blaðið - 06.05.2006, Blaðsíða 10
10 I FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2006 blaAÍð
1.590
pr.m2
___ m m DIUUIU/MCIIIUI nui
Fa tugguna sina
Það er ekki bara í sveitum landsins sem sauðburður er hafinn, því það á einnig við um
Húsdýragarðinn í Reykjavík. Lömbin vekja mikla athygli hjá yngstu gestum garðsins,
og ekki er verra þegar leyfi faest til að gefa þeim þó ekki sé nema örfá strá, eins og hún
Gyða Asdís Kristinsdóttir fékk að reyna f vikunni.
Vinnandi börnum
fækkar víða um heim
Ný skýrsla Alþjóðavinnumálastofnunarinnar leiðir í ljós að börnum
sem neyðast til að vinna til að draga fram lífið hefur fækkað mikið.
í fyrsta skipti á síðari tímum hefur
fækkað þeim börnum sem neyðast
til að stunda vinnu til að draga fram
lífið. Þykja þetta fagnaðartíðindi
og til marks um að alþjóðlegar her-
ferðir sem blásið hefur verið til í því
skyni að vekja athygli á hlutskipti
þessara barna hafi skilað árangri.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu
Alþjóðavinnumálastofnunarinnar
Aætlað er að um 122 milljón ir barna stundi vinnu f Asíu.
(ILO). Nú eru 218 milljónir barna skil-
greindar sem „verkamenn" (á enskri
tungu „child labourers“). Þeim
hefur fækkað um heil 11% frá síð-
ustu könnun sem birt var árið 2002.
Þá voru 246 miljónir barna taldar
falla undir þessa skilgreiningu.
Ástandið er á hinn bóginn afar
mismunandi í hinum ólíku hlutum
heimsins. Fækkun barnungra verka-
manna hefur orðið mest i Rómönsku-
Ameríku. Staðan í Afríku hefur hins
vegar lítið breyst.
I skýrslu ILO er vísað til þess að
alþjóðlegar herferðir til að vekja
á því athygli að víða um heim
séu börn dæmd til þrældóms hafi
skilað árangri. Lagabreytingar eru
og nefndar til sögu. Hafa vonir nú
vaknað um að uppræta megi nokkur
birtingarform barnavinnu á næstu
árum.
í skýrslu ILO er því haldið fram
að þessa jákvæðu þróun megi leggja
að jöfnu við vatnaskil. I fyrsta skipti
í sögunni megi nú telja raunhæft
það langtímamarkmið að uppræta
með öllu vinnu barna.
I skýrslunni kemur fram að á
síðustu fjórum árum hefur þeim
fækkað til muna börnum sem
vinna hættuleg störf sem t.a.m. fela
í sér umgengni við eiturefni. Það
sama á við um börn sem starfa í
„kynlífsiðnaði".
Fjöldi barna sem starfa við það
sem skilgreint er sem hættulegar
aðstæður hefur minnkað um 26%
frá síðustu könnun. Þá hefur mjög
ungum vinnandi börnum um heim
allan fækkað um 33%. Guy nokkur
Thijs sem starfar á vegum ILO að
því að fækka barnungum verka-
mönnum segir þetta „afar ánægju-
leg“ tíðindi.
„Stjórnvöld hafa breytt um stefnu,
löggjöf hefur verið breytt, áætl-
unum hrint í framkvæmd og greini-
legt er að aukin áhersla er lögð á að
uppræta barnavinnu. Ég tel því að
við séum komin umfram það stig
að vinna eingöngu að því að auka
skilning á þessum vanda,“ sagði
Thjis í samtali við Breska ríkisút-:
varpið, BBC. „Nú er svo komið að
stjórnvöld í mörgum ríkjum leggja
fram fjármuni í því skyni að stöðva
vinnu barna og taka þennan vanda
alvarlega,“ bætti hann við.
I skýrslu ILO er sérstaklega vísað
til Brasiliu þar sem fjöldi vinnandi
barna á aldrinum fimm til níu ára
hefur minnkað um 60%. í Róm-
önsku-Ameríku hefur barnungum
þrælum fækkað nokkurn veginn að
því skapi.
Ástandið er þó víða óbreytt. f Afr-
íku sunnan Sahara eru 26% barna
við störf af einhverju tagi. Mestur
er fjöldinn þó í Asíu, þar vinna 122
milljónir barna vinnu af hendi.
Samkvæmt vinnusáttmála ILO
þurfa aðildarríki hans að skilgreina
við hvaða aldur skuli miðað til að
vinna barna teljist lögleg. f flestum
þróuðum ríkjum er miðað við 15 ára
aldur en víða í þróunarríkjum er
miðað við 14 ár.
HARÐVIÐARVAL
þegar þú kaupir gólfefni
Krókhálsi 4 110 Reykjavík Sími 567 1010 www.parket.is
TILBOÐ!
Einn gámur eitt verð:
Plastparket: Eik Classic með áföstu
hljóðeinangrandi undirlagi og eikarlistum
LtviNa
■HYMER
Lúxus á hjólum
Hjólhýsi verða ekki öllu vandaðri eða glæsilegri en
Hymer hjólhýsin enda hafa framleiðendur þeirra
verið í fararbroddi hjólhýsaframleiðenda í Evrópu
síðustu áratugi.
Nqva
’jöirwa Mt mm
Opið
virka daga 10-18
laugardaga 10-16
sunnudaga 12-16
ELLINGSENl evró
Grandagarði 2, sími 580 8500