blaðið - 09.12.2005, Side 12
12 I FRÉTTASKÝRING
FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005 blaöið
Fjárlög Evrópusambandsins
í uppnámi og Bretar einangrast
Fulltrúar aðildarríkja Evrópusam-
bandsins hafa lýst yfir óánægju
sinni með tillögur Breta um
fjárhagsáætlun sambandsins fyrir
tímabilið 2007-20x3 sem ræddar
verða á leiðtogafundi sambandsins
í næstu viku. Bretar bjóðast til að
auka greiðslur sínar í sameigin-
lega sjóði ESB gegn því að meðal
annars verði dregið úr þróunara-
stoð við tíu nýjustu aðildarríkin.
Frakkar og fleiri ríki hafa krafist
þess að afsláttur sem Bretar hafa
fengið á greiðslum til ESB verði
lækkaður en Bretar segja það aftur
á móti ekki koma til greina nema
til komi grundvallarbreytingar á
landbúnaðarstefnu ESB.
Bretar, sem fara með forsæti í
ESB til ársloka, kynntu á mánudag
tillögur sínar um auknar greiðslur
í sameiginlega sjóði sambandsins.
José Manuel Barroso, forseti fram-
kvæmdastjórnar ESB, hafnaði þegar
í stað tillögunum og sagði að þær
væru óásættanlegar, óraunhæfar
og hentuðu frekar „lítilli Evrópu en
þeirri sterku Evrópu sem við þurfum
á að halda.“ Leiðtogar aðildarríkja
tóku flestir í sama streng og Barroso.
Pedro Solbes, efnahagsmálaráðherra
Spánar, sagði að tillögurnar væru „dá-
samlegt skjal fyrir Bretland" en ekki
fyrir önnur lönd. Peer Steinbruck,
fjármálaráðherra Þýskalands, sagð-
ist hafa litla trú á því að samning-
urinn yrði samþykktur og Anders
Fogh Rasmussen, forsætisráðherra
Danmerkur, benti á að fyrirhugaður
niðurskurður myndi einkum bitna
á fátækustu ríkjum sambandsins.
Pólverjar, Ungverjar og Frakkar höfn-
uðu einnig tillögunum en Holland
og Tékkland voru varfærnari í við-
brögðum sínum.
Ljóst er að tillögurnar myndu
koma ólíkum aðildarríkjum misvel.
Mark Mardell, sem ritstýrir fréttum
um málefni Evrópu hjá breska rík-
isútvarpinu, segir að Þjóðverjar og
Hollendingar myndu standa betur að
vígi eftir en áður og að Svíar, Frakkar,
Spánverjar og Italir standa nokkurn
> : liai
FRÉTTA-
SKÝRING
EINAR ÖRN JÓNSSON
veginn í stað. Lúxemborgarar og
Belgar myndu aftur á móti tapa á
samningnum.
Auka framlag sitt um
einn milljarð evra
Bretar buðust til að auka framlög
sín í sameiginlega sjóði um einn
milljarð evra (76 milljarðar íslenskra
króna) á ári næstu sjö árin. Með því
segir Jack Straw, utanríkisráðherra
Bretlands, að Bretar vilji greiða rétt-
látan hluta þess kostnaðar sem hlýst
af stækkun sambandsins. I staðinn
fara þeir meðal annars fram á að
dregið verði verulega úr þróunar- og
uppbyggingaraðstoð sambandsins
en það eru einkum tíu nýjustu að-
ildarríkin sem njóta góðs af henni.
Bretar hefðu fremur kosið að skera
niður styrki til landbúnaðar sem
mynda um 46% fjárlaga ESB en það
mætti harðri andstöðu nokkurra að-
ildarríkja, þar á meðal Frakklands.
Þróunaraðstoð er næststærsti fjár-
lagaliðurinn og því lá beinast við að
skera hana niður í staðinn.
