blaðið - 06.05.2006, Page 27
blaðið LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2006
FJÖLMIÐLAR I 21
Fyrsta Blaðinu flett: Karl Garðarsson ritstjóri, Sigurður G.
Guðjónsson stjórnarformaður Árs og dags, Steinn Kári Ragnarsson
auglýsingastjóri, Andrés Magnússon greinarhöfundur, Halldóra
Þorsteinsdóttir blaðamaður og Troels Jorgensen umbrotsmaður.
Lokahönd lögð á fyrsta Blaðið: Karl Garðarsson ritstjóri Iftur á skjáinn
hjá Sigríði Önnu Garðarsdóttur, systur sinni og hönnuði, en að baki
fylgjast umbrotsmennirnir Steinar Júlíusson, Troels Jorgensen og
Steinar V. Pálsson grannt með.
manna áhöfnina og skömmu fyrir
útgáfudag voru kallaðir inn reyndir
menn úr blaðamennsku til þess að
fylgja Blaðinu úr hlaði. Sumir ílengd-
ust, aðrir ekki.
Harður markaður
Um leið og Blaðið hóf göngu sína
lækkuðu hin blöðin auglýsingaverð
sitt, þannig að nýliðanum var enn
þrengri stakkur skorinn en ella.
Ljóst var að ekki var á vísan að róa
með lesturinn á Blaðinu, dreifingin
var brösótt fyrstu dagana og nýja
blaðið varð að vera með lægra aug-
lýsingaverð en hin blöðin. En salan
gekk framar vonum.
Fyrstu mánuðina var Blaðið á ör-
uggri siglingu hvað lestur varðaði
og reyndust 43,9% svarenda hafa
lesið Blaðið eitthvað í vikunni, sam-
kvæmt könnun Gallup í júlí. Það
komst upp í um 50% um haustið, en
dalaði svo aftur ásamt öllum prent-
miðlum í vetrarbyrjun. Það náði sér
svo aftur á strik í könnun í janúar,
með 52,8% lestur og verður vafalaust
fróðlegt að sjá næstu tölur, sem senn
styttist i.
Ekki leikur vafi á því að dreif-
ing Blaðsins stóð því nokkuð fyrir
þrifum. Dreifing þess á virkum
dögum hófst ekki fyrr en klukkan
tíu á morgnana, eftir að flestir fara
til vinnu, og gat staðið til klukkan
tvö. Eins kom hún í veg fyrir helg-
arútgáfu. Enn var því leitað til Ár-
vakurs um dreifingu og varð úr að
fyrirtækið dreifði nýrri laugardags-
útgáfu Blaðsins, sem hófst hinn 17.
september.
Árvakur kaupir helminginn
Um leið hófust fyrir alvöru þreif-
ingar um kaup Árvakurs í Ári og
degi, útgáfufélagi Blaðsins. Þær tóku
þó sinn tíma og það var ekki fyrr en
16. desember 2005, sem tilkynnt var
um að Árvakur hefði keypt helming
hlutafjár í Blaðinu af öllum stofn-
hluthöfum þess. Um leið var boðað
að gripið yrði til ýmissa breytinga
er stundir liðu fram, en að öðru
leyti myndi rekstrarumhverfið lítið
breytast í bráð, þó leiða yrði leitað til
þess að nýta margvíslega samlegð
miðlanna. Skýrt var þó fram tekið
að ritstjórnir blaðanna yrðu áfram
algerlega aðskildar.
Efling og stækkun dreifikerfis
Morgunblaðsins hafði verið á döf-
inni síðan nýir eigendur bættust í
hóp eigenda Árvakurs nokkrum
mánuðum fyrr og greint var frá því
að stefnt væri að morgundreifingu
Blaðsins í framtíðinni.
Á nýju ári vék Karl Garðarsson
svo úr ritstjórastóli fyrir Ásgeiri
Sverrissyni, fréttastjóra af Morgun-
blaðinu, og helgaði Karl sig fram-
kvæmdastjórn Blaðsins frá því. Ás-
geir greindi frá því að markmið sitt
væri að skapa Blaðinu ákveðna sér-
stöðu á blaðamarkaði, því yrði dreift
á morgnana en myndi hafa allt
annað yfirbragð en Morgunblaðið
og Fréttablaðið.
Breytingar í vændum
Þær breytingar hafa fyrst og fremst
snúið að innbyrði Blaðsins og því
starfi er ekki lokið. Um páskana
flutti Blaðið í nýjar ritstjórnarskrif-
stofur að Hádegismóum, en síðar
á árinu er fyrirhugað að taka nýtt
vinnslukerfi í notkun innan þess,
sem mun hraða allri vinnslu og aga.
í farvatninu eru einnig ýmsar breyt-
ingar á útliti og efnistökum, sem
kynntar verða fyrir lesendum smám
saman.
Nú þegar Blaðið er ársgamalt eru
á hinn bóginn væntanlegar breyt-
ingar, sem lesendur munu taka vel
eftir. Á næstu dögum hefst nefni-
lega morgundreifing Blaðsins, sem
Árvakur mun annast. Sú veigamikla
breyting mun þó ekki eiga sér stað í
einu vetfangi, heldur mun hún taka
nokkra mánuði. Um leið verður
dreifingarsvæði Blaðsins stækkað,
en áður en yfir lýkur verður því
dreift um land allt.
Þingvalla-
vatn
[ ifieykjavík
Garðabær
örður
Heiðin há
labyggð
Þorlákshl
BÚGARÐABYGGÐ í ÁRBORG
__Vegna mikiHar sölu og stöðugrar eftirspurnar er 2. áfangi nú einnig til sölu.
..
Opiö mm helgina I
Dagana 6. og 7. maí, milli klukkan 11 og 17
geta áhugasamir komið og kynnt sér aðstæður
á svæðinu
-
< Mosfellsbær
Fjóra km frá Selfossi hefur verið skipulögð búgarðabyggð sem er nýjung í íslensku skipulagi.
Tjarnabyggð er skipulögð á um 600 ha af frjósömu og góðu byggingarlandi
og þar verða í boði 1-6 ha lóðir með öllum þægindum og þjónustu þéttbýlisins.
lFASTEIGNA
MARKAÐURINN.
Nánari upplýsingar á www.tjarnabyggd.is eða í síma 898-0343