blaðið - 09.12.2005, Page 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005 blaðiö
Eldgos í Vanuatu
íbúar yfirgáfu heimili sín í öryggisskyni og öryggisviðbúnaður var
aukinn. Ekki var Ijóst hverniggosið myndi þróast síðdegis ígœr.
Eldgos hófst á hinni afskekktu
Ambae-eyju sem tilheyrir Vanuatu
í Suður-Kyrrahafi í gær og steig
reykur og gastegundir um þrjá kíló-
metra upp í loft.
Þúsundir íbúa í nágrenninu
þurftu að yfirgefa heimili sín þar
sem hætta var talin á aurskriðum
ef gosið heldur áfram eða magnast.
Svæði í nágrenni eldfjallsins hefur
verið skilgreint hættusvæði og skip
voru tilbúin til að flytja eyjarskeggja
á brott ef ástandið skyldi versna enn
frekar. Alls búa um 10.000 manns á
eyjunni.
Brad Scott, eldfjallafræðingur frá
Nýja Sjálandi sem hefur fylgst með
ástandinu á eyjunni, sagði síðdegis
í gær að gosið væri enn minniháttar
og brugðið gæti til beggja vona.
Annað hvort myndi draga smám
saman úr því eða það myndi færast
í aukana.
Sjúklingar hafa verið fluttir af
tveimur sjúkrahúsum á eyjunni og
hópar lækna og hjúkrunarfræðinga
eru í viðbragðsstöðu í höfuðborg-
inni Port Vila og munu fljúga til
Ambae ef meiriháttar eldgos hefst.
Tundurdufl í
miðbæ Gautaborgar
Hluti miðbæjar Gautaborgar var
girtur af í fyrrinótt eftir að í ljós
kom að gömul sprengja leyndist í
afla fiskibátar. Báturinn kom í höfn
seint á miðvikudag til að landa afla
sínum en fljótlega komu menn auga
á undarlegan hlut sem þeir töldu
að væri sprengja. Lögregla girti af
svæðið og myndaði aðskotahlut-
inn í bak og fyrir. Myndirnar voru
sendar sjóhernum til greiningar
og staðfestu sérfræðingar hersins
að hér væri líklega um tundurdufl
frá árum seinni heimsstyrjaldar að
ræða.
Tundurdufl frá tímum fyrri og
seinni heimsstyrjaldar finnast öðru
hverju í hafinu við vesturströnd Sví-
þjóðar. Svæði í rúmlega kílómetra
radíus í kringum duflið var lokað
af og sköpuðust verulegar umferðar-
tafir í miðbæ Gautaborgar í kjölfarið
á meðan sérfræðingar unnu að því
að gera tundurduflið óvirkt.
Loka þurfti hluta miðbæjar Gautaborgar
eftir að í Ijós kom að tundurdufl var f afla
sem hafði verið landað úr fiskibát.
hjwatch@simnet.is
43 DEMANTAR VERÐ 99.500.-
Glæsilegt úrlval af gull- og demantsskartgripum.
RAYMOND WEIL
GENEVE
www.raymond-weil.com
30 farast í árás
á strætisvagn
Tæplega 30 manns fórust og nærri 40
slösuðust í sjálfsmorðssprengingu í
írak í gær. Tilræðismaðurinn stökk
um borð í vagninn og sprengdi sig í
loft upp skömmu eftir að öryggis-
eftirliti lauk og vagninn var við það
að leggja af stað.
Flestir þeirra sem fórust voru um
borð í vagninum en einnig fórst fólk
sem var statt i nágrenninu. Lögregla
sagði að sprengingin væri óvenju
mannskæð þar sem gaskútar sem
stóðu við matsölustand við hlið
strætisvagnsins hefðu sprungið í
kjölfarið.
Sprengingin á sér stað viku fyrir
þingkosningar í landinu en varað
hefur verið við öldu ofbeldis í
aðdraganda þeirra. Fleiri spreng-
ingar áttu sér stað í höfuðborginni
í gærmorgun og meðal annars
fórst bandarískur hermaður þegar
sprengju var varpað á bílalest sem
hann var í.
Skotinn til bana
um borð í flugvél
Maður sem sagðist vera með
sprengju á sér um borð í flugvél á al-
þjóðaflugvellinum í Miami var skot-
inn til bana á miðvikudag. Engin
sprengja fannst og segja fulltrúar
yfirvalda að ekkert bendi til þess
að vélin hafi verið skotmark hryðju-
verkamanna. Ekki er ljóst af hverju
maðurinn sagðist vera með sprengju
á sér. Atvikið var það fyrsta af
þessu tagi síðan öryggisvörðum var
fjölgað til muna um borð í banda-
rískum farþegaflugvélum í kjölfar
mannskæðra hryðjuverkaárása á
New York og Washington 11. sept-
ember árið 2001.
Blair stjórnmála-
maður áratugarins
Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, hefur verið útnefndur stjórn-
málamaður áratugarins af EastWest-
stofnuninni, alþjóðlegri stofnun
sem vinnur að friði og öryggi í heim-
inum. Síðast hlaut Helmut Kohl,
kanslari Þýskalands, þennan heiður
á tíunda áratugnum. Talsmaður
samtakanna sagði að Blair hlyti verð-
launin vegna frammistöðu hans í
erfiðum verkefnum á Balkanskaga,
í írak, Afríku og víðar.
Gjafabréf
á ijósmyndanámskeið
Hvernig væri aó gleója
áhugaljósmyndarann i
fjölskyldunni eða í
vinahópnum meó því aó
gefa honum gjafabréf
á Ijósmyndanámskeið
í jólagjöf. Fjöldi
námskeióa eru í boói.
Ljosmyndari.is s 898 39u
Leðurkápur
Leðurjakkar
4
PELSINN m
Kirkjuhvoli • simi 5520160 mLl
Rigoberto Alcazar var skotinn til bana
eftir að hann sagðist vera með sprengju
um borð í flugvél á Miami-flugvelli.