blaðið - 09.12.2005, Qupperneq 14
14 I ÁUT
-4
blaðið___________________________________
Útgáfufélag: Ár og dagur ehf.
Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson.
Ritstjóri: Karl Garðarsson.
TÍMASPRENGJUR í ÞÉTTBYLI
Um götur höfuðborgarsvæðisins aka á degi hverjum tugir tifandi
tímasprengja, dulbúnar sem eldsneytisflutningabílar. Fram að
þessu hafa menn blessunarlega sloppið við óhöpp vegna þeirra
og vonandi verður svo áfram, en er ástæða til þess að taka meiri áhættu
í þeim efnum en brýn nauðsyn er til?
Fram hefur komið að eldsneytisflutningar um höfuðborgarsvæðið hafi
aukist mjög mikið á undanförnum mánuðum og eru nú þúsundir tonna
af eldsneyti fluttar um götur og torg í viku hverri. Við þetta hefur slysa-
hættan aukist verulega, ekki aðeins vegna hugsanlegra eldsvoða heldur
einnig hvað mengunarslys áhrærir, að ógleymdu ónæði íbúa og aukinni
loftmengun.
Þessa aukningu má rekja til þriggja þátta: Aukinnar eldsneytisneyslu
með auknum bílafjölda, tvískiptingu dísilolíu sem kallar á fleiri og
lengri ferðir og þess að þotueldsney ti fyrir borgaralegt flug á Keflavíkur-
flugvelli er nú geymt í olíubirgðastöðinni í Effersey.
Það er hreint og beint hlálegt að þotueldsneyti sé nú skipað upp í Eff-
ersey, geymt þar á tönkum og svo ekið í gegnum höfuðborgarsvæðið
endilangt og suður til Keflavíkurflugvallar eftir þörfum. Á sama tíma
hefur Bandaríkjaher - sem ekki hefur haft sérstakt orð á sér fyrir um-
hverfisvernd - þann háttinn á að þotueldsneyti er skipað upp í Helgu-
vík. Þaðan liggja leiðslur upp að flughlaði, þannig að aldrei er ekið með
eldsneytið eitt eða neitt. Ekkert er því til fyrirstöðu að þotueldsneyti
fyrir borgaralegt flug sé höndlað á sama hátt. Þannig mætti leysa stóran
hluta vandans á einfaldan hátt. í framhaldinu mætti svo huga að breyttu
fyrirkomulagi á birgðahaldi og flutningum á öðru eldsney ti á höfuðborg-
arsvæðinu, en áætlanir í þá veru hafa verið fastar í borgarkerfinu í tvö ár
án þess að neitt hafi verið aðhafst.
Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi minnihlutans í Reykjavík, hefur
vakið athygli á þessu við litlar undirtektir meirihlutans. Hér er þó ekki
um pólitískara mál að ræða en svo, að í Hafnarfirði hefur Lúðvík Geirs-
son, bæjarstjóri Samfylkingarinnar tekið málið upp og raunar óskað
þess að samgönguyfirvöld láti gera áhættugreiningu vegna olíuflutninga
á landinu öllu, enda gefi áætluð tíðni olíuóhappa ærið tilefni til þess.
Hér þurfa sveitarfélög og ríki að taka höndum saman fljótt og örugglega.
Hér er svo augljóst hagsmunamál allra á ferðum, að engin ástæða er til
þess að blanda flokkspólitiskum þrætum í málið.
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingan Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur.
Aðalsími: 5103700. Símbréf áfréttadeild: 510.3701. Símbréf á auglýsingadeild: 5103711.
Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is.
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: íslandspóstur.
L
04 RÉTTA JÓLAMATSEÐILL kr: 3.900
4 RÉTTA VILLIBRÁÐARMATSEÐILL
kr: 4.900
Borðapantanir í
síma 5626222 eða angelo@angelo.is
FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005 blaöiö
>U w ÍKKÍ ,4D Djétcs! 'E'R &KMJ
zm eu Búít/y m sj/iR&e wmwM
. IVRÓPDFIÍÍ MEt) ÖTtJLU j
ÆémSSa /í uoi II
3
Boðberar óljósra,
mögulegra tíðinda
Eitt af því sem ég hræðist meira en
annað eru sögur sem hefjast á orð-
unum: „Ég man þá tíð...“. Venjulega
fylgja í kjölfarið hástemmdar og
langar lýsingar af því hversu allt var
miklu betra og dásamlega rómant-
ískt í gamla daga. Ég hef setið undir
ýtarlegum lýsingum af dásemdum
sveitalífsins fyrir tíma rafmagns
og sjónvarps, þegar unga fólkið
vann saman á engjunum þar sem
það hitti manneskjuna sem það átti
eftir að eyða lífinu með. Ég hef líka
heyrt sögur frá síldarárunum, þar
sem fólk talar með söknuði um það
hvernig það vann aldrei minna en 12
tíma á sólarhring, en hafði nú samt
tíma til að fara á böll og skemmta
sér að því virðist að minnsta kosti
aðra hvora nótt. Það er talað um
allan peninginn sem fólk náði að
vinna sér inn með stritinu - þá hafi
nú verið gaman að lifa.
Þá verða sagðar ríkisf réttir
Ég sat undir einni slíkri sögu á dög-
unum hjá öldruðum frænda mínum
sem hafði náð að króa mig af í einu
fjölskylduboðinu. Sá hafði fengið
eitthvað veður af þeirri staðreynd
að ég væri farinn að vinna á fjöl-
miðli og hafði á því langar og miklar
skoðanir. Hann rifjaði upp þá tíma
þegar ekkert sjónvarp var á fimmtu-
dagskvöldum og ríkismiðlarnir fóru
í mánaða frí yfir sumarmánuðina.
