blaðið - 06.05.2006, Side 17
blaðið LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2006
DEIGLAN117
Styrktartónleikar
Ljóssins
Selkórinn á Seltjarnarnesi ásamt
hljómsveit heldur tónleika til styrkt-
ar Ljósinu í Neskirkju við Hagatorg
í dag kl. 17. Ljósið er endurhæfing-
ar- og stuðningsmiðstöð fyrir þá
sem hafa greinst með krabbamein
og aðstandendur þeirra. Jón Karl
Einarsson stjórnandi Selkórsins
hreifst mjög af því starfi sem fer
fram í Neskirkju á vegum Ljóssins.
Hann vildi leggja starfseminni lið
með styrktartónleikum og þegar
hann bar þessa hugmynd upp við
kórfélaga og hljómsveit var hún
strax samþykkt með lófataki.
Flestir þekkja einhvern sem
hefur greinst með krabbamein og
þurfa á stuðningi að halda. Ljósið
er einstakt að því leyti að bæði
krabbameinsgreindir og aðstand-
endur þeirra geta komið í endur-
hæfingu og stuðning, og byggt upp
líkama og sál.
Efnisskrá tónleikanna verður létt
og skemmtileg og höfðar til allra,
og má þar nefna lög úr Brodway-
syrpu, Kátu ekkjunni, West side
story og fleiri skemmtilegum söng-
leikjum.
Allur ágóði rennur óskertur til
Ljóssins og hvetja aðstandendur
tónleikanna alla sem vilja hlusta á
góða tónlist og styrkja gott málefni
í leiðinni að mæta.
Forsala aðgöngumiða er
hjá Ljósinu í síma 561-3770
eða gsm. 695-6636.
Manuel Andrack ætlar aö leiða fólk í
sannleikann um þýskan húmor og knatt-
spyrnu í Háskóla fslands I dag.
Pýsk kimnigáfa
og knattspyrna
Áhugamenn um knattspyrnu og
þýska kímnigáfu ættu ekki að láta
fram hjá sér fara uppákomu þýska
grínistans og rithöfundarins Manu-
els Andracks sem fram fer í stofu
101 í Odda, húsi Háskóla íslands,
kl. 16:15 í dag. Manuel Andrack er
gestur átaksverkefnisins Þýsku-
bílsins en hann er þekktastur sem
aðstoðarmaður og brandarasmiður
eins frægasta sjónvarpsgrínista
Þýskalands, Haralds Schmidts sem
er n.k. Jay Leno Þjóðverja.
í tilefni af heimsmeistarakeppn-
inni í knattspyrnu, sem fram fer í
Þýskalandi eftir fáeinar vikur, les
Andrack úr nýlegri bók sinni þar
sem hann fjallar í léttum dúr um
misánægjulega reynslu sína sem
áhangandi úrvalsdeildarliðsins
1. FC Köln. Að auki sýnir hann
litskyggnur sem varpa nýstárlegu
ljósi á hina þýsku „fótboltasál". Upp-
lesturinn verður á þýsku.
Hversdagsgöngugarpur
Auk þess að vera grínisti og fótbolta-
fræðingur er Andrack sennilega
þekktasti hversdagsgöngugarpur
Þýskalands og kom nýlega út eftir
hann bók um gönguferðir hans um
þýsku Miðfjöllin. Frá þessu áhuga-
máli sínu mun Andrack geta sagt í
óformlegu spjalli eftir erindið.
Þýskubíllinn er samstarfsverk-
efni Háskóla íslands, Stofnun-
ar Vigdísar Finnbogadóttur í
erlendum tungumálum, Félags
þýzkukennara, Þýska sendiráðsins
á íslandi og Robert Bosch-stofn-
unarinnar í Stuttgart sem felst
í því að aka þrívegis umhverfis
landið á Porsche-jeppa til að fræða
íslenska skólaæsku um heimsmeist-
aramótið í knattspyrnu og kenna
henni dálitla þýsku í leiðinni.
