blaðið - 09.12.2005, Side 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005 blaöiö
0ALOCCO
Jólakaka sælkerans
Þingheimur:
Engin spenna
á Alþingi
Eldur kom upp í aðalrafmagnstöflu
Alþingishússins laust eftir ldukkan
átta í gærmorgun með þeim afleið-
ingum að allt rafmagn fór af. Að
sögn slökkviliðs höfuðborgarsvæðis-
ins var búið að slökkva eldinn áður
en dælubíll kom á svæðið. Ekki var
talið að mikil hætta hafi skapast.
Þingfundur sem átti að hefjast
klukkan ío var frestað fram yfir
hádegi á meðan á viðgerðum stóð.
Sjávarútvegur:
Þrettán skip
svipt leyfi
Þrettán skip voru svipt leyfi til
veiða í atvinnuskyni í nóvember-
mánuði síðastliðnum. Þetta kom
fram í fréttatilkynningu frá Fiski-
stofu. Af þessum þrettán skipum
voru fimm svipt leyfi vegna afla
umfram heimilda og átta vegna
vanskila á afladagbókafrumriti. Þá
afturkallaði Fiskistofa ótímabundið
heimavigutnarleyfi Fiskmarkaðar
Suðurnesja hf. vegna brota gegn
reglum um vigtun sjávarafla.
Stefán Ólafsson um athugasemdir ráðuneyta:
Útúrsnúningar og
langlokur um aukaatriði
Ráðuneytin reyndu að draga nið-
urstöðu örorkuskýrslunnar í efa
vegna þess að niðurstöður hennar
eru stjórnvöldum óþægilegar. Þetta
kemur fram í skriflegu svari Stefáns
Ólafssonar, prófessors, við athuga-
semdum heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytis og fjármálaráðu-
neytis. Hann segir ráðuney tin reyna
að fegra útkomuna með framsetn-
ingu vafasamra gagna.
Illa ígrundaðar athugasemdir
í skriflegu svari Stefáns Ólafssonar,
prófessors, við athugasemdum ráðu-
neyta við skýrsluna Örorka og vel-
ferð á íslandi og í öðrum vestrænum
löndum segir hann stjórnvöld horfa
framhjá hinni gríðarlegu aukningu
á skattbyrðum öryrkja. Stefán segir
margt í framsetningu þessara at-
hugasemda vera illa ígrundað og aug-
ljóst að ráðuneytin hafi ekki kynnt
sér skýrsluna nógu vel. Þá gagn-
rýnir hann einnig skýrslu Tryggva
Þórs Herbertssonar um fjölgun ör-
yrkja sem heilbrigðisráðuneytið gaf
út fyrr á þessu ári og segir margt í
henni orka tvímælis. Þar megi t.d.
finna á bls. 4 þessa setningu: „Sú
uggvænlega þróun hefur átt sér stað
að hlutfallslega mest fjölgar í hópi
yngri öryrkja og er þróunin svo ör
að furðu sætir.“ Aðeins rúmum tutt-
ugu blaðsíðum seinna má svo lesa:
,Sú uggvænlega þróun hefur átt sér
stað að hlutfallslega mest fjölgar í
hópi miðaldra öryrkja og er þróunin
svo ör að furðu sætir.“ I lok skýrsl-
unnar sé svo birt línurit sem sýnir
mesta fjölgun öryrkja í hópi eldra
fólks. Stefán telur furðulegt að ráðu-
neytið skuli hafa sætt sig við þessa
málsmeðferð.