Einnig var rætt um stemmninguna
í sveitinni þegar flokksmálgagnið
kom með mjólkurpóstinum tvisvar
í viku og var lesið upp til agna. Þá
sagði RUV fréttir yfir hafragraut og
slátri klukkan 12 á hádegi - og síðan
aftur yfir kubbasteik með brúnni
sósu eða jafnvel útvötnuðum salt-
fiski klukkan sjö á kvöldin. Eftir
það var síðan hægt að horfa á fréttir
í sjónvarpi (nema á fimmtudögum
og yfir heitasta tíma sumarsins).
Frændinn var á þeirri skoðun að nú
væru miðlanir orðnir allt of margir
og engin leið að fylgjast með öllu
sem væri í gangi.
Aðalbjörn Sigurðsson
Boðberi óljósra spádóma
Ég varð ákaflega hugsi yfir orðum
þessa aldraða herramanns. Ég hef
nefnilega verið að velta því fyrir
mér hvert fréttafíkn nútímamanns-
ins og stöðug fjölgun fjölmiðla væri
búin að koma okkur. Mér sýnist
nefnilega að stórum hluta af frétta-
tímum nútímans sé ekki eytt í að
segja fréttir, heldur að boða óljósar
spár um mögulegar hörmungar. I
gær var meðal annars sagt frá því
að kannski, hugsanlega - ekki lík-
lega - myndi loftsteinn rekast á
jörðina árið 2036. „Það er ekki hægt
að segja til um hversu mikil hætta
er á að hann rekist á jörðina. En
hún er ekki engin,“ var haft eftir
einhverjum útlendum prófessor. Ég
geri ekki ráð fyrir að mörgum hafi
brugðið við slíka ógnarfrétt - ef
frétt skyldi kalla. Ég hef einnig verið
að hugsa um fréttir af Hong Kong
flensunni fyrir tveimur til þremur
árum þegar stöðugt voru sýndar
myndir af asísku fólki með ryk-
grímur sem greinilega var í bráðri
lífshættu vegna mögulegs flensu-
faraldurs. Slíkar fréttir eru sagðar
reglulega um þessar mundir, meðal
annars í tengslum við mögulegan
fuglaflensufaraldur. Fréttatímar nú-
tímans eru að breytast í afsprengi
truflaða mannsins á götuhorninu í
borgum fortíðarinnar, sem stöðugt
boðaði yfirvofandi heimsendi. Boð-
berar nútímans eru reyndar heldur
betur klæddir og það er tekið meira
mark á þeim - líklega vegna þess að
boðskapur þeirra byggir á annars
konar trú en áður fyrr - trúnni á
óskeikul vísindin. Ef virðulegur vís-
indamaður heldur því fram að fugla-
flensufaraldur muni dynja yfir á
næstu misserum þá er á það hlustað.
Það sem meira er - af því eru fluttar
fréttir.
Höfundur erfréttastjóri á Blaðinu
Klippt & skorið
Dagur Bergþóruson Eggertsson,
hinn óháði borgarfulltrúi R-listans,
er nú nánast
búinn að lýsa yfir fram-
boði í efsta sætið í próf-
kjöri Samfylkingarinnar.
Bæði Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir og Össur
Skarphéðinsson hafa
hvatt mjög til þess að
Dagur gefi kost á sér til að ieysa flokkinn úr
þeirri ánauð að þurfa að velja á milli Stein-
unnar V. Óskarsdóttur og Stefáns Jóns
Hafstein. Dagur er helsti hugsuður Reykja-
víkurlistans (skipulagsmálum, enda formaður
skipulagsnefndar borgarinnar, og ber ekki
minnsta ábyrgð á Hringbrautinni sem þykir
ein mesta vitleysa i skipuiagsmálum Reykja-
víkur. Skammt er síðan DV birti forsíðuviðtal
við Dag þar sem letrað var stríðsletri eftir
honum að Dagur væri á leið í nám erlendis og
ætlaði ekki að fara í framboð til borgarstjórnar.
Hjá nýja borgarstjóraefni Samfylkingarinnar
stendur sumsé allt eins og stafur í bók, líkt og
hjá pólitískri guðmóður hans!
En þaðerviðarsem sveitarstjórnamálin
eru að hitna. Sunnlenska fréttablaðið
greinir frá því að
Eyþór Arnalds, pennavinur
Blaðsins, sé fluttur búferlum
í Hreiðurborg í Sandvikur-
hreppi hinum forna.
Eyþór er ættaður úr Árnes-
sýslu og nefnir Sunnlenska, að móðursystir
hans sé Ingibjörg Eyþórsdóttir, húsfreyja
(Kaldaðarnesi. Þetta setur blaðið svo i sam-
hengi við boðað prófkjör Sjálfstæðisflokksins (
klipptogskond@vbUs
Árborg og segirorðróm ganga um að leitað hafi
verið til Eyþórs um að leiða listann (komandi
kosningum. Sjálfstæðisflokkurinn reið ekki
feitum hesti frá síðustu kosningum og fékk að-
eins tvo menn kjörna og mun nokkur hreyfing
vera um það meðal sjálfstæðismanna (Árborg
aö fá unga og óþreytta menn á listann.
K
lippari les að umboðsmaður Al-
þingis hafi óskað eftir skýringum
bæjaryfirvalda
f Vestmannaeyjum á upp-
sögn garðyrkjustjóra þar
( bænum. Hvernig er það,
hefur umboðsmaður Al-
þingis aldrei til Vestmanna-
eyja komið? Ef hann liti í aðeins ( kringum
sig þar, þyrfti hann tæpast að leita frekari
skýringa.
I
' r V