blaðið - 09.12.2005, Side 45
blaðið FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005
DAGSKRA I 45
Parker neitar
sögum um laun
Sarah Jessica Parker hefur þver-
neitað kjaftasögunum um að hún
þéni 21 milljón sterlingspunda á ári
og fullyrðir að hún gæfi milljónir
til góðgerðarmála ef hún ætti svo
mikið. Hinni fjörutíu ára gömlu
stjörnu úr Beðmálum í borginni er
skemmt vegna nýlegra sögusagna
um að hún sé ríkasta konan í New
York og óskar að hún væri það svo
hún gæti gefið peninga til málefna
sem henni eru hugleikin: „Þetta er
hlægilegt en er því miður ekki rétt,“
segir hún. „Ef ég ætti svo mikið af
peningum myndi ég gefa þá til allra
bókasafnanna og allra ballett-skól-
anna sem þurft hefur að loka vegna
fjárskorts.“
TAKTU
STJÓRNINA
og njóttu lífsins!
EITTHVAÐ FYRIR...
...fjölskyldufólk
Sjónvarpið - Napóleon og Sam-
antha - kl. 20.40
Bandarísk fjöl-
skyldumynd frá
1972. Napóleon
er 11 ára og býr
hjá afa sínum.
Góður vinur
hans er trúður í
sirkus en þegar
trúðurinn
heldur til Evr-
ópu tekur Napóleon að sér að hugsa
um ljónið Majór. Þegar afi Napó-
leons deyr stingur hann af með Sam-
önthu vinkonu sinni og hefur ljónið
með sér.
...grallara
Stöð 2 - Punk'd - kl. 21:30
Grallaraspóinn og
kyntáknið Ashton
Kutcher heldur
uppteknum hætti
við að hrella og
hrekkja fínu og
frægu vini sína í
Hollywood með
falinni myndavél.
Stöð 2 bíó - Like Mike - kl. 20:00
Ævintýraleg gamanmynd fyrir alla
fjölskylduna. Calvin og vinir hans
búa á munaðarleysingjahæli. Kvöld
eitt finna þeir gamla íþróttaskó en á
þeim má rétt greina áletrunina MJ.
Calvin prófar skóna en þá slær niður
eldingu. Aðalhlutverk: Lil' Brown
Wow, Morris Chestnut, Jonathan
Lipnicki. Leikstjóri: John Shultz.
2002. Leyfð öllum aldurshópum.
■ Stutt spjall: Búi Bendtsen
Búi er þáttastjórnandi Morgunþáttarins Capone á Xfm og Klassíska klukkutímans.
er lítið í sjónvarpinu sem heillar mig, ég
byrjaði að horfa á þessa raunveruleika-
þætti en nú er maður alveg að drukkna
í þeim þannig að þeir eru dottnir út hjá
mér. Annars skelli ég frekar DVD í tækið
annað slagið.
Hvað er það vandræðalegasta sem
hefur gerst fyrir þig í útsendingu?
Það var þegar við vorum að byrja á
Morgunþættinum Capone en þá var
ég sendur í vaxmeðferð. Rassinn á mér
og bakið var rakað í beinni útsendingu.
Þetta var frekar vandræðalegt en samt
skemmtilegt. Þegar maður lendir í ein-
hverju vandræðalegu þá verður maður að
gera eitthvað sniðugt og skemmtilegt úr
því og það er meira og minna það sem
þátturinn snýst um.
Hver myndirðu vilja að væri síðasta
spurningin í þessu viðtali?
Af hverju baula beljurnar?
Af því að þær eru kátar og hressar.
Hvernig hefurðu það í dag?
Ég hef það Ijómandi fínt og hef sjaldan
haft það þetra.
Hvenær byrjaðirðu fyrst að vinna í
fjölmiðlum?
Það er ekkert allt of langt síðan, ég held
það sé komið rúmlega ár síðan ég þyrjaði.
Hvernig kanntu við að vinna í útvarpi?
Það er frábært, mig hefur alltaf dreymt
um að gera þetta.
Langaði þig að verða útvarpsmaður
þegar þú varst lítili?
Já mig langaði alla vega að gera eitthvað
sem tengist tónlist á einhvern hátt og nú
er ég bæði að vinna í útvarpi og að spila
tónlist með Brainpolice þannig að ég
kvarta ekki.
Er vinnan í útvarpi öðruvísi en þú
hefðir búist við?
Það sem kom mér mest á óvart er að
þetta er aðeins meiri vinna en ég bjóst
við, það fer mikill tími í að finna efni og
annað. Þegar ég er að kynna efni er gott
að hafa eitthvað kjöt á beinunum enda
verður maður að reyna að segja eitthvað
af viti og það getur verið erfiðara en
margirhalda.
Hvað er uppáhalds
sjónvarpsefnið þitt?
Eg verð eiginlega
að segja Strákarnir
af því að þeir
buðu okkur í
þáttinn í gær. Það
var rosalegt, ég
endaði í áskorun
og var sleginn
með skvassbolta
í andlitið á yfir
hundrað kílómetra
hraða og bólgnaði
allverulega. Annars
Hvernig er dæmigerður dagur hjá
Búa?
Ég vakna rétt fyrir sex, tek strákinn
minn til og fer svo í vinnuna að verða
sjö en þátturinn minn er á milli
sjö og tíu. Þá er ég með Klassíska
þáttinn milli fimm og sex. Ég
sæki strákinn minn í skólann og er
annað hvort heima með konunni
minni eða fer á hljómsveitaræfingu.
Dagurinn er ekkert flókinn hjá mér
en skemmtilegur.
f
■ Spurning dagsins
Móti hækkandi sól
- lærðu að virkja kraft
vonar og heppni í lífi þínu
Árelía Eydís Guðmundsdóttir, lektor við Viðskipta- og
hagfræðideild H.í. nýtir menntun sína og reynslu úr
viðskiptaheiminum og segir:
Þú ertþitt eigið fyrirtæki - taktu stjómina og njóttu lífsins!
Hugtök eins og stefnumótun, markmiðslýsing og endur-
mat eiga ekki bara heima í fyrirtækjaskýrslum, heldur líka
hjá hverju og einu okkar.
• • •
... Höfundur hefur af miklu að miðla og gerirþað afsvo mikilli
hreinskilni og einlægni að bókin verður samherji lesandans frá
fyrstu síðu. Textinn er auðskiiinn og aðgengilegur en býður
jafnframt upp á ferska sýn á margt það í mannlegu eðli sem
ráðið getur úrslitum í vexti og þroska.
Þorvaldur Þorsteinsson
Hvaða tímarit lest þú?
eigandi kennsla.is
\
Stella
Ragnheiður
Sveinsdóttir
Þaðersennilega
helst Gestgjafinn.
.. Bókin er full aflifandi og skemmtilegum æfingum og
dæmum sem fá okkur til að skoða stöðu mála út frá
mismunandi sjónarhornum.
Ég óska höfundi til hamingju með þessa fallegu bók.
Guðfinna Bjarnadóttir,
rektor við Háskólann í Reykjavík
—1 Sigrún Edda
Halldórsdóttir
Orðlaus.
Björg
Magnúsdóttir
Bara flestöll sem
ég kemst i. Ég
hefvoðalega
gaman af Hérog
nú og Séð og
heyrt.
Ármúla 20 • sími 552 1122 • www.salkaforlag.is