blaðið - 09.12.2005, Blaðsíða 36
36 I MENNING
FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005 blaöiö
Bœkur fyrir konur og um konur
BlaðlÖ/SteínarHugi
Sigrún Halldórs útgáfustjóri bókaforlagsins Jentas. f/Nú er ég búin að loka hringnum og gef út bækur á fjórum tungumálum, oftast samtímis, sem hefur alltaf verið minn draumur."
,Ég er mjög stolt af því að allar mínar
bækur að þessu sinni eru eftir konur
um konur,“ segir Sigrún Halldórs
útgáfustjóri bókaforlagsins Jentas
sem áður hét PP Forlag. „Jentas
samanstendur af Jenta (stelpa
á norsku) og ensku fleirtölu -s.
Ergo: Stelpur,“ segir Sigrún. Forlag
hennar er með höfuðstöðvar í
Kaupmannahöfn og gefur út bækur
á öllum Norðurlöndunum og oft
á þremur til fjórum tungumálum.
Hér á landi hefur útgáfan skrifstofu
á Austurströnd.
Á útgáfulista Jentas þetta árið
eru fyrstu bækurnar um ísfólkið,
Álagafjötrar og Nornaveiðar. „Það
er greinilegt að margir hafa saknað
ísfólksins enda bækurnar ekki
fáanlegar í mörg ár. Við höfum
fengið tölvupósta þar sem verið
að hrósa Snjólaugu Bragadóttur
fyrir þýðinguna og þakka mér
fyrir útgáfuna," segir Sigrún. „Til
stendur að stofna Isfólksklúbb
þar sem lesendur getað skráð sig
og fengið bækurnar sendar heim
til sín með pósti um leið og þær
koma út. Ég er búin að ganga frá
samningi við norsku útgáfuna, sem
á útgáfuréttinn, um útgáfu á öllum
bókunum 47 og jafnvelþeim sem eftir
koma þar sem Sunna galdranorn er
í aðalhlutverki. Alls eru bækurnar
82 ef með er talinn bókaflokkurinn
Galdrameistarinn og Ríki ljóssins,
þar sem afkomendur Sunnu
galdranornar eru í aðalhlutverki.
Það eru vissir fordómar fyrir
ísfólkinu á íslandi og margir sem
ég hitti vilja alls ekki viðurkenna
að hafa legið yfir þessu. Þeir
einstaklingar koma alltaf upp um sig
þar sem eitthvað af börnum þeirra
heita eftir persónum í ísfólkinu:
Sunna, Þengill; Silja, Dagur, Líf og
svona má lengi telja. Ég er mikil
áhugakona um lestur bóka og veit
að þessi bókaflokkur nær til þeirra
sem lesa lítið eða aldrei og hér er
um að ræða norræna arfleið, sögu
og menningu og veitir ekki af í öllu
þessu saxneska og latneska flóði."
ÁvítaratákniðeftirLeneKaaberböl
er einnig á útgáfulista Jentas og er
önnur bókin af fjórum í bókaflokki
um Ávítarann. Bókaflokkurinn er
geysivinsæll á öllum Norðurlöndum
og Lene Kaaberböl hefur nýlega
gert samning við Disney fyrirtækið
um bækur sínar. Sögusviðið
eru miðaldir og aðalhetjur hafa
náttúrulega hæfileika sem getur
verið gott og vont. Nordisk Film hefur
keypt kvikmyndaréttinn og verða
bækurnar kvikmyndaðar á næsta
ári. Enn önnur bók á útgáfulistanum
er Sagnfræðingurinn eftir Elizabeth
Kostova. Þetta er áhugaverð og
skemmtileg bók þar sem Drakúla
kemur mjög við sögu. Bókin er
metsölubók víða um heim. Kostova
var sjö ár að skrifa Sagnfræðinginn
sem er fyrsta bók hennar. „Ég hef
lesið fjöldann allan af umsögum
um þessa bók og allar eru þær
lofsamlegar,“ segir Sigrún. „Ég
hef aðeins lesið einn dóm sem er
neikvæður og það var í Lesbók
Moggans. Sérstaklega eru dómar á
Norðurlöndum lofsamlegir, enda er
höfundurinn af norskum ættum.“
Sigrún segir útgáfuna ganga mjög
vel. „Ég hóf útgáfu í Noregi fyrir
tveimur árum og svo í Svíþjóð í fyrra.
Reyndar byrjaði ég útgáfu Finnlandi
en hvarf frá þeirri hugmynd eftir eitt
ár. Þetta er markaður sem ég þekki
mjög lítið og svo er tungumálið
auðvitað fjötur um fót. En nú er
ég búin að loka hringnum og gef
út bækur á fjórum tungumálum,
oftast samtímis, sem hefur alltaf
verið minn draumur." Spurð
um framtíðarhorfur segir hún:
.Fyrirtækið má ekki vera stærra en
það að ég get kallað á milli herbergja
og skipað fyrir. Og auðvitað stefni
ég að fleiri sigrum í útgáfunni."