Langt gengið í hamagangi
Stefán segir ráðuneytin þyrla upp
ryki með því að setja fram gögn sem
eru ekki alltaf dæmigerð og ekki
Athugasemdir ráðuneytanna vafasamar
segir Stefán Ólafsson.
eðlileg í samanburði. „Mér finnst
þeir vera með miklar yfirlýsingar út
af aukaatriðum og blása upp atriði
eins og þetta að ég taki ekki með
þessa þætti tekjutryggingarauka og
aldurstengdu uppbótina sem að ég
er með inni í sex af átta mælingum
á því sama. Þannig að mér finnst
ansi langt gengið í hamagangi út af
því sem að er ekki einu sinni að hafa
nein áhrif á niðurstöður og álykt-
Blaðið/Frikki
Actavis hlaut viðskiptaverðlaun
eilsuhúsið
Skólavörðustíg, Kringlunni & Smáratorgi
Viðskiptaverðlaun ársins 2005 voru afhent í gær við hátíðlega athöfn af iðnaðar- og
viðskiptaráðherra. Það er Viðskiptablaðið sem stendur að verðlaununum og í ár varð
Actavis fyrir valinu. Frumkvöðull ársins er breska fyrirtækið Mosaic Fashions, en það er
fyrsta félagið sem á rætur slnar að rekja til útlanda, sem skráð er í Kauphöll fslands. Það
voru Róbert Wessman, forstjóri Actavis og Stewart Binnie, stjórnarformaður Mosaic,
sem tóku við verðlaununum fyrir hönd fyrirtækja sinna.
anir.“ Hann segist ekki vera að gera
lítið úr þeim umbótum sem stjórn-
völd hafa gert í formi tekjutryggin-
arauka og aldurstengdra uppbóta
en að auknar skattbyrðir hafi hins
vegar unnið gegn þeim. Þá segir
hann sorglegt til þess að hugsa að
stjórnvöld bregðist við með þessum
hætti í stað þess að nýta sér þessa
rannsókn til að vinna að umbótum
í málaflokknum. „Ég held að stjórn-
völd alls staðar í kringum okkur
hefðu nálgast þetta mál öðruvísi. Ef
það hefði komið ítarleg rannsókn
þá hefðu þeir reynt að nýta sér það
sem væri hugsanlega gott í henni og
vinna að málunum. Ef að stjórnvöld
eru á annað borð að meina það sem
þau stundum segja að þau vilji raun-
verulega bæta kjör þessa fólks. En ég
held að mjög margir séu farnir að ef-
ast um að það fylgi hugur máli.“
Viðurkenning:
íslendingar
leiðandi í
loftslagsmálum
Island hefur fengið viðurkenning
frá The Climate Group í samvinnu
við tímaritið Business Week. Sig-
ríður Anna Þórðardóttir, umhverfis-
ráðherra, tók við viðurkenningunni
fyrir íslands hönd en hún er veitt
í tengslum við loftslagsráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna sem stendur
yfir í Montreal í Kanada. ísland var
eitt af þremur ríkjum sem hlaut
viðurkenninguna Low Carbon
Leader Award. Viðurkenningin
er veitt Islendingum fyrir eftirfar-
andi atriði: Vegna verkefna á sviði
vetnis, vegna yifirlýstrar stefnu um
að notkun jarðgaseldsneytis verði
óveruleg árið 2030, vegna sérstaks
fjögurra ára átaks til að binda
kolefni úr andrúmsloftinu með
landgræðslu og skógrækt og vegna
þess að hlutfall endurnýjanlegra
orkugjafa í orkubúskap þjóðar-
innar er mjög hátt, eða um 70%.
„Tíðindi í ljóðlist“
GimLWKVimif VJéFlFLLECrl j
Séhi I
Uinatvn
Sölvi B. Sigurðsson
Ævintýraleg gönguferð niður Laugaveg
undir tersínuhætti Dantes....
„Gleðileikurinn djöfullegi er stórfenglegur, og
svoleiðis kjamsandi fullur af góðmeti að mig
svimar við lestur bókarinnar. Þetta eru
tíðindi í Ijóðlist."
Eiríkur Örn Norðdahl, http://www.blog.central.is/amen
„Texti Sölva er oft kímilegur og vel spunninn
með myndrænu ívafi."
Skafti Þ. Halldórsson, Mbl.
(0"
E d d a
edda.is
7*EI?R4
Jólablaðið er komið í verslanir
Áskrift í síma 586 8005 eða á www.rit.is