blaðið - 09.12.2005, Qupperneq 16
16 I VEIÐI
FðSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005 blaðiö
PHILIPS
HÁGÆÐA HÁRVÖRUR
TILBOÐ
Philips HP4881
Einfaldur og kraftmikill
1900w JetSet HÁRBLÁSARI
meö 3 hita- og hraðastillingum
og köldu lofti. Dreifihaus fylgir.
2.995
FULLTVERÐ 3.995
r
Philips HP4892
Professional hárblásari með AC
mótor eins og notað er á hárgreiðslu-
stofum. lon tækni sem afrafmagnar
hárið og 6 hita- og hraðastillingar.
Toppurinn frá Philips.
TILBOÐ
4.995
FULLTVERÐ 5.995
I
/:
3.995
FULLTVERÐ 4.995
Philips HP4696
8 taeki í 1. Sléttujárn, krullujárn, krullubursti,
krumpujám og fleira. Allt með vandaðri keramik
húð sem fer vel með hárið. Frábært sett.
TILBOÐ
TILBOÐ
4.995
FULLTVERÐ 5.995
Philips HP4648
Hágæða sléttujám með Keramik húð og ION
tækni sem afrafmagnar hárið. LCD skjár sem
stilla má hita á og hitnar á aðeins 30
sekúndum. Það allra besta sem völ er á.
HAGKAUP
a2> verffo'
SÆTÚNI 8 REYKJAVlK • SlMI 569-1500 I UMBOÐSMENN
EYRARVEGI 21 SELFOSSI • SlMI 480-3700 I UM LAND ALLT
OPIÐ ALLA DAGA TIL JÓLA! OPIÐ ALLA DAGA TIL JÓLA!
Veiðikortið:
Vötnum
Veiðikortið er komið út aftur en í
fyrra var það gefið út í fyrsta skiptið
og gekk feiknavel. Margir keyptu
kortið og veiddu víða í vötnum
landsins. Við heyrðum aðeins í Ingi-
mundi Bergssyni þegar hann var á
hlaupum að dreifa kortinu í veiði-
búðir fyrir jólin.
Veiðikortið er fyrir alia aidurshópa og einn og
einn lax er bara tii að kæta unga veiðimenn.
fjölgar !
Þið eruðsnemma með kortið íár, miklu
fyrren ífyrra?
„Já, við ákváðum að vera með Veiði-
kortið 2006 klárt fyrir jólin þannig að
veiðimenn geti nú sett veiðileyfi á við-
ráðanlegu verði á óskalistann. Salan
hefur farið vel af stað og nú þegar hafa
margir keypt kortið til að gefa vinum
og vandamönnum. Einnig hentar það
mjög vel að skipuleggja sumarið yfir
vetrarmánuðina auk þess sem hægt er
að fara í dorgveiði á mörgum stöðum.“
Þettagekk velfyrir ári síðan ogþið eruð
að bæta við veiðivötnum: Þingvalla-
vatni, Hraunsfirði og Ljósavatni. Eru
þið ánægðir meðþessa viðbót?
„Við erum mjög ánægðir með nýju
vötnin. Þingvallavatn hefur til að
mynda verið eitt vinsælasta veiðivatn
landsins. Hraunsfjörður er mjög
vaxandi veiðisvæði og þar veiðist sjó-
bleikja, sjóbirtingur og lax. Ljósavatn
er kærkomið fyrir Norðlendinga og
er t.d. ekki nema rúmlega hálftíma
akstur þangað frá Akureyri."
Þingvallavatnið kemur sterkt inn, er
það ekki?
„Þingvallavatnið í landi þjóðgarðsins
kemur mjög sterkt inn. Einnig má
benda á að Þingvallanefnd hefur stór-
bætt aðstöðu við vatnið með nýju
aðgerðarhúsi fyrir veiðimenn og
einnig verður komið upp flotbryggju
við Vatnskotið til að auðvelda fötl-
uðum aðgengi að vatninu.“
Blaðið með kortinu ífyrra var í stóru
broti, núna er það minna. Er það til
þess að veiðimenn geti tekið það með
sér í veiðitúrinn?
