blaðið - 09.12.2005, Síða 30
30 I ÝMISLEGT
FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005 blaÖÍA
Borðspilin að liða
undir lok?
Sumir vilja meina að borðspil
séu að líða undir lok enda mörg
þeirra komin í leikjaform fyrir
heimilistölvuna. Þessi þróun
hefur þó verið viðvarandi í
einhvern tíma og Yngvi Björns-
son, dósent í tölvunarfræði við
Háskólann i Reykjavík, segir að
skákin sé gott dæmi um það.
Yngvi segist vera hræddur um
að við séum hægt og rólega að
hverfa frá borðspilunum. „Þetta
er bara almennur áhugi fólks enda
annar veruleiki. Við sjáum þetta
með skákina, hún á undir högg að
sækja miðað við það sem var. Það
er samt verið að vinna í því að auka
veg og virðingu hennar og þeim
hefur orðið eitthvað ágengt. Það
eru náttúrlega skák og alls kyns
hefðbundnir krakkaleikir sem eru
komnir í tölvurnar.
Svo eru allir svona
pókerleikir mjög
vinsælir, það er
mikill uppgangur
í því. Póker er
farinn að verða
þannig að hægt
er að spila hann
á netinu, það
þarf ekki að
fara inn í ein-
hverja reyk-
kompu til að
spila,“ segir
Yngvi og
hlær.
Tölvunotkun þarf ekki
að vera neikvæð
Aðspurður að því hvað það sé sem
heillar við tölvuna umfram borðleik-
ina segist Yngvi telja að það sé ekki
nógu mikið að gerast í borðspilum.
„Maður sér ekki krakka úti að leika
sér lengur. Ég held að þetta sé bara
orðinn svo stór hluti af okkar veru-
leika. Þetta þarf ekkert endilega að
vera neikvætt heldur er þetta eins og
allt annað, allt er best í hófi. Margir
af þessum leikjum eru þroskandi
fyrir krakka enda hafa rannsóknir
sýnt að það getur verið gott fyrir
þroska barna niður í þriggja ára
aldur að leika í leikjum á tölvunni.
Þetta virkjar þau.“
svanhvit@vbl.is
Gamlar bœkur,
gulls ígildi
Fágœtar bœkur íjólapakkann
„Það er mikill fróðleikur í gömlum
bókum og í þeim má finna miklar
heimildir" segir Ari Gísli Bragason
í fornbókabúðinni Bókinni við
Klapparstíg. Ari Gísli segir að í versl-
uninni megi finna yfir hundrað þús-
und bókatitla.
„Við sjáum mikla aukningu í bók-
sölu hjá okkur í desember og fólk
er mikið að leita að fyrstu útgáfum
bóka. Gamlar útgáfur af heims-
bókmenntum eru vinsælar ásamt
norrænum fræðum, Ijóðabókum
og gömlum sakamálasögum. Það
er nokkuð um að menn eru að gefa
sjálfum sér bækur en þær eru einnig
teknar til jólagjafa. Sumar bækur
eru mjög fágætar og ófáanlegar í
búðinni. í þeim tilfellum tökum við
að okkur að útvega bækurnar og
það tekst alltaf á endanum. Af þeim
bókum sem hafa verið vinsælar en
illfáanlegar má nefna Harmsaga
ævi minnar eftir Jóhannes Birki-
land og bækur Ásgeirs Jónssonar
frá Gottorp; horfnir hestar og illfá-
anlegt forystufé. Þá er nokkuð um
að fólk sé að leita að barnabókum og
má þar nefna bókina um Dísu Ijós-
álf og Ijósmóðurina í Söðlakoti."
„Nýjustu bækur í fornbókabúðinni
eru 2-3 ára gamlar og algeng verð á
bókum hjá okkur eru 2-400 krónur.“
Ari Gísli segir karlmenn hafa verið
í miklum meirihluta þeirra sem
koma í búðina en hlutfall kvenna sé
þó að aukast.
Fornbókabúðin Bókin er opin
frá 11-18 virka daga og frá 12-17
laugardaga.
Aðalfíutningar
Oryggi alla leið
HVERGI
LÆGRA VERÐ
ALLA LAUGARDAGA FRAM AD JÚLUM FRÁ KL. 8 -
12
DPID
Vatnauörðum 6 • S. 581 3030 • Fax: 417 2564 • adaleg@simnet.is