blaðið - 09.12.2005, Page 6
6 I INNLENDAR FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005 blaðiö
Ríkisháskólar:
Vangaveltur uppi hvort að Sigrfður sé á
leiðfráSkjáeinum.
þátt af dagskrá." Magnús segir alls
kyns verkefni vera í þróun en að
ekkert hafi verið ákveðið enn sem
komið er.
Á krossgötum
Sigríður Arnardóttir segist vera sátt
við þessa ákvörðun og nú sé hún að
skoða framhaldið. „Mér finnst ágætt
að brey ta núna þar sem maður hefur
meðbyr. Þátturinn var að koma
mjög vel út i síðustu könnun og
hefur verið vaxandi þannig að það
er bara flott að hætta á toppnum.
Bæði Skjár einn er með hugmyndir
að þáttum sem þeir vilja að ég geri
og sjálf er ég með hugmynd að þætti
sem ég er búin að vera með í huga
í um tvö ár.“ Sigríður vildi ekki tjá
sig um það hvort að aðrar sjónvarps-
stöðvar hefðu falast eftir hæfileikum
hennar en segir það gott að staðna
ekki og að henni standi margar dyr
opnar. „Það eru manni allir vegir
færir þegar maður stendur á kross-
götum. Eg er með hugmynd um þátt
sem hefur gerjast með mér í tvö ár
og ég bara stend í samningum."
Bim/FMi
Fimm stjörnu vegir
I næstu viku verður hrundið af stað öryggisúttekt á íslenskum vegum undir merkjum
EuroRap (European Road Asessment Programme). Af því tilefni var haldinn blaðamanna-
fundur í húsnæði Bílaumboðsins Öskju en af verkefninu standa m.a. sjö íslensk fyrirtæki.
Markmið verkefnisins verður að gera öryggisúttekt á íslenskum vegum og gefa þeim
stjörnur með tilliti til öryggis. Áætlað er að birta fyrstu niðurstöður í upphafi næsta árs.
Um þúsund manns var synjað um
skólavist hjá ríkisreknu háskólunum
við upphaf þessa skólaárs sem nú er
að líða. Björgvin G. Sigurðsson, ai-
þingismaður, beindi fyrirspurn til
Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur
um hve mörgum hafi verið vísað frá.
í svari ráðherra kom fram að 127 var
vísað frá við Háskólann á Akureyri
eða tæplega 20% þeirra sem sóttu
um. 1.071 umsókn barst til Kennara-
háskóla Islands um grunnnám og
var 690 þeirra hafnað. I framhalds-
nám sóttu 324 einstaklingar, en 124
þurftu frá að hverfa. Að mati Björg-
vins eru þetta sérstaklega háar tölur
í ljósi þess að alvarlegur skortur er á
fræslumenntuðu fólki, í leikskólum
og grunnskólum. Hjá Háskóla ís-
lands var 48 umsækjandum neitað
um að hefja þar grunnnám.
Menntamálaráðherra
vill ekki beita sér
„Kjarninn í málinu er sá að fyrir
nokkrum árum fóru opinberu há-
skólarnir að grípa til örþrifaráða til
að standa undir rekstrinum. Þeir
fóru því að beita þeim fjöldatak-
mörkunum sem þeim var stætt á að
beita, eins og að nota ekki heimild
til að taka inn aðra en þá sem hafa
formlegt stúdentspróf," segir Björg-
vin og segir þann hátt hafa viðgeng-
ist hér á landi um áraraðir. „Háskól-
inn á Akureyri hefur nýtt sér þessa
heimild sérstaklega rúmlega, en
grundvöllur þess skóla er að hluta
til sá að fullorðið fólk úti á landi eigi
kost á háskólamenntun. Þetta er í
raun birtingarmynd af alvarlegri
stöðu skólanna, en þeir eru í alvar-
Háskóii fslands: 48 synjað um grunnnám á síðasta ári.
legri kreppu. Menntamálaráðherra
hefur hvorki viljað beita sér fyrir
auknum opinberum framlögum, né
heimild til skólagjalda. Það er ljóst
að skólarnir verða að fá annað hvort,
og kannski einhvern timann, bæði.
Þetta var niðurstaða tveggja úttekta
í vor og í haust á gæðum og starfsemi
Háskóla íslands. Gæðin eru ágæt og
í raun og veru kraftaverk miðað við
þrönga stöðu skólans fjárhagslega.
Fjöldatakmarkanirnar sem orðnar
eru ansi miklar þegar 1.000 manns
er vísað frá. Þetta tónar alveg við
þá staðreynd að um leið og Háskól-
inn á Akureyri þarf að vísa frá 20%
umsækjanda þá loki hann tveimur
deildum."
Eftirbátar nágranna okkar
Björgvin segir íslendinga vera að
horfast í augu við alvarlegan sam-
drátt í háskólamenntun. „f stað
þess að auka útgjöldin verulega til
þess að jafna framlögin við það sem
þekkist annars staðar á Norðurlönd-
unum erum við að draga saman.
Þar eru útgjöld til háskóla 4-8 millj-
örðum hærri á ári. Þetta er sérstak-
lega alvarlegt með tilliti til þess hve
menntunarstigið hér á landi er lágt
og þjóðin ung. Hér er einungis einn
af hverjum tiu á vinnumarkaði með
háskólapróf, sem er margfalt lægra
en þekkist á Norðulöndunum og í
ríkjum Vestur-Evrópu. f fjósi þessa
eru þessar umfangsmiklu frávís-
anir alvarlegur vitnisburður um
ástandið. Ég vona að þetta verði til
þess að þrýstingur aukist á stjórn-
völd um að auka framlögin til
háskólastigsins."
Amerísk jólatré
netbudir.is
Skjár einn:
Fólk með Sirrý
af dagskrá
Sjónvarpsþátturinn Fólk með Sirrý
fer af dagskrá Skjás eins um ára-
mótin eftir að hafa verið fimm ár í
loftinu. Þátturinn hefur komið vel
út í könnunum og nánast árlega
tilnefndur til Edduverðfauna og
því kom þessi tilkynning mörgum
á óvart. Ekkert óvenjulegt á seyði
segir sjónvarpsstjóri Skjás eins.
Sameiginleg ákvörðun
Að sögn Magnúsar Ragnarssonar,
sjónvarpsstjóra Skjás eins, var það
sameiginleg ákvörðun að taka þátt-
inn af dagskrá. „Það var ákveðið
að hætta meðan hæst stæði. Hún er
búin að vera með þáttinn í fimm ár.
Hann hefur verið afskaplega vinsæll
og við erum ekkert að hætta með Sig-
ríði, við erum bara að taka þennan
Fallegustu tré í heimi
Margar stærðir
Margar gerðir
Landsins mesta úrval af jólatrjám
KRUDDA
Eyjarslóð 9 - Reykjavík
5528866 - .sknidda@sknidda.is
JÖRUNDUR
HUNDADAGA-
KONUNGUR
ævisaga.
Ævintýramaðurinn
sem lagði ísland
undir sig.
en nokkur
skáldskapur.
IS r.. ^ kni'iiiG IIhhní*«»s
|h' Pétur Poppari
Sendu eina fyrirsögn úr Blaðinu í dag
á holar@vbl.is og þú gætir eignast eintak
af bókinni Pétur Poppari sem fjallar um
nokkra spretti úr lífshlaupi Péturs Kristjáns
Blaðið
Bæjarlind 14-16
201 Kópavogur
blaöió
BÓKAÚTGÁFAN HÓLAR
Um 1.000 manns
synjað um skólavist
Björgvin G. Sigurðsson, alþingismaður, segir stöðuna alvarlega.