Samkvæmt tillögum Breta yrði
þróunaraðstoðin skorin niður um
10% en þess í stað yrði ríkjunum
TONLISTARHATIÐ A JOLAFOSTU I HAI.LGRIMSKIRKJU Z 0 0 S
JOHANN SEBASTIAN BACH
BWV 248
Fyrsti heildarflutningur ó Islandi með barokkhljódfterum
jork Garðarsdótlir 1 0. deS. Einfnhll-I IIT
Krisfjáiisdóttir . " Laugardagur kl. 17 ÍAalllUlUl 1 lll
Hulda Bjórk Garðarsdóttir
Sesselja Kristjánsdóttir
Eyjólfur Eyjólfsson .1
Ágúst Ólafsson ..
S< hola cantortun
Alþjóóleg.t barokksveitiu
frá Dcn Haag i Hollandi
Stjórnandi: Höröiir Áskelsson
11. des.
Sunnudagur kl. I S
11. des.
Sunnudagiir kl. 18
Kantötur I-III
Kantotur IV-VI
Miöaverö: íOOO / 2S00 kr. • jólaór.itóríutvenna (Tyrir |>á sem vílja heyra Jólaóratóríuna alla): 5000 k
Miöasala í Hallgrímskirkju • sími S10 1000
LISTVINAFÉLAG HALLGRÍMSKIRKJ U
Frá Póllandi. Margir óttast að niðurskurður á framlögum til þróun
araðstoðar Evrópusambandsins myndi koma harðast niður á nýj-
um aðildarríkjum sambandsins sem jafnframt eru þau fátækustu.
José Manuel Barroso, forseti fram-
kvæmdastjórnar ESB, hefur hafnað tillög-
um Breta sem hann telur óásættanlegar
og óraunhæfar.
gert kleift að nálgast fé eftir öðrum
leiðum. Bretar segja að niðurskurður
fjármagns til nýrra aðildarríkja
myndi ekki breyta miklu í raun þar
sem ekkert ríki hafi fullnýtt þessa
sjóði hingað til. Sem dæmi má nefna
að Pólverjar hafa aðeins notað um
5% þess fjármagns sem þeim var
úthlutað fyrir tímabilið 2004-2006.
Bretar leggja ennfremur til að bætt
verði fyrir niðurskurðinn með því að
losa um reglur og aðgerðir sem miða
að því að auðvelda ríkjum að nýta sér
það fjármagn sem þau fá. Meðal ann-
ars fengju þau þrjú ár til að eyða pen-
ingunum í stað tveggja nú og heimilt
yrði að nýta þá til húsnæðisverkefna.
Jack Straw, utanríkisráðherra Bret-
lands, sagði að tillögurnar gerðu ráð
fyrir að „geysiháar fjárupphæðir"
rynnu til þróunarhjálpar í nýjum
aðildarríkjum eða sem næmi jafn-
virði tvöfaldri þeirri upphæð sem
varið var til uppbyggingar Evrópu í
gegnum Marshall-aðstoðina í lok síð-
ustu heimsstyrjaldar.
Umdeildur afsláttur
Deila stendur einnig um afslátt
sem Bretar hafa fengið á greiðslum
í sameiginlega sjóði Evrópusam-
bandsins undanfarin 20 ár. í fyrra
nam afslátturinn 5,3 milljörðum
evra og gert er ráð fyrir að hann
muni nema um 7,1 milljarði evra
árlega frá 2007 til 2013. Afslætt-
inum var komið á árið 1984 í forsæt-
isráðherratíð Margaret Thatcher.
Honum er einkum ætlað að draga
úr fjárlagahalla landsins þar sem
Bretar græða ekki mikið á niður-
greiðslum sambandsins. Jack Straw,
utanríkisráðherra Breta, hefur sagt
að ekki komi til greina að gera
neinar grundvallarbreytingar á af-
slættinum nema einnig verði gerðar
grundvaliarbreytingar á landbún-
aðarstefnu sambandsins. Það eru
einkum Frakkar sem krefjast þess
að afsláttur Breta verði lækkaður
en franskir bændur fá mest af land-
búnaðarstyrkjum sambandsins.
