blaðið - 09.12.2005, Síða 24
24 I HEILSA
FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005 blaöiö
31 milljón i
krabbameinsrannsóknir
Samvera
fyrir syrgjendur
Krabbameinsfélag fslands
hefur hlotið samtals 31 milljón
króna í styrk frá RANNÍS vegna
markáætlunar um erfðatækni i
þágu heilbrigðis. Átta verkefni
voru styrkt en tvö þeirra eru
undir stjórn vísindamanna hjá
Krabbameinsfélaginu.
Verkefnin sem hlutu styrkina
nefnast Frá áhrifum BRCA-galla til
sértækra krabbameinssprotalyfja
og Arfgengar orsakir einstofna
mótefnahækkunar og skyldra
B-frumusjúkdóma. Hið fyrra er
undir verkstjórn Jórunnar Erlu
Eyfjörð, prófessors, og er framhald
af rannsóknum sem staðið hafa
um margra ára skeið á Rannsókna-
stofu Krabbameinsfélagsins í sam-
einda- og frumulíffræði. Svokölluð
brjóstakrabbameinsgen (BRCA)
sem valda arfgengri áhættu á
brjóstakrabbameini uppgötvuðust
fyrir rúmum áratug og átti rann-
sóknarhópur Jórunnar sinn þátt
í þvi. Þessi uppgötvun var mjög
stórt skref í áttina til aukins skiln-
ings á orsökum brjóstakrabba-
meins. Þó skortir enn talsvert á
þekkingu á áhrifum á sjúkdóms-
myndina sjálfa og svörun við með-
ferð. Nú verða þessir mikilvægu
þættir kannaðir nánar og byggir
verkefnið á góðri skráningu upp-
lýsinga hérlendis, svo og að tekist
hefur að búa til frumulínur sem
bera hina íslensku stökkbreyt-
ingu í BRCA2 geninu. Verkefnið er
unnið í samvinnu við læknadeild
Háskóla Islands, Landspítala - há-
skólasjúkrahús, rannsóknastofu í
meinafræði, Krabbameinsskrána,
Krabbameinsmiðstöð Landspítal-
ans og Hjartavernd. Síðast en ekki
síst byggir verkefnið á samvinnu
við líftæknifyrirtækið NimbleGen
og tengist þannig í raun einnig
örtæknihluta markáætlunar
RANNÍS. Einnig er samvinna við
erlendar vísindastofnanir.
Arfgengi
Síðara verkefninu stýrir Helga
M. Ögmundsdóttir, prófessor.
Það byggir einnig á hinni öflugu
Krabbameinsskrá Krabbameins-
félagsins. Þannig hefur tekist að
sýna fram á að svonefnd merg-
frumuæxli geta hugsanlega átt
arfgengan orsakaþátt. Þessi æxli
eru mynduð af frumum ónæmis-
kerfisins sem framleiða mótefni og
eiga þau sér oft aðdraganda í góð-
kynja fyrirbæri sem lýsir sér í því
að ein gerð mótefnaframleiðandi
B-frumu eignast of marga afkom-
endur sem lifa of lengi. Hér á landi
eru einstakar aðstæður til þess að
grafast fyrir um sameindafræði-
legar orsakir þessara sjúkdóma.
Þetta verkefni byggir einnig á
margþættri samvinnu við lækna-
deild Háskóla íslands, Landspítala
- háskólasjúkrahús, Krabbameins-
skrá, Hjartavernd og NimbleGen.
Krabbameinsfélagið hefur frá
upphafi lagt áherslu á rannsóknir
á orsökum krabbameina og hafði
fyrir mörgum áratugum áttað sig
á því hve Island getur lagt til mikil-
vægan skerf, enda hafa landsmenn
ætíð stutt dyggilega við bakið á
rannsóknum félagsins.
Þegar erfiðleikar steðja að er oft erf-
itt að horfa til jólanna og vita að þau
verða öðruvísi en áður. Þeir sem hafa
misst ástvin eru boðnir velkomnir
til samverustundar í Grensáskirkju
14. desember klukkan 20. Markmið
samverustundarinnar er að auðvelda
syrgjendum að halda jól þó einn vanti
í hópinn. Það hefur sýnt sig að sam-
vera sem þessi getur stutt syrgjendur
til að halda jól því sumum finnst það
nánst ógerlegt. Á samverunni verða
sungin aðventu- og jólalög, ljóðadag-
skrá í umsjón Þórarins Eldjárns, hug-
vekju flytur sr. Vigfús B. Álbertsson
og í lokin verður hægt að tendra ljós til
minningar um látinn ástvin. Túlkað
verður á táknmál og boðið upp á kaffi.
Allir velkomnir
Á síðastliðnum árum hefur eftirfylgd
við syrgjendur aukist og er samveran
hluti af henni. Þessi starfsaðferð er
hluti líknandi meðferðar en hún er
tengd lokaskeiði lífs fólks með sjúk-
dóm sem er ólæknanlegur.
Að samverunni standa: Heima-
hlynning Krabbameinsfélags íslands,
Hjúkrunarþjónustan Karítas, Land-
spítali Háskólasjúkrahús, Grensás-
kirkja, prestar og djáknar í sérþjón-
ustuogbiskupsstofa.Samveranverður
í Grensáskirkju 14. desember kl. 20 og
er opin öllum aldurshópum.
Er hárið farið að grilia og þynnast?
Þá er Grecian 2000 hárfroðan lausnin!
Þú þværö háriö, þurrkar, berö froöuna í,
greiöir og háriö nær sínum eölilega lit á
ný, þykknar og fær frískari blæ.
Ath! - lelöbelnlngar á íslonsku fylgja
Grecian 2000 hárfroöan fæst hjá:
— Árbœjar Apótok
— Lyfjaval Apótek, Mjódd
— Sklpholts Apótek
— Hárfllkk, Mlklubr. /Lönguhlíö
— Háranyrtlatofan Hár, Hjallahr.13, Hafnarf.
— Rakaraat. Ágúatar og Garðars, Suðurlandabr.10
— Rakarast. Grfma, Grfmsbœ
— Rakarast Klapparstfg
— Rakaraat. Ragnars, Akureyrl
— Torfl Gelrmunds, Hverflsg. 117
Hagkaupsverslanir:
Akureyrl, matvara — Kringlunnl, matvara — Skoifunnl,
snyrtlvara — Smárallnd, snyrtlvara — Spönglnnl, snyrtlvara
Arnl Sctiovlng m!f. - Hmlldvmrmlun
mfml a07 7030
Grœnmeti gegn fuglaflensu
Meðlimur PETA dýraverndurnarsamtakanna tekur sér stöðu í Hong Kong til að mót-
mæla. Hann hvetur hér fólk til að taka grænmetisfæði fram yfir fuglakjöt til þess að
koma í veg fyrir útbreiðslu fuglaflensunnar. Á skiltinu stendur:„Gleðileg jól. Stöðvum
fuglaflensu: Gerist grænmetisætur."
Gerðu sparikaup!
SPARITILBOÐ 8.- 14. DESEMBER
ísfugl - ferskur kjúklingur 398 kr/kg
BK Hamborgarahryggur 990 kr/kg
1098 kr/kg
BK Hangiframbartur úrbeinaður 1259 kr/kg
BK Hangilæri úrbeinað 1790 kr/kg
BK Londonlamb
Grillaður
kjúklingur
2ja lítra
Coca Cola
& franskar
*
SPv P
BÆJARLIND 1 - Sími 544 4510
OPIÐ ALLA DAGA FRÁ KL. 10.00 - 20.00