blaðið - 09.12.2005, Blaðsíða 20
20 I SNYRTIVÖRUR
FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005 blaöiö
Góð förðunarráð fyrir helgina
Glæsileg úti
Helgin er framundan og eflaust
hyggja margar glæsilegar konur
á skemmtilegt kvöld. Alla jafna
fylgir þeirri skemmtun förðun
áður en farið er út. Það er löngu
vitað að kvöldförðun er ólík
dagförðun að því leyti að hún er
dekkri og meira áberandi. Þegar
konur eru á leið á hressandi ball
eða fjörugt partí vilja þær jafn-
vel líta enn betur út en venjulega
enda vita allir að það jafnast ekk-
ert á við fallegan kvenmann. Hér
eru nokkur eiturgóð ráð fyrir
partíförðunina sem slá í gegn.
Förðun sem lítur vel út í birtu
getur litið út fyrir að vera dauf og
upplituð í myrkrinu á skemmtistöð-
unum. Notaðu hlýrri og dýpri liti í
kvöldförðun en þú myndir gera að
degi til.
Ef þú telur þig vera of búlduleitna
settu þá kinnalit eða sólarpúður á
efsta hluta kinnbeinanna, nálægt
nefinu. Liturinn á að lýsast þegar
nær dregur hlutanum sem þú telur
vera búlduleitan.
Ef þú telur andlit þitt vera of
mjóslegið skaltu búa til meiri vídd.
Settu kinnalitinn undir kinnbeinin,
Síðasti móttökudagur
jólapantana er lO.des.
Margfeldi aðeins kr.l69.-núna!
©^vörulistinn
_ Jóialistinn frír
^meðan blrgðir endast!
AddÍtÍOnSfatalistinn
www.bmagnusson.is
Pöntunarsími 555-2866
bm@bmagnusson.is
Verslun
Jóla og gjafavara í miklu úrvali
Flottur fatnaður á alla fjölskylduna
á sama verði og erlendis!
B.MAGNÚSSON
Austurhrauni 3fGbæ/ KAYS
Opíð virka daga 10-18, og á morgun lau. 10-18
Furðuleg fyrirbæri
og óskýranlegir atburðir
Spennandi og forvitnilegar frásagnir
Hið
ö
á lífinu
fjarri nefinu. Jafnaðu litinn út, alla
leiðina að gagnauganu.
Ef þú telur andlit þitt vera fer-
kantað og með þunga kjálkalínu þá
geturðu mýkt kjálkalínuna með því
að skyggja svæðið. Notaðu kinnalit
til að jafna línuna að ferkantaða
svæðinu.
Ef þú ert með mikla undirhöku
þá getur mýkt hana með því að
jafna út ljósrauðan lit með kinn-
unum. Kjálkalínan verður meira
áberandi á þennan hátt.
Til að leggja áherslu á kinnbeinin
á kvöldin er hægt að nota farða sem
er tóni ljósari en þinn venjulegi
farði. Berðu hann á topp kinnbein-
anna og horn nefsins en jafnið farð-
ann vel út.
Þú skalt aldrei vera með augn-
skugga í sama lit og augun þín né
skaltu vera með varalit í sama lit
og naglalakkið. Útkoman verður of
skipulögð og rökrétt.
Ef þú ert með gerviaugnhár þá
skaltu gera þau raunverulegri með
því að setja maskara á þau ásamt
þínum augnhárum eftir að þau eru
komin á.
Ef litarhaft þitt er grátt þá skaltu
ekki nota mjög ljósan eða mjög
bleikan farða. Forðastu gula og
græna augnskugga þar sem þessir
litir gera þig föla. Leitaðu í hlýjan
brúnan farða og fallega bláa augn-
skugga. Mildir varalitir eru bestir.
Ef þú ert með fölt litarhaft þá
skaltu ekki nota bleikan farða.
Veldu náttúrulegan farða og leit-
aðu eftir náttúrulegu útliti. Forð-
ist mjög dökka augnskugga eða
varaliti. Þeir gera þig þreytulega.
Notaðu rauðbrúna og brúna augn-
skugga en mildari lit á kinnar og
enni.
Ef þú ert með þunnar varir þá
skaltu setja varalit aðeins fyrir
ofan efri vör þína og aðeins fyrir
neðan neðri vörina. Notaðu vara-
blýant til að fullkomna línurnar.
Varir lita út fyrir að vera þrýstn-
ari ef notaður er dekkri vara-
litur í miðju varanna heldur en í
útlínunum.
NR.1 i AMERÍKU
PaJn etto
11. !
r.'fl
Guðdómlegur gloss
og fullkominn farði
Hér er komin tilvalin gjöf fyrir
konur sem hafa áhuga á farða en
vantar kannski eitthvað upp á til að
fylla snyrtiveskið. Þessi fallega og
stílhreina askja inniheldur gloss
og tveggja þrepa farða frá
Max Factor. Þegar lokinu er
svipt af öskjunni má sjá silki-
vafnar snyrtivörur sem eiga
vísan stað í snyrtitöskunni.
Glossið fæst í sex litum sem
er hver öðrum fallegri. Glos-
sið, Silk Gloss Sheer, er guð-
dómlega fallegur og fæst í sex
litum. Varirnar verða mjög fal-
legar með glossinu, þær glitra
og vekja án efa athygli. Utan
þess er glossið einkar þægilegt
og minnir um margt á varasalva.
Lyktin er góð og áferðin er ekki of
slímkennd. Farðinn er tveggja þrepa
og á að tryggja fullkomið útlit allan
daginn enda ber hann nafnið Flaw-
less Perfection. Farðinn er tveggja
þrepa eins og áður segir, önnur form-
úlan er grunnur og hin er sjálfur farð-
inn. Saman mynda þessar blöndur
farða sem endist út daginn. Grunn-
urinn á að draga úr hrukkum og mis-
fellum húðarinnarþannig að áferðin
verður slétt og silkimjúk. Auk þess
inniheldur grunnurinn sólarvörn
12. Farðinn er ekki ofhlaðinn púðri
og er því léttur og þægilegur. Samt
sem áður er ekki nauðsynlegt að
p ú ð r a
yfir farð-
ann nema fyrir
þær konur sem það
kjósa.
SAW PALMETTO EXTRACT
ísflex ehf
DAVID BECKHAM
fæst í öllum helstu snyrtivörudeildum um land allt.
FYRIR BLÖÐRUHÁLSKIRTIL
GÓÐ HEILSA-GULLI BETRI