blaðið - 06.05.2006, Blaðsíða 40

blaðið - 06.05.2006, Blaðsíða 40
• 40 I MEWWIWG . LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2006 blaöið Frumleiki og nýsköpun Það kennir óneitanlega margra og forvitnilegra grasa á útskriftarsýn- ingu nemenda í Listaháskóla íslands sem opnuð verður í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsi í dag. Nemendur sem eiga verk á sýningu eru um 70 talsins og koma úr myndlistardeild, hönnunar- og arkitektúrdeild og eru verkin afrakstur þriggja ára náms við skólann. Hugmyndaauðgi og frumleika nemend- anna virðast lítil takmörk sett en á sýningunni má meðal annars sjá tjald fyrir íslenska veðráttu, brauðinnsetningu, ísskúlptúr, grafískt bútateppi og hjólabrettaskúlptúr. Sýningin stendur til 25. mai og er opin daglega frá 10-17. Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir. Tvíræðar stereótýpur Jóhannes Kjartansson vinnur með stereoscope-ljósmyndir sem algengar voru á 19. öld og tengir þær á skemmtilegan hátt við Island nútímans. Með stereoscope-ljósmyndatækni eru teknar tvær myndir með tveimur samhliða linsum sem síðan eru skoðaðar með þartilgerðu gleri og þá sést ein þrívíð mynd. „Það voru gefin út spjöld með þessum myndum í gamla daga sem voru kölluð stereotypes, löngu áður en farið var að nota það til að lýsa ákveðnum manngerðum," segir Jóhannes sem segist hafa notað þessa tvíræðni sem útgangspunkt í f myndaseríunni.„Þarna eru myndir af (slendingum eins og útlendingar sjá okkur, til dæmis kraftlyftingamaðurinn, fegurðardrottningin og flugfreyjan. Ég vinn því með gamla tækni um leið og ég leik mér með tvíræða merkingu orðsins," segir Jóhannes. Varöan veitir þér ókeypis fjármálafræðslu og ráögjöf Kynntu þcr hvaö víð getum gert meira fyrir þig á landsbanki.is. Landsbankinn Njóttu þess aö vera í Vörðunni Náttúra og steinsteypa The Growing Wall kallast þetta skemmtilega og hagnýta verk Ing- unnar Jónsdóttur útskriftarnema úr vöruhönnun. Verkið er í raun skilrúmsveggur sem nota má bæði utandyra og innan og jafnvel steypa inn í útveggi.„Ég er að reyna að tengja plönturnar aftur inn í híbýli fólks á nýjan og skemmtilegan hátt og sýna þvi hvað gróðurinn getur fallið vel að þessu steinsteypta umhverfi sem við lifum í," segir Ingunn og bætir við að það skapist skemmtilegar andstæður milli efnisins sem sé fastformað og gróðurins sem vaxi frjáls. Myndir/Steimr Hugi Brauð á göngum Gulleitt brauðdeig liggur um gólf og ganga Listasafns Reykjavíkur og eru hluti af innsetningu Jeanette Castioni. Verkið er í raun unnið inn í rými safnsins og getur fólk tekið þátt í tilurð þess.„Ég vildi í raun skapa eins konar samræðu milli verks- ins míns og annarra," segir Jeannette sem segist hafa hnoðað deigið meira og minna alla vikuna og hafi að auki fengið aðstoð frá skólafélögum, vinum og öðrum. Framúrstefnulegt reiðhjól Ólafur Freyr Halldórsson hjólreiðamaður og hönnuður á heiðurinn af þessu fallega og nýstárlega reiðhjóli.„Ég vildi stokka upp hefðbundiðform reiðhjóls," segir Ólafur. Hjóliðer algerlega hannaðog smíðaðaf Ólafi og segir hann aðeins hafa útvegað hringi og gúmmí annars staðar frá. Eins og gefur að skilja liggur heilmikil vinna að baki hjólinu.„Ég byrjaði á þessu í janúar og ég er búinn að vinna nótt og dag að þessu síðan þá," segir hann. Comfort Latex meö heilsudýnum Hægindastólar i60x2oo verðfrákr.49.740.- með bylgjunuddi 180x200 verð frá kr. 59.740.- og hita fyrir mjóbak verð frá kr. 31.900, Verslunin Rúmgott ■ Smiðjuvegi 2 • Kópavogi • Sími 544 2121 Opið virka daga frá kl. 10-18 - laugardaga kl. 11-16 Rafmagnsrúm 80x200 verð frá kr. 59.900.- 160x200 verð frá kr. 119.800 www.rumgott.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.