„Við höfum fengið ábendingar frá kort-
höfum um að það hentaði betur að
vera með bæklinginn í A5 broti til þess
að hægt væri að geyma hann í hanska-
hólfinu eða í veiðivestinu. Að sjálf-
sögðu breyttum við stærðinni þannig
að bæklingurinn nýtist betur.“
Er búið að dreifa mikið afkortum?
„Það er búið að dreifa kortunum á
flestar bensínstöðvar ESSO sem og
í flestar veiðivöruverslanir. Einnig
höfum við selt mikið í gegnum Inter-
netið á heimasfðu Veiðikortsins.“
Fyrsta námskeiðið í stangasmídi
Það þykja nokkur tímamót þegar
boðið er upp á námskeið í stanga-
smíði en núna eftir áramótin
stendur Veiðihornið einmitt fyrir
slfku námskeiði.
,Við auglýstum fyrirhugað námskeið
á vefnum okkar og það hafa þegar
um 30 þátttakendur skráð sig. Undir
tilsögn munu áhugasamir smíða eða
setja upp sínar eigin flugustangir,“
segir Ólafur Vigfússon hjá Veiðihorn-
inu, sem stendur fyrir námskeiðinu.
„Notast er við „blank“ eða stangar-
efni frá SAGE en mörg undanfarin
ár hefur SAGE verið mest keypta
flugustöngin á íslandi. Þátttakendur
geta valið úr ýmsum gerðum grafíts
frá SAGE en auk þess valið um lengd
stanganna, lfnuþyngd o.s.frv.,“ segir
Ólafur ennfremur.
Námskeiðið er enn í undirbúningi
og liggur endanlegur kostnaður ekki
fyrir enn sem komið er. Námskeiðin
fara fram í janúar og febrúar en allar
nánari upplýsingar eru á vef Veiði-
hornsins, www.veidihornid.is.
Mörg flughnýtinganámskeið hafa
verið haldin í gegnum tíðina en ekki
námskeið um stangasmíði og verður
fróðlegt að sjá hvernig tekst til. Hug-
myndin er góð.
'Jua’r af Sesiu
faxuetð/dm íancfs/ns
SPORÐUR chf
I.ágmúla 7
108 Keykjavík
Sími: 587 OHOO Fax: 568 0615.
spordurCw'spordur.is
Jólaaiöf veiðimannsins!
Veiðikortið 2006
Kortiö gildir sem veiöileyfi
i 23 veiöivötn vítt og breitt
um landiö. Veiðikortiö er
fjölskylduvænt og stuðlar
aö notalegri útiveru.
Ný vötn eru:
- Mngvallavatn fyrir landi
þjóögarös
- Liósavatn
- Hraunsfjöröur
Nánari upplýsingar um önnur
vötn eru á vef Veiöikortsins
www.veidikortid.Í8
Gefðu gleðilegt sumar í jólagjöf!
Sölustaðir: ESSO stöðvarnar - veiðibúðir og víðar
Frl heimsending á netpöntunum - www.veidikortid.is
Cssol
Heiðargces:
Lítill hópur sást
á Auðkúluheiði
Nú um næstu helgi verða grágæsir
taldar aftur á Bredandseyjum
og er það í fyrsta sinn sem það
er gert í desember. Talningin er
gerð vegna þeirrar óvissu sem
virðist fylgja hefðbundnum taln-
ingum og er tilgangur hennar að
athuga hvort hægt er að fá betri
áætlun á stærð stofnsins. Því
leitar Náttúrufræðistofnun enn
til skotveiðimanna um aðstoð um
að láta vita ef þeir verða varir við
grágæsir á næstu dögum. Viðbrögð
við samskonar beiðni í október
og nóvember voru mjög góð. Þá
fréttist reyndar aðeins af um
1.500 heiðagæsum, mest í Skaga-
firði og Húnavatnssýslum auk
Suðurlands. Svo til ekkert sást til
heiðagæsa á hálendinu, einungis
lítill hópur sást á Auðkúluheiði.
Fyrstu áædanir benda til að a.m.k.
4.000 gæsir hafi verið hér á landi
þegar umrædd talning fór fram.
HEITUR OG ÞURR I
tcrmo
SPORTVÖRUGERÐIN
Skipholt 5, 562 8383