Fyrirlestur um
jólaköttinn
Hrefna Sigríður Bjartmarsdóttir,
þjóðfræðingur, flytur fyrirlestur
um jólaköttinn í fyrirlestrasal Þjóð-
minjasafns Islands laugardaginn 10.
desember kl. 14:00.
Jólakötturinn hefur alla tíð þótt
dularfull skepna og meðal manna
er lítið um hann vitað nema orðtök
þau sem honum fylgja, það þekkt-
asta: „Að fara í jólaköttinn“
En hver er þessi óvættur sem læð-
ist um í svartasta skammdeginu ár
hvert og hrellir „saklausar“ sálir.
Hver er uppruni hans, hlutverk og
hverra ætta er hann? Hér er ætlunin
að varpa ljósi á þessar spurningar en
margar og fróðlegar heimildir eru til
um kött þennan og sams konar þjóð-
trú, bæði hér á landi og í nágranna-
löndum okkar.
Jólakötturinn.
Teikning eftir Brian Pilkington, 2001.
fslenskur úlsuuniur
Tradilional lcrlaiulic Embroidcn
Ylirlllsrll uni islenskan úlsainn fyrr á iililuin í Ixik-
ununi eru 50 liimuulir af úlsaumsi’ripum í Þjóö-
minjasafni fslands. skýringarmyndir af saumperöum
oj> 24 hlaðsföur meö reilauppdrállum.
Verð kr. 4.590.00.
Þróun f gcrð fiskvega
lliifundur, Þór Guðjónsson. er fyrn. veiöimálasljóri (1946-
1950 og 1952-1986). í rilinu eru 511 Ijósmyndir af liskvegum <>g
laxasiigum. flestar teknar af liiif. á feröum hans 11111 landiö á
áruuum 1946-2000; hafa fæstar ]>cirra birsl á prenll áður.
Verð kr. 2.500.00.
I>e trelten julesvcnde
The l'hirleen Icelandic Chrislmns l.ads
Lilprcnluö Ixik meö úlsaumuöum myndum
og vísum á íslensku. di'msku og ensku um
íslensku jólasveinana. Grvlu, Leppalúöa og
júlaköltinn. Tilvalin aðventu- eða jólakveöja
lll a-llingja. vina og starfsfélaga innanlands
og ulan.
Verð kr. 1.300,00.
Útgefandi: Elsa E. Guðjónsson
Dreifíng: Háskólaútgáfan
Opið hús
I dag föstudaginn 9. desember,
frá klukkan 16 -19 verður opið
hús í íslenskri list, glerverkstæði
Drafnar, að Fálkagötu 30. Þar er
hægt að skoða og kaupa kerta-
baldca, ólífubakka, konfektbakka,
kexbakka, smákökubakka, pönnu-
kökubakka, glerdiska, fjalladiska,
kort með glermynd, paradiska,
myndir af fuglum, englum, fiðrild-
um.blómum, jólasveinum, bakka,
skálar, smáhluti til að hengja
upp, jólatré, jólasveina, epli, engla,
auk fjölda mynda og verka.
Dröfn Guðmundsdóttir er mynd-
höggvari að mennt, útskrifuð úr
MHI1993 og hefur unnið í gleri
Andlitsskál eftir Dröfn Guðmundsdóttur.
frá útskrift. Hún hefur haldið
margar einkasýningar og einnig
tekið þátt í samsýningum hérlendis
og erlendis, síðast í haust í Strass-
bourgh, Frakklandi. Glerverkstæðið
íslensk list er opið frá kl 15 til 18
á virkum dögum fram til jóla.
Metsölulistinn - erlendar bækur Metsöiulistinn - allar bækur
RedLily Nora Roberts Vetrarborgin Arnaldur Indriðason
1. 1.
2. The (hronides of Narnia C-S-Lewis 2. islandsatlas Hans H. Hansen
3. Ultimate Hitchhiker’s Guide •':'r~sM Douglas Adams 3. Sólskinshestur Steinunn Sigurðardóttir
4. The Broker John Grisham 4. Ég elska þig stormur Guðjón Friðriksson
5. London Bridges JamesPatterson 5. Rokland Hallgrímur Helgason
6. The BigBookofSuDoku Mark Huckvale 6. Thorsararnir Guðmundur Magnússon
7. The Silver Spoon Phaidon Press 7. Þriðja tiknið Yrsa SigurÖardóttir
8. Harry Potter and the Half-blood Prince J.K. Rowling 8. Heimsmetabók Guinness 2006 Vaka Helgafell
9. Atlantis David Gibbins 9. Almanak Háskóla fslands 2006 Háskólaútgáfan
10. Atlantis David Gibbins 10. Þankagangur Jón Gnarr
Ustiiwergeröurútfrásöludagana 30.11.05-06.12.0sl Ustlnnergerðurútfrdsöludagano 30.11.05-06.12.051
Bókabúlum Múls og menningar, Eymundsson og Pennanum Bókabúóum Máls og menningar, íymundsson og Pennanum