blaðið - 09.12.2005, Síða 28
28 I HEIMSPEKI
FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005 blaóiö
Hugvísindamenn
dreymir um straum
Nýju vefriti œtlað aðfara handan blogg-formsins
Á dögunum hleyptu þrír ungir
menn, sem allir hafa alið manninn
í hugvísindadeild Háskóla íslands
(áður heimspekideild), af stokk-
unum vönduðu vefriti sem ber hið
kynduga nafn Draumur um straum
(www.draumurumstraum.net).
Titillinn er ugglaust vísan í sam-
nefnt Súkkat-lag, en ritinu góða er
annars ekki ætlað að fjalla sérstak-
lega um tónlist, hvorki Súkkats né
annarra, þó umfjöllunarefnið muni
líklega koma upp endrum og eins,
enda er efnislegur stakkur þeirra
Draums-manna hvorki aðsniðinn
né harkalega skilgreindur.
Það eru þeir Aðalsteinn Hákonar-
son, Hjalti Snær Ægisson og Kári
Tulinius sem bera veg og vanda af
vefritinu. í stofnskrá síðunnar segir
að henni sé fyrst og fremst ætlað að
vera vettvangur fyrir þá félaga og
vangaveltur þeirra um menningu og
samfélagsmál. Á henni muni birtast
.frumsamdar greinar eftir ritstjóra,
þýðingar á erlendum greinum, gagn-
rýni, fréttir og hvað það annað sem
ritstjórninni langar að koma frá sér.“
Ekki er annað að sjá en að farið sé
eftir þessu. Á þeim fáu dögum sem
liðnir eru síðan vefritið fór í loftið
hafa m.a. birst þar lærðar greinar
um Hvíta albúm Bítlanna, jólabóka-
flóðið og aðstæður til skáldsagnarit-
unar í Sovétríkjunum sálugu.
Aðspurður segir Aðalsteinn að
formið sé vísvitandi haft laust í reip-
unum, en þó sé vefritið tilraun þeirra
til þess að tjá skoðanir sínar og hug-
myndir á skipulagðari og metnað-
argjarnari máta en tíðkast víða á
bloggsíðum og öðrum vettvöngum
skoðanaskipta á Netinu. „Já, á þetta
vefrit ætlum við að skrifa nokkurn
veginn það sem okkur dettur í hug
og því vildum við ekki njörva það
niður með of sértækum skilgrein-
ingum. Hjalti og Kári leggja báðir
stund á bókmenntafræði og sjálfur
sérhæfi ég mig í málvísindum og hef
einnig nokkuð kynnt mér rússnesk
stjórnmál. Því má sjá að umfjöll-
unarefni okkar geta orðið ansi víð-
feðm og víðtæk,“ segir Aðalsteinn.
„Vefritinu er að vissu leyti ætlað að
vera ákveðin æfing í því að skrifa á
opinberum vettvangi - eins konar
millistig milli bloggsíðna þar sem
misvel úthugsaðar pælingar eru
látnar flakka svo og greinaskrifa í
dagblöð og tímarit, hvar kröfurnar
eru oft ívið stífari.“.
haukur@vbl.is
1.VERÐLAUN
LISTAHÁTÍ-0ARINNAR í FÆREYJUM
SEBASTÍANSHÚS
EFTIR ODDV0R JOHANSEN
OG LEYNIGÖNGIN
EFTIR JÓGVAN ISAKSEN
Gamansöm spennusaga
fyrir hressa krakka
Sjálfstætt framhald
hinnarvinsælu bókar
Brennuvargsins
Grámann
bókaútgáfa
Verðlaunabók vikunnar í boði
Bókmenntafélagsins
Kant grundvallar
frumspeki
siðlegrar breytni!
Þýski heimspekingurinn Immanuel
Kant er einn mesti heimspekingur
Vesturlanda. Grundvöllur að frum-
speki siðlegrar breytni er í senn
ein víðlesnasta bók Kants og ein af
perlum vestrænnar heimspeki.
Þar má finna hugmyndir
hans um forsendur sið-
ferðilegrar breytni
en þær hafa haft
mótandi áhrif
á hugmyndir
manna um
siðfræði og
réttlæti allar
götur síðan
hann setti
þær fram á
ofanverðri 18.
