blaðið - 09.12.2005, Page 32
32 I BESTI BITINW
FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2006 blaóiö
Húrra fyrir hádegismatnum!
í nútímaþjóðfélagi virðist skyndibitinn vera orðinn staðalhádegisverður margra endafljótlegt að nálgast hann ogjafnvel enn fljótlegra að sporðrenna
honum. Það virðist líka heyra sögunni til í hinum hraða samtíma aðfólk geri sérferð heim í hádeginu til að gœða sér á staðgóðum og heimilislegum
mat. Það vakti þó gleði í hjarta blaðamanns þegar hannfrétti afþví að víðs vegar um borgina er boðið upp á heitan hádegismat afgamla skólanum.
Þvíþótti prýðilegt að kynna sérþessa staði betur og hvað vœri í boði hjá þeim. Það kom líka skemmtilega á óvart hversu dreifðirþessir staðir voru um
höfuðborgarsvceðið og Ijóst að sársvangir lesendur Blaðsins ættu að geta skotið inn heimsókn á einhvern þeirra í knöppu hádegishléinu án þess að lenda
í tímaþröng, óháðþvt hvarþeir stunda sína vinnu eða aðra dægrastyttingu. Það er nefnilega hægt að nálgast heitan hádegismat íMúlunum, Smáralind-
inni, Mjóddinni og meira að segja í miðbæ Reykjavíkur á sanngjörnu verði þegar svengdin hellistyfir okkur eins og svo oft vill gerast.
Hádegishátið í Múlanum
Múlakaffi hefur um margra ára
skeið boðið upp á heimilislegan
hádegismat og er hann vanalega
afar vel sóttur, enda Múlakaffið
vel staðsett í hjarta Múlanna þar
sem fjölmörg fyrirtæki umlykja
staðinn. Konurnar sem stóðu vakt-
ina þegar blaðamann bar að garði
sögðu að vanalega væru um 120-
130 manns sem leggðu leið sína
þangað í hverju hádegi og færi sá
fjöldi heldur vaxandi. Þar er alltaf
boðið upp á fimm mismunandi
rétti í hádeginu og er einn af þeim
ætíð heitur. Heitu réttirnir eru
vanalega dýrindis steik eða lamb
en þegar Blaðið kom við var boðið
upp á jólahangikjöt.
Hangikjötið var reglulega bragð-
gott og hæfilega reykt. Það er óhætt
að segja að það hafi komið bragð-
laukum blaðamanns í snemmbúið
jólaskap og setti kjötið klárlega
jólatóninn fyrir hátíðarveisluna
sem framundan er á næstu dögum
og vikum. Það var vel útilátið með
passlega þykkum og góðum jafn-
ingi. Þá voru kartöflurnar hæfi-
lega soðnar. Annað meðlæti var
rauðkál og grænar baunir og þótti
í einu orði sagt til fyrirmyndar.
Einnig var smakkað á soðnum
fiski sem borinn var fram með
sveppum og lauki og þótti hrein-
asta afbragð. Einn álitsgjafanna
sagði fiskinn þann besta sem hann
hefði smakkað lengi. Fiskurinn
þótti vel eldaður og bráðnaði hrein-
lega upp í manni. Greinilegt að um
glænýjan fisk var að ræða.
Það kostar frá rúmum 1.000
krónum og upp i 1.600 krónur að
snæða á Múlakaffi í hádeginu og
er súpa og kaffi alltaf innifalið í
verðinu. Einnig geta sérstakir súpu-
áhugamenn fengið hana staka á 490
krónur. Á sunnudögum er síðan
boðið upp á sunnudagssteikur og
hækkar verðið þá örlítið. Matur-
inn er þó hverrar krónu virði og
greinilegt að þeir Múlakaffismenn
leggja mikið upp úr gæðum.
Eitthvað við allra hæfi
Nóatún í Smáralind bauð upp á
prýðilegt lambafillet. Þar eru ætíð
á boðstólnum 4-5 mismunandi
réttir í hverju hádegi og er reynt
að hafa fjölbreytnina sem mesta
hverju sinni sem og á milli daga.
I Nóatúni er enda biðröð í nánast
hverju hádegi. Því er ljóst að við-
skiptavinirnir eru afar ánægðir
með þjónustuna og hafa tilhneig-
ingu til að snúa aftur og aftur.
