blaðið - 09.12.2005, Page 31
blaðið FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005
Sala unglinga-
bóka minnkar
Unglingabækur eru oft sagðar
sérstaklega mikilvægar þar sem
þær geta mótað hug og hjörtu
æskunnar. Að sama skapi er sagt
að það sé töluvert erfiðara að rita
bækur fyrir börn og unglinga
heldur en fullorðna. Samkvæmt
Sigþrúði Gunnarsdóttur, útgáfu-
stjóra barna-og unglingabóka
hjá Eddu útgáfu, hefur sala á ung-
lingabókum minnkað töluvert
undanfarin ár.
Sigþrúður segir að það séu tísku-
sveiflur í allri bókaútgáfu. „Kannski
eru þær hvað mestar í unglinga-
bókum. Fyrir nokkrum árum síðan
voru unglingabækur þær bækur
sem seldust allra mest, þær voru
algjör tískuvarningur og eitthvað
sem unglingarnir urðu að eignast,
að þeirra eigin mati. Þannig er það
ekki núna hvað svo sem það segir.“
Sigþrúður segir að framboð ung-
lingabóka mætti vera meira. „Það
fer saman við það að unglingabækur
eru ekki næstum því eins mikið
keyptar og var fyrir tíu til fimmtán
árum síðan. Það er stór munur
þar á. Unglingabókin hefur farið
verst út úr samkeppni bókarinnar
við aðrar vörur, tölvuleiki og dvd
diska, sem er kannski frekar verið
að kaupa fyrir unglinga. Ég er hins
vegar alveg sannfærð um að það eru
mjög margir unglingar sem lesa,
þeir sækja þá kannski bókasöfnin í
meira mæli.“
Fantasían vinsælust
Sigþrúður segir að fantasían sé
vinsælust á meðal unglinga þessa
dagana þó efni bókanna sé fjöl-
breytt. „Ef litið er á unglingabækur
í alþjóðlegu samhengi þá er mjög
mikið af bókum um dóp, bæði sem
einfaldar varnaðarbókmenntir en
líka harðar sögur úr dópheiminum
sem unglingnum er síðan látið eftir
að túlka eins og hann vill. Ég held
að fantasían eigi ofboðslega mikið
hug og hjörtu unglinganna núna,
það er Harry Potter, Lord of the
Rings, Discworld og allt þetta sem
unglingar liggja í,“ segir Sigþrúður
og bætir við að það sé vitanlega
misjafnt hvers kyns bækur ungling-
arnir leita í. „Unglingsárin eru svo
ótrúlega merkileg ár, það verða svo
miklar breytingar og þetta eru árin
þar sem fólk fer að kryfja hluti veru-
lega og spekúlera í þeim. Að sjálf-
sögðu vilja unglingarnir léttleika,
skemmtun og húmor í bækurnar
sínar en þetta eru náttúrlega árin
sem þau verða meðvituð um heim-
inn í kringum sig og fara að hafa
skoðanir á hlutum. Ég held þau sæki
það voða mikið í alls kyns bækur.“
Fólki ekki sama hvað stendur
í unglingabókum
Aðspurð hvort það sé rétt að börn og
unglingar séu erfiðasti markhópur-
inn segir Sigþrúður að það geti vel
verið. „Rithöfundar unglingabóka
eru að skrifa fyrir markhóp sem
þeir tilheyra ekki sjálfir og þurfa
að hafa í huga að ef fjalla á um erf-
iða hluti án þess að leggja á þá rétt
mat þá þarf að gera það meðvitað.
Fólki er alls ekki sama hvað stendur
í bókum fyrir börn og unglinga.
Fólk hefur skoðanir á því hvað á að
vera og hvað á ekki að vera í þessum
bókum. Það fylgir því mikil ábyrgð
að skrifa unglingabók auk þess sem
það er erfitt hlutverk. En ég held að
það hljóti að vera gaman,“ segir Sig-
þrúður að lokum.
svanhvit@vbl.is
Frítt í desember
Kaffi/súkkulaði og
konfektmoli
fylgir öllum réttum
QuizhosSub
MHMH...GLODAÐUR
Lækjargata 8
Suðurlandsbraut 32
ftSS
^ jv
2006
TqW |
RAFGREIN.IS SKIPHOLT 9
OPIÐ LAUGARDAG 12-15
m TSBOSh.
— /
\ \
LTFS LOGTNN
BJðRN PORLAKSSON
össur Skarphéðinsson
þingmaður las Lífs-
logann og sagði að
lestri loknum:
„Bók Björns er frá
bærlega vel skrifuð
örlagasaga um
sálarháska, magnaða hrað-
skák við Bakkus og endur-
heimt lífslogans í gegnum
myrkustu örvæntingu.
Og hún gerist á Akureyri."
!\
V- \
Hr
03 rQ Jr,
Björn Þorláksson er þjóðþekktur
rithöfundur og fréttamaður.
—
„Stórkostleg bók. Svo spennandi
að ég tók hana með mér í baðið,
gat ekki lagt hana frá mér.
Skyldulesning."
Óskar Pétursson, söngvari.
mdur
/
irT kautgáfa
Sfmar: 660 4753-462 4250
www.tindur.is • tindur@tindur.is
Notadir bílar
Jólin nálgast
Kynrrtu þér greiðslukjörín
Komdu i Brimborg
Jólagjöfin tilþín: 40.000 kr.
ávísun uppí Nokian eða Pirelli
dekk hjá Max1: sumar- eða
vetrardekk að eigin vali, kaupir
þú notaðan bíl frá Brimborg.
I1I.IS
Fjöldi notaðra bíla í sölu á hverjum degi. Veldu bílinn áður en hann selst Smelltu núna.
Jólatilboðið giidir aðeins til aðfangadags, 24. desember nk.
Smelltu þér á netið - www.brlmborg.is - smelltu þér á notadan bíl
hjá Brímborg. Reynsluaktu hjá Brímborg Reykjavík eða Akureyrí.
Við kaupum af þér gamla biTinn: Staðgrertt.
Þú vettir fyrir þér hvemig best er að losna við gamla bílinn. Brimborg kaupir hann af þér staðgreitt*
veljir þú bíl ffá Brimborg. Þú feerð peninginn beint í vasann - eða greiðir upp lánið á gamia bílnum.
Þú losnar við allt umstang við að selja og minnkar þinn kostnað. Komdu og skoðaðu notaðan
bíl í dag. Komdu í Brimborg - ræddu við söluráðgjafa notaðra bíla um hvemig best er að skipta
gamla bílnum uppí notaðan bíl hjá Brimborg.
lálctubíl
brimborg
Öruggur staður til að vera á
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sími 515 7000 | Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 462 2700 | www.brimborg.is
* Brimborg greiöir þér gamla bílinn 45 dögum eftir að uppítaka á gamla bilnum er frágengin.