List án
landamœra
Verkið Fallinn engill eftir listamanninn
Þorgrím Sveinsson eða Þorra (slendinga
eins og hann kallar sig
Það verður mikið um dýrðir í Hinu
húsinu í dag þar sem efnt verður
til glæsilegs handverksmarkaðar.
Meðal þess sem verður á boðstólum
eru glæsilegar töskur, ungbarnaföt,
textílverk og vandaðir munir úr tré.
Á sama tíma verður svokallað Geð-
veikt Kaffihús í umsjá Hugarafls í
samstarfi við Vesturport. 1 tilkynn-
ingu segir að þar verði boðið upp
á klikkaðar kökur, brjálaðar uppá-
komur, geggjaða karnival-stemmn-
ingu með þunglyndislegu ívafi, allt
í sjúku umhverfi Hins hússins. Dag-
skráin stendur frá kl.12-17 í kjallara
Hins hússins Pósthússtræti 3-5, 101
Reykjavík, en gengið er inn Austur-
strætis megin.
Tveir listamenn á Sólon
í dag kl.16 opnar sýning tveggja
listamanna á Sólon íslandus í Banka-
strætinu. Sigrún Huld og Þorgrímur
Sveinsson sýna.
Þorri fslendinga (Þorgrímur
Sveinsson) er fæddur árið 1976 í
Reykjavík þar sem hann ólst upp
að mestu leyti. Hann vinnur aðal-
lega að hugverkum sínum í gifs og
leir, en á það til að mála eitt og eitt
málverk. Sigrún Huld Hrafnsdóttir
er fædd árið 1970. Sigrún Huld hefur
notið tilsagnar í frjálsri málun hjá
Lóu Guðjónsdóttur í Listasmiðju
Lóu frá febrúar 1997. Frá janúar
- júní 2005 nam hún myndlist við
Egmont-hojskole á Jótlandi.
Sýningin er partur af dagskrá
Listar án landamæra
x.ÁááéiáiStiMÉÍÉk'*-’
KB SPARIFE
FYRIR NÝJAN DAG
OG NÝ TÆKIFÆRI
KB Sparifé er fyrir þá sem vilja sýna fyrirhyggju í fjármálum meö
því aö leggja fyrir meö reglubundnum hætti og njóta öruggrar
ávöxtunar og verötryggingar.
• Jöfn og góö ávöxtun.
• Inneignin er óbundin og alltaf laus til útborgunar.
• Þú getur breytt upphæöinni þegar þér hentar.
• Þú ákveöur hversu mikiö þú vilt spara í einu (lágmark 5.000 kr.).
• Aö mestu verötryggöur sparnaöur.
Þaö er auövelt aö byrja aö spara. Komdu í næsta útibú KB banka,
hringdu í ráögjafa í síma 444 7000 eöa faröu á kbbanki.is.
K B BANKI
Undirliggjandi sjóöur KB Sparifjár er Skammtímasjóöur KB banka. Markmiö sjóösins er aö ná góöri ávöxtun og áhættudreifingu meö fjárfestingum í blönduöu safni veröbréfa. Skammtímasjóöur telst vera naest áhættuminnsti sjóöur KB banka. Skammtímasjóöur er Qárfestingarsjóöur skv. lögum
nr. 30/2003 um veröbréfasjóöi og fjárfestingarsjóöi. Rekstrarfélag sjóösins er Rekstrarfélag Kaupþings banka hf. Fjárfestingarsjóöur telst vera áhættusamari fjárfesting en veröbréfasjóöur skv. lögunum. Meirl áhætta fjárfestingarsjóös er fólgin (rýmri fjárfestingarheimildum sem geta m.a. leitt til
mlnni áhættudreifingar en í veröbréfasjóöi. Nánarl upplýslngar um framangreint má nálgast (útboöslýsingu eöa útdrættl útboöslýsingar sjóöslns (útibúum KB banka eöa á www.kbsjodir.is.