Skorpan á kjötinu var afar bragð-
góð. Kjötið sjálft var meyrt og
hæfilega eldað. Það var borið fram
með sósu og kartöflum sem pass-
aði vel við filletið sjálft. Sósan var
hefðbundin og prýðileg en heldur
bragðlítil. Það hefði verið óskandi
ef það hefði verið dálítið meiri
broddur í henni.
Hádegismaturinn í Nóatúni er
þó afar örugg lending þar sem allir
sem á annað borð leggja sér kjöt til
munns ættu að geta fundið eitthvað
við sitt hæfi. Verðið á matnum hjá
þeim er breytilegt eftir því hvað er
á boðstólnum hverju sinni en það
getur verið frá 400 krónum og allt
að 1.000 krónum.
Svikni hérinn tónar vel við meðlætið sem fylgir með honum. Hann kostar um 550 krónur
í Svarta svaninum.
Grísasteikin Hjá Dóra kostar um 800 krónur með meðlæti.
Fyrirmyndar hádeg-
ismatur í Mjóddinni
I einu horninu í stórverslun Nettó
í Mjóddinni er lítill matarbás sem
heitir einfaldlega Hjá Dóra. Þar
hafði myndast mikil biðröð þegar
blaðamann bar að garði og ljóst að
Dóri hefur komið sér upp stórum
hópi fastakúnna. Þar er bæði hægt
að borða inni eða taka með sér. Á
matseðlinum þennan daginn var
meðal annars grísasteik og kjúk-
lingapottréttur. Grísasteikin var
borin fram með blönduðu græn-
meti, kartöflum og sérdeilis prýði-
legri sósu. Kjötið sjálft var meyrt en
ekkert sérlega bragðmikið. Skorpan
bætti það þó upp enda sterkur og
góður keimur af henni.
Kjúklingapottrétturinn var síðan
hreinasta afbragð. Hann hafði verið
rifinn út í karrísósu og var veisla
fyrir bragðlaukana þegar hann
var snæddur með hrísgrjónunum
sem með fylgdu. Það var ekki þetta
venjubundna íslenska karríbragð af
honum en sósan var samt sem áður
h r e i n -
asta snilld. Hæfilega sterk og bragð-
mikil. Kjúklingurinn sjálfur var
eins og kjúklingur á að vera eldaður.
Einn álitsgjafanna sagði að þetta
væri þannig matur sem hún óskaði
sér að hún myndi fá ef að hún færi
í hádegismat til mömmu. Maturinn
Hjá Dóra kostar frá um 450 krónum
og upp í rúmar 850 krónur og virt-
ist almenn ánægja ríkja hjá þeim
matargestum sem stóðu svangir og
spenntir í röðinni í gær.
Svikinn héri svíkur engan
Svarti svanurinn við Hlemmtorg
hefur boðið upp á heimilismat í há-
deginu á virkum dögum síðastliðin
sex ár. Rekstraraðilar sögðu að það
væri misjafnt hversu margir nýttu
sér þessa þjónustu en þó væri til
staðar tryggur kjarni sem kæmi
reglulega þangað til að snæða. Þar er
fjölbreytnin í fyrrirúmi og var til að
mynda boðið upp á pönnusteikta ýsu
langikjöt meö meðlæti kostar 1.590 krón-
ur á Múlakaffi
með meðlæti, nauta-
hakksbollur með spæleggi
og fleiru, tælenskan kjúklingarétt
og svikinn héra þegar Blaðið bar að
garði, en blaðamaður gæddi sér ein-
mitt á honum.
Svikni hérinn var bragðgóður og
svíkur svo sannarlega engan þrátt
fyrir nafnið. Þá var meðlætið sér-
lega vel útilátið en hérinn var borinn
fram með Jcartöflumús, blönduðu
grænmeti og sérdeilis góðri sultu.
Sultan var einmitt punkturinn yfir
i-ið í þessum málsverð og tengdi
hann vel saman. Heild hlutanna
gekk vel upp og minnir á gamla
tíma þegar matur af þessum toga
var reglulega á matardiskum íslend-
inga. Hádegismatur í Svarta svan-
inum kostar frá 400 krónum upp í
800 krónur og fer verðið eftir magni
og framboði hverju sinni.
tjuliusson@vbl.is
Lambafillet með kartöflum og sósu kostar í kringum 1.000 krónur í Nóatúni, en vert er þó að taka fram að filletið er það dýrasta sem
er á boðstólnum hjá þeim.