blaðið - 06.05.2006, Blaðsíða 54
54 IFÓLK
LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2006 blaðið
UM WAUÐSYW
ÞESS AÐ FLYTJA
HLUTI
Smáborgarinn er afar hlynntur þeirri
hugmynd að færa Árbæjarsafnið út í
Viðey. En eins og svo oft áður á þessu guð-
dómlega landi okkar er of smátt hugsað.
Vilji menn ýta minnismerkjum um fortið
okkar til hliðar og út úr alfaraleið dugir
engan veginn að koma einungis Árbæj-
arsafninu fyrir kattarnef. Saltfisksetrið í
Grindavik og styttan af vísitölufjölskyld-
unni sem stendur við hringtorgið við
Þjóðminjasafnið verður að fara þangað
líka. Og í framhaldi geta þeir íslendingar
sem ekki þiggja milljóna króna starfsloka-
samninga, lífeyrisgreiðslur og ofurlaun
tekið sér bólfestu (eynni. Þá loksins skap-
ast svigrúm til þess að uppfylla spádóm
Biblíunar um að hinir nýríku muni erfa
landið.
Annars er það merkilegt við borgar-
stjórnarkosningarnar í Reykjavík að þær
snúast ekki um pólitík. Þær snúast um
að færa hluti. Sumir vilja færa flugvöll
til og frá og aðrir hafa skiptar skoðanir
um hvernig eigi að færa hið ímyndaða
fyrirbrigði Sundabraut til. Að sjálfsögðu
er engin samstaða um þessa hluti. En
hinsvegar eru allir sammála um að það
eigi að færa fortíðina til þannig að hún
verði ekki í alfaraleið.
Þetta erafar merkilegt.
Hér er ekki verið að gera lítið úr nauðsyn
þess að færa hluti til. Það er nefnilega
full nauðsyn að færa eitt og annað til.
En í þessu máli, sem öðrum, þarf að for-
gangsraða.
Það er nauðsynlegt að færa fyrirhug-
að hátæknisjúkrahús. Það á ekki að vera
í miðbænum. Það á að vera í Fossvog-
inum. Einnig er brýn nauðsyn að færa
til fyrirhugað tónlistarhús. Það á ekki
heldur vera í miðbænum heldur einhvers-
staðar þar sem venjulegt fólk leggur ekki
leið slna. Afskekkt eyja kemur til greina
og einnig er vel hugsanlegt að stofna í
kringum það listaþorp einhversstaðar á
hálendinu og flytja okkar fremsta lista-
fólk þangað.
En ekkert er brýnna en að flytja stjórn-
málamenn. Þrátt fyrir að Smáborgarinn
hafi ekki fengið nema nokkurra prósenta
fylgi í síðustu könnun um vinsældir nafn-
lausra dálkahöfunda telur hann að það
geti myndast þjóðarsátt um að flytja
íslenska stjórnmálamenn á Löngusker.
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Kínverskur fjöllistamaður spýtir mjólk úr auga sínu með því að loka nefinu og blása á sýningu í Nanjing
Leikkonurnar Lily Tomlin og Virginia Madsen mæta á frumsýningu
myndarinnar A Prairie Home eftir Robert Altman á kvikmyndahátíð í
San Francisco
Leikarinn Tobey Maguire horfir spenntur á viðureign LA
Lakers og Phoenix Suns í NBA-deildinni í körfubolta
Borgarstjóra hefur verið falið að kanna kosti og galla þess að Arbæjarsafnið verði fært um set og húsunum komið fyrir í
Viðey.
Pétur Ármannsson, arkitekt.
Hvað finnst þér um hugmyndir
þess efnis að flytja Árbæjarsafn-
ið út í Viðey?
„Að flytja Árbæjarhúsin og endurskapa þorpið á austurenda Viðeyjar er
ein besta hugmynd sem ég hef heyrt í langan tíma. Hún er raunhæf og
heillandi í senn, bæði fyrir safnið og eyjuna. Ég vona að hún verði að
veruleika."
eftir Jim Unger
Mamma má ekkert vita. Ég sagði henni að
7-16
© Jim Unger/diBl. by United Media, 2001
þú hefðir stungið af með ritaranum.