öld.
K j a r n i n n
í kenningu
Kants er sá að
siðferðilegt gildi
athafna ráðist fremur
af þeim ástæðum sem
maður hefur fyrir breytni sinni
en af þeim afleiðingum sem hún
kann að hafa. Þannig segir Kant á
einum stað: „Athöfn sem unnin er
af skyldu sækir siðferðisgildi sitt
ekki í það markmið sem á að ná
með henni heldur er það að finna
í lífsreglunni sem fylgt er þegar
athöfn er ákveðin; siðferðisgildið
veltur þess vegna ekki á árangri
athafnarinnar heldur einungis á
meginreglu viljans sem athöfnin
ræðst af.“ Þessi nálgun að
siðfræði og því hvernig
athafnir öðlast sið-
legt gildi sitt er í
bcinni andstöðu
^ við t.a.m. nytja-
stefnuJohnsStu-
art Mill, en þar
teljast endan-
legar útkomur
a t h a f n a ,
fremur en
ástæðurþeirra,
ákvarðasiðlegt
gildi þeirra.
r, Guðmundur
Heiðar Frímanns-
son þýðir ritið og
þykir hafa tekist ein-
staklega vel til. Hann
skrifar jafnframt ítarlegan
inngang um ævi og störf Kants,
auk þess að gera grein fyrir efni rits-
ins í nokkru máli.
haukur@vbl.is
. t'
Rökhornið!
Umsjón: Hrafn Ásgeirsson, BA í heimspeki.
Bestu lausn við gátu síðustu viku átti Elmar Geir Unnsteinsson. Greini-
legt er af lestri svarsins að drengurinn sá er vel versaður í list rökfræð-
innar, en það hljómar svona:
„Rökleiðingin í gátunni var af þessu sniði:
Fi: p er betra en q
F2: w er betra en p
N: w er betra q
(Þar sem p: ‘ekkert’, q: ‘hamingja’ og w: ‘skinkusamloka’).
Þannig virðist hún vera gild, þar eð þessi rökleiðing er gild. En rökleið-
ingin er þó aðeins gild ef táknin p, q og w hafa sömu merkingu alls staðar
sem þau koma fyrir. I Fi táknar p ‘ekkert’ í setningunni ‘ekkert er betra
en q’. í F2 táknar p líka ‘ekkert’ - og setningin er: ‘w er betra en ekkert’.
En í F2 má skipta ‘ekkert’ út fyrir ‘að fá ekkert’ án þess að merkingin
breytist. Ef við hins vegar gerum sömu breytingu í Fi þá verður merk-
ingin önnur - þ.e. ‘Að fá ekkert er betra en hamingja’. Þar af leiðandi er
p ekki sömu merkingar í Fi og F2. Niðurstöðuna leiðir því ekki röklega
af forsendunum."
í einfölduðu máli mætti segja að það skiptir máli hvernig við skiljum
orðið ‘ekkert’. Sé það skilið sem nafn á einhverju, og að það vísi þá til
einhvers, kemur það okkur í ýmsan vanda, m.a. þann sem glímt var
við. En til mikillar lukku er þá ljóst að skinkusamloka er ekki betri en
hamingja. Um það hvort kjúklingasamloka sé betri en hamingja verður
ekki ályktað hér en ég læt lesendum eftir að glíma við þá ráðgátu á eigin
spýtur.
Gáta vikunnar:
Guðbergur Þórbergur og Guðjón Friðjón eru málglaðir menn. Oft segja
þeir sannleikann en stundum ekki. Svo heppilega vill þó til að það er á
ákveðnum dögum sem þeir segja satt eða ósatt. Málum er þannig háttað
að Guðbergur Þórbergur segir satt á fimmtudögum, föstudögum, laugar-
dögum og sunnudögum en segir annars ósatt. Guðjón Friðjón segir hins
vegar satt alla daga nema fimmtudaga, föstudaga og laugardaga.
Ónefndan dag segja mennirnir tveir eftirfarandi:
Guðbergur Þórbergur: I gær sagði ég ósatt.
Guðjón Friðjón: I gær sagði ég líka ósatt.
Hvaða dag vikunnar er um að ræða?
Svör sendist á haukur@vbl.is