blaðið - 09.12.2005, Blaðsíða 46
461 FÓLK
FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 2005 blaðið
HVEFRÖKK ER
VOR ÆSKA?
„Þetta var bara einhver róni." Þetta var
afsökun ungmenna fyrir því að þjarma að
manni sem minna má sín f þjóðfélaginu.
Stuttu síðar var sagt frá manni sem barði
öryrkja fyrir þá sök að hafa vogað sér að
setja ofan í við hann þegar sá heilbrigði
lagði í stæði merkt öryrkjum. Þeir sem
skvettu vatni á „rónann" sáu að sér og
báðust afsökunar. Þrátt fyrir þetta veltir
Smáborgarinn því fyrir sér hvað sé orðið
um náungakærleikann og þann hugsunar-
hátt að koma vel fram við þá sem minna
mega sfn. Sameinumst hjálpum
þeim ætti frekar að hljóma dreyfum
okkur og tröðkum á þeim. Eða
eigum við bara að vera góð við fátæku
börnin (Afríku?
Til er saga af moldvörpu sem vildi vita
hver skeit á hausinn á henni. Nemendum
Víðistaðaskóla í Hafnarfirði er hins vegar
mikið í mun að komast að því hver skeit
í skólatöskurnar þeirra. Skólastjórnend-
ur hafa verið þöglir sem gröfin, kannski
halda þeir að það sé rétt að rugga ekki
bátnum meira en orðið er. Smáborgarinn
telur þó að foreldrarnir sem lenda í því
að þrífa saur úrskólatöskum barna sinna
vilji gjarnan vita hver á sök í þessu máli
til að hægt sé að taka á því á viðeigandi
hátt. Smáborgarinn veltir því líka fyrir
sér hvort hlíðstæðar uppákomur hafi allt-
af verið til en að dugnaður fjölmíðlafólks
verði til þess að þau rata á sfður blaðanna
nú.
Smáborgarinn veit að flest ungmenni
eru til fyrirmyndar og myndi aldrei
taka þátt í neinu svona löguðu, en um
leið veltir hann fyrir sér hvað valdi þvf
að sumir krakkar geri svona hluti? Vor
ágæta æska hefur aldrei haft það eins
gott. Skóladagur hefur reyndar lengst
frá þvf sem áður var en á móti kemur að
börn f dag virðast ekki skorta neitt, nema
e.t.v. meiri tíma með foreldrum sfnum.
Kannski er það einmitt mergur málsins?
Aðrir sem Smáborgarinn hefur rætt við
um þessi mál vilja meina að ákveðið sjón-
varpsefni hafi þessi áhrif á krakkana. Ef
sú er raunin hefur sjónvarpið orðið meira
hegöunarmótandi gildi en foreldrarnir.
Ef svo er, þá er það eitthvað sem þarf að
athuga, ekki satt?
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Margrét Margeirsdóttir, formaður
félags eldri borgara t Reykjavik.
Hvaö finnst þér um fjárlaga-
frumvarp ríkisstjórnarinnar?
„Það þarf að auka fjármagn inn í málaflokk aldraðra og í raun þarf einfald-
lega að marka nýja stefnu í málefnum þessa fólks. Það er mjög ámælisvert
að ekki skuli hafa verið gert ráð fyrir auknu fjármagni varðandi lífeyris-
greiðslur og lækkun skatta til fólks sem er með þessar lágu tekjur. Við höf-
um sett fram ýmsar kröfur um það, til dæmis að ellilífeyrir verði gerður
skattfrjáls og tekjutengingar og skerðingar verði einfaldlega afnumdar.
Það lifir enginn af því að vera eingöngu á þessum bótum frá Trygginga-
stofnun og þessar skerðingar sem koma til fólks sem getur unnið fyrir sér,
þær eru auðvitað fyrir neðan allar hellur.“
Stjórnarandstaðan hefur gagnrýnt fjárlög næsta árs og bent á að ekki sé nóg að gert í málefnum aldraðra. Eldri borgarar og
öryrkjar efna til göngu og útifundar í dag kl 16.30. Gengið verður frá Hallgrímskirkju og að Austurvelli.
Keira er með skódellu
Keira Knightley segist vera sjúk í skó. Hún hefur sagt frá því að hún hafi jafnvel keypt
skópör sem passi ekki, bara til að horfa á þá í kössunum. Hún sagði í nýlegu viðtali í tíma-
ritinu Grazia: „Ég á skó sem ég hef aldrei tekið úr kössunum. Ég á meira að segja skó sem
passa ekki á mig. Ég horfi bara á þá og hugsa: Æ, það er allt í lagi þótt ég geti ekki gengið
þeim, þeir eru svo fallegir."
Arctic Monkeys
staðfesta plötutitil
Britney Spears hefur ákveðið að gefa eiginmanni sinum Kevin Federline annað tækifæri.