Samkvæmt tillögunum mun
heildarupphæð fjárlaga nema 847
milljörðum evra á tímabilinu en
áður höfðu Lúxemborgarar, sem
fóru með forsæti í ESB á fyrri helm-
ingi ársins, lagt til að hún yrði 871
milljarður evra.
Bretum er mjög í mun að ganga frá
fjárlagaáætlun Evrópusambandsins
fyrir tímabilið 2007 - 2013 áður en
önnur þjóð tekur við forsæti í sam-
bandinu í byrjun næsta árs. Viðræður
um áætlunina sigldu í strand á leið-
togafundi ESB í júní á þessu ári. Jack
Straw sagðist ekki vera vongóður um
að samkomulag um fjárlögin næðist
eftir fund utanríkisráðherra Evrópu-
sambandsins í Brussel á miðvikudag.
Boðað var til fundarins í því skyni að
reyna að leysa ágreininginn fyrir leið-
togafundinn í næstu viku.
Njóta ekki lengur sama velvilja
og áður í Austur-Evrópu
Talið er að með tillögunum missi
Bretar þann stuðning og velvilja sem
þeir hafa notið meðal nýrra aðildar-
ríkja Evrópusambandsins sem lutu
stjórn kommúnista á árum kalda
stríðsins. Alls er talið að framlög til
þróunaraðstoðar verði skorin niður
um 150 milljarða evra á tímabilinu.
Piotr Nowin a-Konopka, sem er í for-
svari fyrir Póllandsdeild Schuman-
stofnunarinnar, segir tillögurnar
hafa skaðað ímynd Bretlands. „Þær
brjóta í bága við reglur Evrópusam-
bandsins um samheldni þar sem þær
hafa í för með sér að það mun taka fá-
tækari lönd lengri tíma að ná því stigi
sem ríku aðildarríkin eru á,“ segir
hann.
Andres Kasekamp, yfirmaður Al-
þjóðamálastofnunar Eistlands tók í
svipaðan streng. „Bretar voru helstu
bandamenn nýju ríkjanna í umræð-
unni um framtíð Evrópu. Fjárlagatil-
lögurnar minna okkur óþyrmilega
á hvar hagsmunir þungavigtarríkj-
anna í Evrópusambandinu liggja,“
sagði hann.
Þá voru Bretar í hópi þriggja eldri
ríkja ESB sem veittu íbúum nýju
ríkjanna óheftan aðgang að atvinnu-
markaði sínum. Síðan hafa um
300.000 manns frá þessum ríkjum
haldið til Bretlands í atvinnuleit.
„Pólverjar kunnu vel að meta hið
vinsamlega viðhorf Breta á meðan á
aðlögunartímabilinu stóð og opnun
breska atvinnumarkaðarins," segir
Lena Kolarska-Bobinska, yfirmaður
Alþjóðsamskiptastofnunar í Varsjá
í Póllandi. „En nú finnst þeim sem
það séu ekki um nein varanleg banda-
lög eða vináttu að ræða i Evrópusam-
bandinu. Allt byggist á bandalögum
sem komið er á í einhverjum sér-
stökum tilgangi,“ sagði hún.
Leiðtogafundur Evrópusambands-
ins verður haldinn 15. og 16. desember
næstkomandi.
Síðasti móttökudagur
jólapantana er lO.des.
Margfeldi aðeins kr,169.-núna!
fOJFvörulistinn
^jólalistinn frír
^meðan blrgðlr endast!
AddÍtÍOnSfatalistinn
www.bmagnusson.is
Pöntunarsími 555-2866
bm@bmagnusson.is
• Verslun
Jóla og gjafavara í mlklu úrvali
Flottur fatnaður á alla fjölskylduna
á sama verði og erlendis!
B.MAGNUSSON
Austurhrauni 3,Gbæ/ KAYS
Opið virka daga 10-18, og á morgun lau. 10-18