blaðið - 09.12.2005, Qupperneq 34
34 I HELGIN
FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005 blaöiö
Föndur og upplestur
fyrir börnin
Jólin eru hátíð barnanna og það
er ýmislegt skemmtilegt í boði
fyrir fjölskyldufólk um helgina.
Víða er boðið upp á föndur, upp-
lestur, söngur og gleði. Þar má
nefna:
Jólastemning í Kringlusafni
Nú á laugardaginn verður jóla-
stemning í Kringlusafni. Þá er
upplagt fyrir foreldra og börn
að líta við á bókasafninu, þiggja
kaffi, safa og smákökur. Hægt er
að fá að láni einhverja af nýju jóla-
bókunum og föndra eins og einn
músastiga, gamaldags jólapoka
eða útbua jóíakort og merkimiða.
Grasagarðurinn í jólabúning
Grasagarðurinn er kominn í jóla-
búninginn og leikskólabörnin
eru farin að streyma að til að
njóta þess sem garðurinn hefur
upp a að bjóða á þessum árs-
tíma. Að venju er búið að setja
upp jólatré utandyra og börnin
ganga í kringum pað og syngja
fullum hálsi svo ómar um dalinn.
Lystihúsið er skreytt og iólajatan
komin á sinn stað. Garoskálinn
er einnig skreyttur og þar er gott
að hvíla lúin bein og taka fram
nestið. Veitingar eru ekki seldar
yfir vetrartímann en skálinn
er opinn frá kl. 10-17 alla daga,
einnig hátíðisdagana. Allir eru
velkomnir.
★★★★★★ ★★★★★
Opfö til kf. 22:00 Alla daga fram aö Jólumi
Þjóðlagagítar
1 Pokl. Ól. Gitarneglur,
StiHiflauta, Auka Strengjasett,
DVD Kennslumynclband.
Þjóðlagagítar/plck.
Pokl, Öl, Stilllflauta. Gltameglur.
Kr. 19.900,
Kr.J 0.900,-
í Klassískur Gítar
* Pokl. StHliflauta, Auka Strsngjasett.
^ DVD Kennslumyndband
★
★
★
*
*
*
★
★
★
★
*
★
★
* Farfisa Hljómborð
í Frá Kr. 4.900,-
★
★
Opið: ★
Mán-Fös: 10-22 J
UÓÐFÆRAVERSLUN Lau'Sun; 11'22 t
k
•k
•k
magnsgitar *
10 W Magnaa Pokí. ÓF Snúra, Gltameglur I
.....'auta, Kennslubók. J
Kr. 18.900,- ;
*
•k
k
k
k
k
k
k
k
k
k
k
k
k
k
k
k
k
k
k
k
k
k
k
k
k
k
k
k
k
k
k
k
k
k
k
k
k
k
Rafmagnsgítar
10 W MagnanTPoki, Ol, Snúra, C
...... DVD Kennslumyndband
. 22.900,-
Gitameglur
, Poki, Ol, Snúra,
10 W
. 29.900,-
Ni&LE^lŒLuse«
Kr RQ QOO -
Stórhöfða 27 • Slmi: 552-2125 • www.gitarinn.is • gitarinn@gitarinn.i6 *
Upplestur í Iðu
í Bókabúðinni Iðu
verður upplestur úr jóla-
bókum bókaforlagsins
Uppheima ásamt útgáfunátíð
í tilefni útgáfu bókar Bítilsins
Paul McCartney - Uppi í skýj-
unum. Dagskrain stendur yfir
frá klukkan 14.00 til 17.00 á
sunnudaginn.
Kl.14.00 Opnunarkynning
Steingrímur Guðjónsson
14.05 Myndir úr Víkinni
Finnur Tjörfi Hjöleifsson les
14.20 Fólkið sem gat ekki dáið
Gyrðir Eliasson les
14.35 Leiðin að heiman
Ari Trausti les
14.50 Tónlist
Orri Harðar
15.15 Brjálsemiskækir á fjöllum
Sigurður Skúlason les
15.30 Voðaverk
Kristín Thorlacius les
15.45 Uppi í skýjum
16.00 Bítl
Bítlarnir
16.20 Fólkið sem gat ekki dáið
Gyrðir Elíasson les
16.30 Leiðin að hciman
AriTraustiles
16.40 Uppi í skýjum
16.50 Bítl
Bítlarnir
Jólastemninq í
Þjóðminjasafninu
Fyrirlestur um jólaköttinn og
leiðsögn um ljósmyndasýningu
á Þjóðminjasafni Islands verður
á laugardaginn kl. 14:00 en það
verður Hrefna Sigríður Bjart-
marsdóttir, þjóðfræðingur, sem
flytur fyrirlesturinn í fyrirlestra-
sal Þjóðminjasafns íslands. Jóla-
kötturinn hefur alla tíð þótt dul-
arfull skepna og meðal manna er
ítið um hann vitað nema orðtök
lau sem honum fylgja, það
lekktasta: „Að fara í jola-
cöttinn“. Hér er ætlunin
að varpa ljósi á þessar
spurningar.
