blaðið - 09.12.2005, Qupperneq 40
40 I AFPREYXNG
FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005 blaöið
Xbox á eBay
I kjölfar kjánalegs skorts á
Xbox leikjavélum ffá Micro-
soít blómstrar hinn svarti
markaður sem aldrei fyrr. Svo
virðist vera sem annar hver
maður sem nældi sér í eintak
af leikjatölvunni eftirsóttu hafi
ákveðið að selja hana affur á
uppboðsvefnum eBay. Þannig
geta þeir sem treystu á Xbox
sem auðvelda jólagjöf nú náð
í eitt stykki fyrir allt að tvöfalt
verð. 1 gær voru vélar að seljast
fyrir 6o til 8o þúsund krónur
í stað þeirra 45 þúsunda sem
þær kostuðu í smásölu. Fyrst
um sinn voru vélarnar mun
dýrari á eBay en svo virðist sem
stoltir eigendur tölvanna hafi
séð grænna gras handan upp-
boða svo nú er framboð orðið
það gott að vel er hægt að finna
tölvur á viðráðanlegu verði.
109 SU DOKU talnaþrautir
Leiðbeiningar
Su Doku þrautin snýst um að
raða tölunum frá 1 -9 lárétt
og lóðrétt í reitina, þannig
að hver tala komi ekki nema
einu sinni fyrir í hverri línu,
hvort sem er lárétt eða lóörétt.
Sömu tölu má aukin heldur
aðeins nota einu sinni innan
hvers níu reita fylkis. Unnt er
að leysa þrauhna út frá þeim
tölum, sem upp eru gefnar.
8 2
4 8 2
6 3 8 9
6 3 5
8 7 5 9
7 2 6
9 5 1 8
8 5 7
5 3
Lausn á siðustu þraut
2 3 6 9 4 1 7 5 8
9 8 7 5 3 6 2 1 4
4 1 5 7 8 2 6 3 9
1 9 3 2 6 4 8 7 5
5 2 4 8 7 3 1 9 6
7 6 8 1 9 5 3 4 2
3 7 9 4 2 8 5 6 1
6 5 2 3 1 9 4 8 7
8 4 1 6 5 7 9 2 3
Jólaklifur
íslenski alpaklúbburinn
stendur fyxir ískliff i í
Múlafjalli eftir því sem
ísaðstæður leyfa á morgun.
Allir mæta með sinn ísklifur-
búnað og þurfa að hafa lokið
ísklifurnámskeiði. Hægt
er að skrá sig á www.isalp.
is. Þar er einnig hægt að fá
upplýsingar um námskeið
og fleira þessu tengt.
Verslanamiðstöðinni í Dubai er engin smásmíði. Viðhanaerfimm stjörnu hótel - innréttað í alpastfl. Til hliðar eru Ijósmyndir innan úr skiðahöllinni.
Reðurtákn rísið i Dubai
Olíufurstarnir í Dubai hafafátt annað aðgera við tímann ogpeningana en að herma eftir
íslendingum. Þeirra Smárálind heitir reyndar ögn flottara nafni en okkar, Verslanamið-
stöð Furstadœmanna. Svo hefur hún að bjóða risastóra innanhúss skíðabrekku.
Það þóttu stórtíðindi þegar veður-
fræðingar spáðu snjókomu í miðri
eyðimörkinni fyrir nokkrum vik-
um. Þó var ekki um að ræða enn
eitt gróðurhúsaklúður mannsins
heldur voru olíubarónarnir að opna
innanhúss skíðahús í Dubai. Þar er
hægt að leigja allt sem þarf til skíða-
eða snjóbrettaiðkunar og kostar tíu
skipta kort tæpar 20 þúsund krónur.
Hitastigið í höllinni er rétt undir
frostmarki á daginn en er lækkað
niður í -8°C á nóttunni svo snjófram-
leiðsla gangi vel fyrir sig. Að sögn að-
standenda er öll áferð og útlit gervi-
snjósins eins og á „villtum" snjó. Á
nóttunni myndast nefnilega ský
innan þessa gífurlega stóra rýmis og
snjóar úr því rétt eins og á Akureyri.
Sex þúsund tonn af snjó þarf alla-
jafna til að halda skíðasvæðinu opnu.
Þar er 400 metra löng brekka með
kvartpípu, snjóbrettasvæði og fimm
brekkur með mismiklum halla, þar
af ein svokölluð svört brekka, sú
eina í heiminum innanhúss. Spurn-
ing hvort svona mætti byggja i hlíð-
um Úlfarsfells þangað til snjórinn
kemur aftur hér sunnan heiða.
Vantar bara snjóinn
Bláfjöil í fyrravetur. Bla0i6/Stelnar Hugi
Ifyrradag hittust fulltrúar skíða-
svæðanna á höfuðborgarsvæð-
inu ásamt hagsmunaaðilum til
að ræða um stefnu skíðasvæðanna
á næstu árum. Farið var yfir stöðu
fyrri stefnumótunar sem náði yf-
ir tímabilið 2000 til 2007 sem ber
heitið „Fjöllin heillá' og rætt um
framtíðarmarkmið. Að sögn Sævars
Kristinssonar ráðgjafa kom margt
nytsamlegt fram á fundinum þó að
enn sé helst til snemmt að fullyrða
nokkuð. „Við vorum að endurskoða
gamla planið og kanna næstu skref.
Það hefur margt gerst frá því að
verkefnið hófst en alltaf má bæta eitt-
hvað,“ segir Sævar. Búið er að vinna
mikið í fjöllunum aukþess sem tekið
hefur verið til í rekstrinum og hann
gerður skilvirkari. Þá hefur flutnings-
geta skíðalyftanna aukist um 5.000
manns á klukkustund undanfarin
misseri svo biðraðir ættu að heyra
sögunni til. Sævar segir að í raun
vanti ekkert núna nema snjóinn.