séu háar hér á landi en segir
þessar tölur ekki sýna alla myndina.
„Þeir tala aldrei um það að meðallíf-
eyrir frá tryggingunum er lægstur
á íslandi. Hitt er annað mál að það
vinna mun fleiri 65 ára og eldri á fs-
landi en í nágrannalöndum okkar.
Það eru m.a. tvær ástæður fyrir
þessu. Við erum mjög vinnusamt
fólk en hin ástæðan er að meginlíf-
BlaOiö/SteinarHugi
eyrisgreiðslurnar eru svo lágar að
menn lifa ekki á þeim.“ Ólafur segir
ríkið refsa þeim sem fara út á vinnu-
markaðinn með lífeyrisskerðingu
og sköttum og menn fá oft lítið fyrir
sinn snúð. „Um þetta talar ráðu-
neytið aldrei. Þetta eru upplýsingar
sem okkur eru ekki bjóðandi. Þetta
eru svo takmarkaðar upplýsingar
um hag þessa hóps að maður bara
skammast sín fyrir hönd ráðuneytis-
ins að láta ekki alla söguna fara. ■
Úrvalsvísitalan
Yfir 5.200 stig
í fyrsta sinn
Úrvalsvísitala Kauphallar íslands
fór í gær í fyrsta skipti yfir 5.200
stig. Vísitalan hækkaði í viðskiptum
gærdagsins um 0,86% og endaði
í 5.204 stigum. Viðskipti með
hlutabréf námu um 3,4 milljörðum
króna í gær og þar af námu við-
skipti með hlutabréf í Actavis um
1,23 milljörðum. Mest hækkuðu
bréf í Bakkavör, eða um 2,56% en
bréf í Actavis hækkuðu um 2,45%.
Samgöngur
SAS hefur flug
til Islands
Flugfélagið SAS-Braathens hyggst
hefja reglubundið flug milli Islands
og Noregs í mars á næsta ári sam-
kvæmt tilkynningu frá félaginu
sem send var út í gær. Flogið verður
þrisvar í viku á milli Keflavíkur og
Osló og munu lægstu fargjöld nema
rétt rúmum sjö þúsund krónum.
SAS-Braathens er sjálfstætt flugfélag
innan SAS-Group og hefur m.a. yfir
að ráða 52 Boeing 737 vélum en flug-
vélar af þeirri gerð munu halda uppi
flugleiðinni mflli Islands og Noregs.
O Helðsklrt 0 Léttskýjað Skýjað
| Alskýjað ^ ✓ Rigning, lítllsháttar // Rigning 9 9 Súld jjc'Í' Snjókoma Slydda /n Snjóél v-7
' ’ * V V V
Amsterdam 04 ✓ ✓ ✓ s * > *
Barcelona Berlín 14 02 €Í' ' ' S / / y ' 0 o
Chicago Frankfurt -10 04 er5°
Hamborg 02 s ✓
Helsinki -04
Kaupmannahöfn 0 ^ s
London 07 x 3° :
Madrid Mallorka 12 14
Montreal -05 W 3°
NewYork Orlando -01 18 4°
Osló Paris -03 04 / X <B>*
Stokkhólmur -02 r y. / 4
Þórshöfn 08 'Zt°
Vín 02 ✓ .
Algarve 16 Veðurhorfur í dag kl: 15.00 ✓ ✓
Dublln 10 Veðursíminn 5°
Glasgow 10 Byggt á upplýsingum fró Veðurstofu íslands
*
*
9 9
9
r
5 9
9
s ✓
✓ /
✓ '4°