blaðið - 09.12.2005, Blaðsíða 26
26 IHÖWWUN
FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005 blaöið
Falleg glös fyrir allafjölskylduna
Tengja nútímamainninn við fortíðina
Fjölskyldan mín heitir ný glasa-
lína sem tveir íslenskir hönnuðir
eru að setja á markað. Hönnuð-
irnir eru Ingibjörg Hanna Bjarna-
dóttir og Dagný Kristjánsdóttir
sem eiga hönnunarfyrirtækið
Stella Design. Glösin eru til sölu
í Epal.
.Hugmyndin kviknaði þegar við
fórum að hugsa um hvernig mat-
artímar Islendinga hafa breyst frá
því að vera samverustund fjölskyld-
unnar yfir í að snætt sé fyrir framan
sjónvarpið og hver sé í sínu horni
með matinn,“ segir Ingibjörg. Hönn-
uðunum fannst að eitthvað þyrfti
til að endurvekja þá hefð sem fólst
í samverustundum fjölskyldunnar
yfir góðri máltíð. „Með glösunum
fannst okkur við ná að skapa góða
stemmningu og gleði við matar-
borðið með hönnun sem höfðaði
bæði til fullorðinna og barna um
leið og við reyndum að finna barnið
í sjálfum okkur.“
I glasalínunni eru sex glös, skreytt
með sex mismunandi myndum.
Þemað er íslensk fjölskylda, þjóð-
búningurinn, torfbæirnir, sauð-
kindin og sveitin, allt eitthvað sem
tengir nútíma Islendinga fortíðinni
og rótum þeirra. Myndirnar sýna
afa og ömmu, pabba og mömmu og
börnin tvö. Glösin koma í svolítið
óvenjulegum pakkningum, eins
konar burstabæ úr pappa og inni-
halda pakkningarnar eitt eða tvö
glös hver.
Dagný og Ingibjörg hafa þekkst
frá því þær gengu saman í Verslun-
arskólann en leiðir þeirra lágu síðan
/W4lkS0 ITOCxlSOO 2i;o.iJ*o|
Ford 125 hest TDCI, Challenger
mageo 108. Lengd 6,5 mtr,
vel útbúinn, geislaspilarl með
fjarstýringu.
Verð 4,6 skráður
Ford 125 hestTDCI
Challenger genesis 32
Lengd 5,64 mtr, vel útbúinn
geislaspilari með fjarstýringu.
Verð 3,950 skráður
Fly 50 Fiat BLUCAMP
commandrail diesel, iengd 6,08 mtr,
svefnpláss fyrir 6 manns vel útbúinn,
loftkæling,110 H.Ö.
verð: 4,5 skráður
jnon>r9 tti#*-* /fw.ivn
Sky 400 Ford BLUCAMP
commandraíl diesel lengd 7,13 mtr
vel útbúinn, loftkæling, 137 H.Ö.
verð: 5,3 skráður
Fly 400 Fiat BLUCAMP
commandrail diesel.lengd 6,84 mtr
vel útbúinn, loftkæling, 147 H.Ö.
verð: 5,3 skráður
www.bilexport.dk
Bilexport á íslandi ehf. Upplýsingar veitir Bóas í síma 0045-40110007
saman á Brautargengisnámskeiði
fyrir tveimur árum og upp úr því
ákváðu þær að hefja samstarf.
Ðagný er vefhönnuður og lærði í
Teknisk Akademia Syd í Danmörku
og hefur starfað við kennslu og vef-
síðugerð auk þess sem hún stundar
nú nám í viðskiptafræði í Háskóla
íslands. Ingibjörg Hanna útskrif-
aðist sem grafískur hönnuður frá
Listaháskcla íslands og var um tíma
gestanemandi við Academia Min-
erva í Hollandi. Hún hefur starfað
á auglýsingastofu og starfar nú sem
grafískur hönnuður auk þess sem
hún hannar föt og ljós.
Glösin á leið á erlendan markað
Glösin eru framleidd í Þýskalandi
og hefur framleiðandinn látið í ljós
áhuga á að markaðssetja glösin þar.
Það eru því góðar líkur á því að
glösin verði sett á erlendan markað.
„Aðilar í Evrópu hafa sýnt hönnun
okkar áhuga og við erum að skoða
samninga við þá,“ segir Ingibjörg.
„Ég held að þessi glös snerti strengi í
okkur öllum. Þau eru litrík og höfða
til allra aldurshópa. Þó svo að glösin
séu fjölskyldumiðuð hefur einhleypt
fólk líka sýnt þeim áhuga og þau
myndu sóma sér vel sem partíglös."
Dagný og Ingibjörg vinna enn
saman og hafa hugsað sér að vinna
meirameð hugmyndina um fjölskyld-
una á glösunum. „Okkur langar að
nota þessa hugmynd og jafnvel setja
hana á matardiska," segir Dagný.
Hún segir einnig að þær stöllur séu
með fleiri hugmyndir í kollinum
sem spennandi verður að fylgjast
með í framtíðinni.
Glösin komu í verslunina Epal um
síðustu helgi og samkvæmt upplýs-
ingum frá Eyjólfi í Epal hefur mikið
verið spurt um þau. Glösin koma
saman eitt eða tvö í kassa sem er í
laginu eins og burstabær. Eitt glas
kostar 850 krónur en tvö eru á 1.650
krónur.
Hvers vegna eru glösin svona ........................................
vinscel? hugrun@vbl.is
Vandaðar vörur á
viðráðanlegu verði
Sjónvörp eru orðin fyrirferð-
arminni og sum hver hanga upp
á vegg. DVD diskar hafa tekið
við að vídeóspólum og margir
eru með alla tónlist á tölvutæku
formi. Breytt heimilistæki kalla
á nýja hönnun á hirslum sem
þeim tilheyra.
.Hirslur fyrir geisladiska eru mikið
að færast inn í sjónvarps- og hillu-
einingar enda tæknin farin að
bjóða upp á ýmsar samtengingar
á milli tækja,“ segir Lísa Björk Osk-
arsdóttir, markaðs- og vefstjóri hjá
IKEA. „Við erum með Hejan geisla-
diskastand sem er lítill og tekur 20
diska. Þessi standur fæst í ýmsum
litum og kostar 190 krónur. Þá getur
Obervatör geilsadiskarekki hentað
vel í hillur eða skúffur og tekur 22
geisladiska.
Benno geisladiskahillurnar eru
klassískar og eru búnar að vera til
í mörg ár. Hillan tekur 180 geisla-
diska, 88 DVD diska eða 40 mynd-
bönd eftir því hvernig hillunum
er raðað. Þessar hillur fást hvítar
og með viðarspón. Af stærri geisla-
diskahirslum má nefna Leksvik
hillu en hún tekur 190 geisladiska
eða 100 DVD diska og kostar 5.950
krónur."
Lísa segir geisladiskahirslur
frá Lersvik mjög sniðugar en þær
eru með glerhurðum og taka 320
geisladiska og kosta 9.950. Markör
geisladiskaskápurinn lítur í fyrstu
út eins og skóhilla en hann er úr an-
tikbæsuðu gegnheilu greni og tekur
330 geisladiska og kostar 19.900
krónur.