Hin 24 ára stjarna henti honum út úr húsi þeirra á Malibu eftir ítrekuð rifrildi. Britney, sem
á með Kevin þriggja mánaða gamlan son Sean Preston, hótaði skilnaði. Hún flaug til Las
Vegas til að vera við Billboard verðlaunaafhendinguna og Kevin elti hana þangað. Hún neit-
aði hins vegar að tala við hann, missti af athöfninni og flaug til sins heimabæjar í Louisiana.
Talsmaður hennar sagði: „Ég held að hún sé honum ekki reið fyrir eitthvað ákveðið. Hún er
bara uppgefin vegna nýs lífsstíls, að vera móðir og eiginkona. Stundum tekur hún það út á
fólkinu sem stendur henni næst og hún veit að stendur með henni.“ Nú er söngkonan stödd
í Malibu í Kaliforníu með Kevin og barninu.
Hljómsveitin Arctic Monkeys hafa staðfest titilinn á fyrstu skífu sinni. Hún verð-
ur kölluð Whatever People Say I Am, That’s What I’m Not og mun koma út
30. janúar samkvæmt blaðinu NME. Smáskífan When The Sun Goes Down
mun svo koma út þann 16. janúar og innihalda tvö ný lög, Stickin To The
Floor og 7. Á vínilplötu-útgáfu skífunnar mun aukalagið Settle For
a Draw fylgja með. Listi með lokauppröðun á lögunum verður fljót-
lega birtur.
Britney og Kevin saman á ný
HEYRST HEFUR...
Pað að Skjár 1 hafi ákveðið að
taka Fóík með Sirrý af dag-
skrá kemur mörg-
um á óvart, ekki
síst þar sem Sirrý
hefur verið talin
hin íslenska Oprah.
Þættir hennar hafa
notið talsverða vin- ■ Í
sælda og oftar en * »
ekki hefur henni tekist að fá til
sín viðmælendur sem opna sig
um viðkvæm mál. Þá má nefna
að þættirnir hafa oftar en einu
sinni verið tilnefndir til Eddu
verðlaunanna. Telja má líklegt
að 365 miðlar renni hýru auga
til Sirrýjar enda hafa þeir áður
haft áhuga á að fá hana í sinar
raðir.
Mörður Árnason ræðir um
hugsanlega endurkomu
Jóns Bald-
vins Hanni-
balssonar á
heimasíðu
sinni. „Jón
Baldvin seg-
ir í Blaðinu
að ekkert
sé útilokað
um störf sín í pólitík eftir að
hann leggur pípuhatt sendi-
herrans á hilluna um áramótin
og þau Bryndís koma heim. Og
auk okkar Kolbrúnar Bergþórs-
dóttur sem höfum hvatt Jón
Baldvin til dáða innan Sam-
fylkingarinnar eru nú komnir
í móttökusveitina tveir traustir
Jónsmenn, þeir Jakob Frímann
Magnússon, varaþingmaður
minn, og fornkappinn ÁÁ,
einn duglegasti og merkilegasti
aktívistinn i hreyfingu jafnað-
armanna - og að auki frægur
fyrir umbastörf og útgáfur í
tónlistarbransanum, - maður-
inn sem skipulagði fundina tvö-
hundruð þar sem JBH spurði
„Hver á lsland?“ og kveikti á
rauðu ljósinu fyrir Jón Baldvin
og Ólaf Ragnar sællar minning-
«
örður heldur áfram:
Ámundi
dæmið“
Samfylkingin
eigi að verða
stærsti flokk-
urinn eftir
næstu kosn-
ingar með
Jóni Baldvini
- en tekur að
sjálfsögðu fram að það verði
undir ábyrgri forystu Ingibjarg-
ar Sólrúnar. „Ég fer bara á flug,“
segir Ámundi við blaðamann.
„Jólastjarnan er bara komin aft-
ur inn í mitt líf. Ég fer svo sann-
arlega ekki í jólaköttinn í ár.“
Og þetta eru lokaorð Marðar:
„Ámundi er augljós foringi
okkar í fjögurra-manna-klí-
kunni í þessari ráðagerð. Og nú
um sólstöðurnar ætlum við að
syngja öll saman vísurnar hans
Tómasar:“
Nú verður aflur hlýtt og bjart um bœinn.
Afbernskuglöðum hlátri strætið ómar,
þvl vorið kemur sunnan yfir sœinn.
Sjá, sólskinið á gangstéttunum Ijómar.
Og daprar sálir söngvar vorsinsyngja.
Ogsvo er mikill Ijóssins undrakraftur,
að jafnvel gamlir simastaurar syngja
ísólskininu og verða grœnir aftur."
Amen."
Hann hefur sett lím á lappirnar aftur.