blaðið - 09.12.2005, Síða 38
38 I ÍPRÓTTIR
FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005 UaAÍA
Man. Utd.féll úr Meistaradeildinni:
Glazer-fjölskyldan segir tapið
ekki hafa áhrif á framtíðaráform
Stórlið Manchester United, sem féll
úr Meistaradeild Evrópu í knatt-
spyrnu á miðvikudagskvöld, er
talið verða af tekjum sem nema að
minnsta kosti um 1.700 milljónum
íslenskra króna. Þetta er mikið áfall
fyrir félagið og meðlimir úr Glazer-
fjölskyldunni, sem eiga Manchester
United, hafa látið hafa eftir sér að
úrslitin hafi vissulega verið mikil
vonbrigði en hafi þó ekki áhrif á
framtíðaráform fjölskyldunnar
hvað varðar eignarhald Glazer á
United. Fjölskyldan keypti Manc-
hester United fyrr á þessu ári með
lánsfé en Glazer-fjölskyldan á
bandaríska NFL liðið Tampa Bay
Buccaneers.
„Við höfum upplifað sorg og sigra
með Tampa Bay,“ sagði einn með-
limur fjölskyldunnar og bætti við:
„Við erum enn í öðru sæti ensku
úrvalsdeildarinnar og sýningin
verður einfaldlega að halda áfram.“
Svo mörg voru þau orð.
Eitt er víst að þettaer gríðarlegt áfall
fyrir Manchester United sem hefur
miklar tekjur af Meistaradeildinni
ár hvert. Áfallið er ekki síður mikið
og alvarlegt fyrir framkvæmdastjóra
félagsins, Sir Alex Ferguson. Margur
stuðningsmaður United vill karlinn
burtenhannvarþó kokhraustur eftir
tapið gegn Benfica og sagði að nú hæf-
ist mikil uppbygging hjá Manchester
United líkt og gerðist 1995. Starf Sir
Alex er vissulega í hættu og nú velta
breskir fjölmiðlar því fyrir sér hvort
hann hætti í janúarmánuði eða klári
yfirstandandi leiktíð og verði síðan
gerður að sérstökum tæknilegum
ráðgjafa.
Malcolm Glazer.
ísland fær 50
milljónir frá UEFA
Knattspyrnusamband Evrópu hefur
ákveðið að hluti af tekjum sem UEFA
hefur af Meistaradeild Evrópu skuli
renna til allra aðildarlanda innan
UEFA (Knattspyrnusambands Evr-
ópu). Greiðslurnar sem koma til
íslands í ár eru eyrnamerktar barna-
og unglingastarfsemi og er þetta
uppgjör vegna tímabilsins sem lauk
í vor. Upphæðin sem UEFA sendi til
KSf er 50 milljónir íslenskra króna.
UEFA hefur sett fjögur skilyrði
fyrir greiðslu til félags og eru þau
eftirfarandi:
1. Greiðslan fer í gegnum viðkom-
andi knattspyrnusamband.
2. Aðeins félög sem hafa upp-
eldisáætlun sem uppfyllir lágmarks-
kröfur leyfikerfis viðkomandi
knattspyrnusambands, varðandi
barna- og unglingastarf, geta fengið
greiðslu.
3. Fjárhæðin skiptist á milli félag-
anna samkvæmt ákvörðun stjórnar
viðkomandi sambands.
4. Félög sem tóku þátt í Meistara-
deildinni 2004-05 skulu ekki fá hlut-
deild í þessari greiðslu.
Þetta þýðir að KSÍ setti sérstakar
kvaðir á þau félög sem fá greiðslu
að þessu sinni og ákvað stjórn KSÍ
að úthluta þessum 50 milljónum
íslenskra króna til liða sem voru
í Landsbankadeildinni árið 2003.
Félögin eru: KR, FH, ÍA, Fylkir, fBV,
Grindavík, Fram, KA, Þróttur og
Valur.
Hvert félag fær í sinn hlut 1.330.000
krónur og slikir peningar eru ekki
tíndir af trjánum.
Ofurfyrirsætan Heidi Klum verður aðstoðarkynnir á athöfninni I kvöld. Hér er hún ásamt
Goleo, lukkudýri HM 2006.
Dregið í riðla fyrir HM
í Þýskalandi í kvöld
f kvöld verður dregið i riðla í
undankeppni HM í knattspyrnu.
Flestir spá Brasilíumönnum mik-
illi velgengi næsta sumar og segir
margur knattspyrnusérfræðingur-
inn að Brassarnir geti jafnvel stillt
upp tveimur liðum sem færu að
minnsta kosti í undanúrslit keppn-
innar. Gestgjöfum Þýskalands er
ekki spáð eins mikilli velgengni og
heimamenn segja að þeirra lið verði
fullmótað í keppninni 2010. Lið-
unum 32 hefur verið raðað í styrk-
leikaflokka sem líta svona út.
1. styrkleikaflokkur
Brasilía
England
Spánn
Þýskaland
Mexíkó
Frakkland
Argentína
Ítalía
2. styrkleikaflokkur
Ástralía
Angóla
Gana
Fílabeinsströndin
Tógó
Túnis
Ekvador
Paraguay
Þessum liðum, fimm frá Afríku,
Ástraliu og tveimur frá Suður-Amer-
íku, er raðað saman í annan riðil til
að tryggja að ekki fleiri en tvö lið frá
Evrópu lendi saman í riðli.
3. styrkleikaflokkur
Króatía
Tékkland
Holland
Pólland
Portúgal
Svíþjóð
Sviss
Úkraína
Þessi átta lið verða dregin í átta
riðla.
4. styrkleikaflokkur
íran
Japan
Sádí Arabía
Suður-Kórea
Kosta Rika
Trinidad og Tobago
Bandaríkin
Þarna eru fjórar Asíuþjóðir auk
Bandaríkjanna, Kosta Rika og
Trinidad og Tobago. Þessi lið verða
dregin í sjö riðla.
Serbia og Svartfjallaland, sem er
neðsta Evrópuþjóðin á styrkleika-
listanum, fer í riðil með Brasilíu,
Argentínu eða Mexíkóum. Þetta
tryggir endanlega að ekki fleiri en
tvær Evrópuþjóðir lendi saman í
riðli.
fyrirframgreidd símakort fyrir alla síma