blaðið - 09.12.2005, Qupperneq 25
blaðið FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005
HEILSA I 25
Hálsbólga
Hálsbólga herjar á landsmenn
þessa dagana. Eins og sjá má á
tölum læknavaktarinnar á ww,
doktor.is leituðu 370 manns á
læknavaktina í síðustu viku
með hálsbólgu. Af þeirri ástæðu
ákvað ég að hafa pistil minn
þessa vikuna um hálsbólgu,
með von um að upplýsingarnar
geti nýst einhverjum.
Hálsbólga er sýking í hálskirtlum
og umhverfis þá. Bæði veirur og
bakteríur valda hálsbólgu. Háls-
bólga getur komið fram ein og sér
en fylgir oft öðrum sýkingum t.d.
flensu og einkirningasótt. Háls-
bólga leggst á alla aldurshópa, en
helstu einkenni eru særindi í hálsi
og eymsli við að kyngja. Ef sýk-
ingin verður langavarandi og er af
völdum bakteríu er stundum gefið
sýklalyf við henni.
Smitleiðir
• Veirur sem valda kvefi og
veiran sem veldur einkirninga-
sótt geta einnig valdið hálsbólgu.
Veirur berast manna á milli með
andrúmsloftinu eða með beinni
snertingu.
• Algengasta bakterían sem
veldur hálsbólgu er keðjukokkur
(streptókokkur). Bakterían berst á
milliýmist með andrúmslofti (svo-
kallað úðasmit) eða snertingu (líkt
og veirusmit). Frá smiti geta liðið
2-4 dagar áður en einkennin koma
fram.
Það getur því verið erfitt að
koma í veg fyrir það að smitast.
Margir eru smitandi án þess að
vita af því, eða ekki það veikir að
þeir liggi í rúminu og því á ferli
allt í kringum okkur. Best er að
reyna að passa sjálfan sig með því
að vera sjálfur hraustur, borða
hollan og góðan mat og hreyfa sig
reglulega. Það er besta vörnin.
Einkenni
• Særindi í hálsi og eymsli þegar
kyngt er.
• Roði í hálsi, bólgnir háls-
kirtlar, jafnvel með skán.
• Verkur getur leitt út í eyru.
• Hiti.
• Eitlastækkanir á hálsi.
• Ef hálsbólgan er af völdum
veiru er hún yfirleitt vægari og
henni fylgir oft kvef.
• Hálsbólga af völdum keðju-
kokka (streptókokka) veldur yfir-
leitt bólgu í hálskirtlunum ásamt
skánmyndun, særindum í hálsi,
hita og andremmu.
• í hálsbólgu af völdum
coxsackie veiru geta myndast
litlar blöðrur á hálskirtlunum og á
efri gómi. Blöðrurnar springa eftir
nokkra daga og þá myndast sár
sem geta valdið miklum verkjum.
Óþægindi getur verið gott að lina
með volgum drykkjum og ef erfitt
reynist að borða þá er oft betra að
halda sig við fljótandi fæði. Við öll
veikindi er gott að drekka mikið af
vatni og það á líka við þegar um
Smáauglýsingar
510-3737
Auglýsingadeild
510-3744
blaðiÖL=
hálsbólgu er að ræða. Það er hægt
að fá lausasölulyf í næsta apóteki
sem geta hjálpað meðan verstu
særindin ganga yfir. Best er að fá
upplýsingar um það sem er í boði í
næsta apóteki.
Ef hálsbólgan verður langvar-
andi skal leita til læknis. Ef háls-
bólgunni fylgir hár hiti eða út-
brot koma fram skal líka leita til
læknis.
Horfur
Yfirleitt stafar engin hætta af háls-
bólgu og hún hverfur að öllu jöfnu
innan viku. Hins vegar getur háls-
bólga haft aðra sjúkdóma í för með
sér. Þeir eru helstir:
• Hálsbólga af völdum keðju-
kokka (streptókokka) getur valdið
útbrotum (skarlatssótt).
• Kýli geta myndast á háls-
kirtlum, yfirleitt öðru megin.
• Eyrnabólga
• Kinnholubólga
• I einstaka tilfellum getur
hálsbólga leitt til gigtsóttar eða
bólgusjúkdóms í nýrum.
Meðferð
Oftast er bara beðið átekta og séð
til hvort einkennin hverfi ekki
fljótlega. Hálsbólga af völdum
bakteríu er stundum meðhöndluð
með sýklalyfjum. Það er engin
lyfjameðferð til við hálsbólgu af
völdum veira.
Kveðja,
Jórunn Frímannsdóttir,
hjúkrunarfræðingur www.
doktor.is
Hafragrautur fyrir örbylgjuofninn
Tilbáim á akins 1 i/z mínútu
7 Helltu haframjölinu úr pokanum í skál
2. Settu 1,5 dl. af vatni út í (notaðu pokann
undirvatnið - nákvœmlega retti skammturinn)
3 Tilbúinn í örbylgjuofninum á 2 ?/2 mínútu
8 pokar i hverjum pakka.
AuOvelt aö taka meO sér
hvertsem er.
• Fljótlegt og hollt í morgunmat fyrir skólann • Góð
undirstaöa fyrir langan vinnudag • Tilvaliö i
hádeginu - engin fyrirhöfn • Þœgilegt og hollt milli mála.
b