HEYRST HEFUR...
Björn Bjarnason, dómsmála-
ráðherra,
hefur verið
sæmdur gull-
merki Lands-
sambands lög-
reglumanna.
Björn er fyrsti
einstaklingurinn utan lögregl-
unnar, sem hlýtur gullmerkið.
Merkið fær Björn fyrir að hafa
sýnt metnað fyrir hönd lög-
reglunnar og honum er einnig
launað með þessum hætti að
hafa fjölgað stöðugildum innan
lögreglunnar. Lögreglumönn-
um hefur aldrei fjölgað áður
sem í ráðherratíð Björns. Ætli
ríkisstarfsmenn heiðri næst
fjármálaráðherra Sjálfstæðis-
flokksins fyrir að hafa staðið
fyrir mestu útþenslu ríkisins
og fjölgun starfsmanna þess á
síðari tímum?
Staksteinahöfundur Morg-
unblaðsins ber upp ýmsar
áleitnar spurningar í sambandi
við borgarstjórnarkosningarn-
ar í Reykjavík. Höfundur telur
mikla deyfð einkenna kosninga-
baráttuna og spyr hver græði á
þessum rólegheitum. Og ekki
stendur á svarinu: Sjálfstæðis-
flokkurinn.auð-
vitað.Höfundur
Staksteina segir
aðeinieldurinn
sem kviknað
hafi í kosninga-
baráttunni hafi
verið sá að Ólafur F. Magnús-
son, oddviti Frjáls-
lynda flokksins í
Reykjavík, kallaði
Björn Inga Hrafns-
son, efsta mann
ljósgræna bé-list-
ans lygara. Varla
er það nú uppbyggileg pólitík.
O
IStaksteinum er látin í ljós sú
von að hér sé ekki að skapast
bandarískt ástand þar sem ótrú-
lega lítill hluti kjósenda neytir
atkvæðisréttar. Er ekki líklegt
að einmitt þetta gerist? Fólk sér
lítinn mun á flokkunum sem
bjóða fram í Reykjavík. Ekki er
það nú líklegt til að auka áhug-
ann. Kosningabaráttan fer fram
í sjónvarpsþáttum sem fáir
nenna að horfa á og þess á milli
treysta frambjóðendur á auglýs-
ingar í fjölmiðlum. Auglýsing
þar sem Dagur B. Eggertsson
birtist með kornungan son sinn
í fanginu og boðar nýja Reykja-
vík er síðan dæmigerð fyrir þær
baráttuaðferðir sem menn hafa
lengi treyst á í Bandaríkjunum.
Fregnir af kappakstri ís-
lenskra auðmanna úti í
heimi hafa vakið nokkra athygli
þó þær hafi verið í rýrara lagi;
svo rýrar, að á reiki hefur verið
hverjir þetta séu, sem bruna að
fordæmi Burt Reynolds á mörk-
umhinslöglegaumheimsbyggð-
ina. Jón Ásgeir Jóhannesson,
forstjóri Baugs, ekur á glænýj-
um Bentley ásamt gömlum vini
og verktaka, Guðmundi Inga
Hjartarsyni. Hannes Smárason
hefur hins vegar meiri trú á
Porsche Cayenne, sem hann ek-
ur í félagi við Þorstein Jónsson
í Vífilfelli. Annar vinur Jóns
Ásgeirs, Ragnar Agnarsson hjá
Saga Film, etur svo kappi við þá
ásamt Magnúsi Ármann, fyrr-
verandi skemmtistaðakóngi og
stjórnarmanni í FL Group, á
BMW M5. Gárungarnir segja
að í ljósi margháttaðra tengsla
kappakstursmannanna knáu
væri réttast að samkeppnisyf-
irvöld og yfirtökunefnd blönd-
uðu sérímálið...