blaðið - 09.12.2005, Síða 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005 blaðið
Mannræningjar veita
gálgafrest
Mannrœningjar í írak hafa frestað aftöku fjögurra vestrœnna friðarsinna til laugardags.
Þeirfarafram á aðföngum ífangelsum íraka og Bandaríkjamanna verði sleppt.
Menn sem rændu fjórum vestrænum
friðarsinnum í Bagdad hafa frestað
aftöku þeirra til laugardags. Áður
höfðu mennirnir hótað því að taka
fjórmenningana af lífi í gær. Menn-
irnir, sem tilheyra hópi sem kallar sig
Sverð réttlætisins, vilja að íröskum
föngum verði sleppt úr fangelsum
íraka og Bandaríkjamanna í staðinn
fyrir gíslana. Fjórmenningarnir sem
eru frá Bretlandi, Bandaríkjunum og
Kanada unnu á vegum alþjóðlegra
kristilegra friðarsamtaka í Bagdad.
Ræningjarnir hafa sakað fólkið um
að vera njósnarar en yfirmenn þess
hafna því.
I nýjasta myndbandi sem fjöl-
miðlum hefur borist af fjórmenning-
unum má sjá þá hlekkjaða í appel-
sínugulum samfestingum og með
bundið fyrir augun. í myndbandinu
lýsir Norman Kember, 74 ára breskur
ríkisborgari, því yfir að hann sé vinur
íraks. „Eg hef verið andsnúinn þessu
stríði, stríði Blairs, frá upphafi þess en
rtflíooJlJ rtJglio ýga ploio %íiLi0
-11.00V549.00tfA; 2.00 A141.00 -3.00^1,20
j jJLájJt u** ð*** \>® J■c’±i öjUi jj
Breski múslimaklerkurinn Abu Qatada hvatti mannræningja í frak aö láta lausa fjóra vest-
ræna gísla f sjónvarpsávarpi i gær.
nú bið ég hann og bresku ríkisstjórn-
ina um að gera allt sem í þeirra valdi
stendur til að stuðla að því að mér
verði sleppt og að íraska þjóðin verði
frelsuð undan kúgun,“ sagði Kember.
Sjö Vesturlandabúum
rænt að undanförnu
Þremur öðrum vestrænum gíslum
hefur verið rænt í landinu síðan 25.
nóvember. Jack Straw, utanríkisráð-
herra Bretlands, hefur ítrekað hvatt
mannræningjana til að láta gíslana
lausa og segir Breta vera tilbúna til við-
ræðna við mannræningjana. Hann
hefur meðal annars lagt áherslu á að
þeir séu friðarsinnar sem sé í mun að
hjálpa öðrum. Abu Qatada, róttækur
múslimaklerkur sem er í fangelsi í
Bretlandi, hvatti ræningjana einnig
til að láta gíslana lausa í sjónvarps-
ávarpi í gær enda væri það í samræmi
við trú þeirra. Að sögn breskra yfir-
valda bauðst hann sjálfur til að ávarpa
mannræningjana.
Rauöi kristallinn samþykktur
Rauður tígullaga kristall á hvítum
fleti verður alþjóðlegt merki hjálp-
arstarfsmanna og neyðarbíla og um
leið jafnrétthátt rauða krossinum og
rauða hálfmánanum. Þar með lýkur
deilu sem staðið hefur áratugum
saman. Rauða Davíðsstjarnan sem
Israelsmenn hafa notað fram að
þessu hefur ekki notið alþjóðlegrar
viðurkenningar. Hjálparstarfsmenn
og neyðarbílar sem bera merki
rauða krossins og rauða hálfmán-
ans hafa notið verndar samkvæmt
alþjóðalögum.
Þjóðir sem eiga aðild að Genfar-
sáttmálanum samþykktu merkið
með tveimur þriðju atkvæða og
sagði talsmaður svissneskra stjórn-
valda að það væri óheppilegt að ekki
hefði náðst almenn samstaða um
merkið.
Rauða Davíðsstjarnan hefur ekki
notið alþjóðlegrar viðurkenningar
og hafa arabaríki staðið í vegi fyrir
því að annað merki væri fundið.
Talið er að nýja táknið sé laust við
allar trúarlegar, þjóðlegar eða menn-
ingarlegar skírskotanir. Israels-
menn hafa lýst sig reiðubúna til að
nota merkið í verkefnum utan landa-
mæra ríkisins.
Rauöi kristallinn verður alþjóölegt merki
hjálparstarfsmanna og neyðarbíla líkt og
rauði krossinn og rauði hálfmáninn.
w
Burton snjóbretti
Cruzer kr. 27.900.-
Burton Profile
Lúffurkr. 4.590.-
Burton Húfa
kr. 2.490 st.
Anon subrosa
brettagleraugum kr5990.-
Burton Bindingar
Freeestyle 1.1900
Burton RED Shaun
WhiteTrace
Brettahjálmur kr. 6.990
CAP
RED
Vasaverkfæri
bullettool kr.1990.
GLUCOSAMINE & CHONDROITIN
EXTRA STERK LIÐAMÓT
GÓÐ HEILSA-GULLI BETRI
Gömul mynd af Ante Gotovina
Króati eftirlýstur af
stríðsglœpadómstólnum:
Gotovina
handtekinn
á Spáni
Króatinn Ante Gotovina hefur verið
handtekinn á Spáni en hann var
lengi eftirlýstur af stríðslæpadóm-
stól Sameinuðu þjóðanna. Carla
del Ponte, aðalsaksóknari dómstóls-
ins, greindi frá þessu í Belgrad í
gær. Gotovina höfuðsmaður var
formlega ákærður í júlí árið 2001
fyrir meint grimmdarverk gegn
uppreisnarmönnum Serba í árás
í ágústmánuði 1995 sem var ætlað
að endurheimta svæði sem upp-
reisnarmenn höfðu lagt undir sig.
Hann hefur verið á flótta síðan.
Það hefur staðið tilraunum
Króatíu til að sækja um inngöngu
í Evrópusambandið fyrir þrifum
hversu illa hefur gengið að hafa
hendur í hári Gotovina. Leiðtogar
Evrópusambandsins voru lengi
vel tortryggnir í garð króatískra
yfirvalda vegjia þess hve illa gekk
að hafa hendúr í hári manns sem
margir Króatar líta á sem þjóðhetju.
Serbía hefur sætt svipaðri gagnrýni
á alþjóðavettvangi vegna þess hve
illa hefur gengið að fanga Radovan
Karadzic, leiðtoga Bosníuserba, og
Ratko Mladic, herforingja hans.
Búast má við því að þrýstingur um
að þeir verði handsamaðir aukist
í kjölfar handtöku Gotovina.
Helgartilboð barnanna
690 kr
auiznosSuB
MMMM...GLÓÐAÐUR
Samloka gos
og smákökukrukka
sem gefur frá sérhllóö dyramia
Burton Bindingar
Freeestyle 11.900.
/
/ \ \
FJALLAHJOLABUÐIN FAXAFENI 7
S: 5200 200 MÁN - FÖS. KL. 9-18. LAU. KL. 10-14 WWW.gap.ÍS
Leðurskór með flece fóðri, bæði fyrir
hana og hann, sem inniskór, í leikfimi,
ískíðaskóinn ogfl.
TÍSKUVERSLUNIN Smart
Grímsbæ viö Bústaöarveg • ÁrmÚla 1 5
Hafnarstræti 106 600 Akureyri
Sími 588 8050/588 8488/462 4010
email: smartgina@simnet.is