Jólakötturinn.
Teikning eftir Brian Pilkington, 2001.
neuj
NR.1 í AMERÍKU
SILYMARIN
LIFRARHREINSUN
GÓÐ HEILSA-GULLI BETRI
Sigrún Hjálmtýrsdóttir og Páll Óskar koma fram í Skálhoiti á Aðventunni.
Aðventutónleikar
Aðventan er helgitími fyrir tónlist-
arfólk og þá sem hafa gaman af að
hlusta á Ijúfa tónlist. Hvað er þá
friðsælla en að hlýða á ljúfa tónlist
og gleyma jólaamstrinu um stund.
Aðventutónleikar eru haldnir í
kirkjum víða um land og má þar
nefna:
Aðventutónleikar í Skálholtskirkju
Laugardaginn 10. desember 2005
verða haldnir tveir aðventutón-
leikar í Skálholtskirkju. Þar koma
fram: Skálholtskórinn og Barna- og
kammerkór Biskupstungna ásamt
einsöngvurunum Sigrúnu Hjálm-
týsdóttur og Páli Óskari Hjálmtýs-
syni, hörpuleikaranum Monicu
Abendroth og strengjasveit undir
stjórn Hjörleifs Valssonar. Organ-
leikari er Kári Þormar og stjórnandi
Hilmar Örn Agnarsson. Tónleik-
arnir eru kl 17.00 og kl 20.00.
Aðventutónleikar i Hallgrímskirkju
Þann 14. og 15. desember næstkom-
andi munu Gospelsystur Reykja-
víkur, Stúlknakór Reykjavíkur og
Vox feminae halda aðventutónleika
í Hallgrímskirkju undir stjórn
Margrétar J. Pálmadóttur. Margrét
hefur unnið mikið hvatningarstarf í
þágu sönglistar á Islandi og stofnað
og stjórnað fjölda kóra. Árið 2000
stofnaði hún sönghúsið Domus Vox
í Reykjavík þar sem hún sameinar
undir einu þaki söngskóla og kóra-
starfsemi. Stórtónleikar á aðventu
er orðin hefð í starfi Margrétar og
hér sameinast um 200 söngkonur
á öllum aldri ásamt hljóðfæraleik-
urum. Hljóðfæraleikararnir eru
Ástríður Haraldsdóttir sem leikur á
orgel, Eirikur Örn Pálsson leikur á
trompet, Hjörleifur Valsson leikur
á fiðlu og Kristján Þ. Stephensen á
óbó. Miðar eru til sölu í Domus Vox,
Skúlagötu 30, sími 511-3737 milli 16-
18 og hjá kórfélögum. Miðaverð í for-
sölu er 2.000 krónur en 2.500 krónur
við innganginn.
Söngsveitin Fílharmónía
í Langholtskirkju
Söngsveitin Fílharmónía heldur að-
ventutónleika sína „Lofgjörð hirðar
sungu“ í Langholtskirkju sunnudag-
inn 11. desember og mánudaginn
12. desember 2005. Þeir hefjast kl.
20.00 báða dagana. Á efnisskránni
eru stutt tónverk og lög sem flest
tengjast aðventu og jólum. Þau eru
ýmist flutt án undirleiks eða með
aðstoð strengjasveitar sem Rut
Ingólfsdóttir fiðluleikari leiðir. Ein-
söngvari á tónleikunum er Sólrún
Bragadóttir, sópransöngkona, sem
kemur sérstaklega heim frá Dan-
mörku til þess að taka þátt i tónleik-
unum. Stjórnandi tónleikanna er
Bernharður Wilkinson sem um ára-
bil var fastur stjórnandi Söngsveitar-
innar en býr nú í Færeyjum.
Aðventutónleikar íslandsdeildar
Amnesty International
Aðventutónleikar Amnesty Interna-
tional eru orðnir fastur liður á mann-
réttindadaginn 10. desember en þar
sýnir fólk stuðning við mikilvægt
málefni á góðri stund með fallegri
tónlist. Á tónleikunum koma fram
Ragnheiður Gröndal söngkona,
Gunnar Kvaran sellóleikari, Elísabet
Waage hörpuleikari, og hornleikarar
úr Sinfóníuhljómsveit fslands, þau
Joseph Ognibene, Anna Sigurbjörns-
dóttir, Þorkell Jóelsson og Emil
Friðfinnsson. Á tónleikunum verða
meðal annars flutt verk eftir C.Sa-
ints-Saéns, G.Fauré, L.Boccherini,
J.Massenet, W.H.Squire, J.S.Bach
og Eugéne Bozza, Ragnheiði Grön-
dal, Magnús Eiríksson, Jóhann G.
Jóhannsson og Ingibjörgu Þorbergs.
Miðaverð er kr. 1.500. Ágóðinn af
tónleikunum rennur óskiptur til
mannréttindastarfs Amnesty Inter-
national. Forsala aðgöngumiða er
í verslun Skífunnar að Laugavegi
26 og á skrifstofu Amnesty Interna-
tional að Hafnarstræti 15, sími: 551
6940, netfang: amnesty@amnesty.is.