blaðið - 06.05.2006, Page 30

blaðið - 06.05.2006, Page 30
30 I TILVERAN LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2006 blaðið i Halldóra hugsar upphátt Súkkulaði og sœtabrauð i komandi baráttu Það er ekki bara ilmur af sumrinu sem leikur við mann þessa dagana. Heldur betur ekki. Nú eru sveitarstjórnarkosningar í nánd og lykt af komandi baráttu óneitanlega farin að fylla vitin. Kannanir eru farnar að líta dagsins ljós og koma oft ansi spánskt fyrir sjónir, þ.e. þegar viðkomandi flokkur hefur túlkað tölurnar eftir eigin geðþótta. Mér finnst alltaf jafn skondin stærðfræði hjá flokkunum þegar kemur að því að túlka niður- stöður kannana. Einhvern veginn virðast allir í „bullandi upp- siglingu“ og hver einn og einasti flokkur snýr könnunum sér í hag. Þetta er eins og með skoðanakannanir hjá dagblöðum og tímaritum, þar sem allir setja fram staðhæfingar sem bera þess merki að viðkomandi fjölmiðill sé alltaf seldur upp áður en han- inn galar vegna vinsælda! Ég hef einmitt, eins og flestir, þrætt í gegnum heimasíður, bæklinga, netpósta og önnur aðsend plögg frá flokkunum. Guð minn góður hvað við eigum eftir að hafa það gott miðað við öll þessu frábæru fyrirheit! Það skiptir greinilega engu máli hver verður við stjórn - útkoman verður alltaf himnaríki fyrir kjósendur! Svo má nú ekki gleyma nammidögunum sem eru í nánd. Þegar sirkusinn stendur sem hæst verður hver vasi fullur af súkkulaðimolum frá öllum flokkum ásamt sleikipinnum með mynd af einhverjum fram- bærilegum og skælbrosandi sætabrauðsframbjóð- anda.... Súkkulaðimolar og sleikjó! Eru landsbúar allt í einu orðnir 5 ára þegar kemur að kosningum? Má þá ekki allteins setja á laggirnar eitt heljar- innar tívolí á Lækjartorgi þar sem frambjóðendur keppast um að bjóða gestum og gangandi upp á flottasta hoppukastalann. Nú er ég kannski farin að ganga of langt í niður- rifsstarfseminni, en það er auðvitað nauðsynlegt að sjá spaugilegu hliðarnar á þessu spennandi reipitogi og gera smávegis grín. Að öllu gamni slepptu er þetta að sjálfsögðu eitthvað sem fylgir kosningum og þetta er óneitanlega sjarmerandi og skemmtilegur tími, þrátt fyrir blöðrur og annað bakkelsi. En menn mega ekki gleyma sér í hringið unni og að mínu viti mætti baráttan vera trúverðugri á köflum. Fólk má ekki tapa sér í látunum og gleyma hvað þetta snýst nú allt saman um. Þetta snýst jú um framtíð landsbúa, væntingar þeirra og kröfur. Það væri bara skemmtilegt ef að kosn- ingar gætu farið að snúast um aðeins / meira en að menn séu að berja sér á brjóst, lofa gulli og grænum skógum og enda svo á því að slappa af með hendur í skauti þegar kosningum er lokið og umboðslaunin í höfn. Það kemur að skuldadögum svo að það er kannski best að hafa loforðin jarðbundnari og raunhæfari. Betra er ólofað en illa efnt! halldora@bladid.net HEIMAVÖRN SECURITAS - ÖRYGGISKERFI FYRIR HEIMILIÐ Ert þú rómantísk/ur? Mörgum þykir sem rómantík sé nauðsynleg, bæði í samskiptum sem og í samböndum. Ekki eru allir á sama máli en víst er að rómantík er óneitanlega krydd í tilveruna. Hvað með þig? Ert þú rómantísk/ur? Taktu þetta rómantíska próf og þá færðu svarið. IÞað er erfið vika í vinnunni hjá maka þínum og þú veist að hann er uppgefinn. Þú ákveður að dekra aðeins við hann. Hvað gerir þú? a) Leyfi honum að horfa á þá þætti sem hann vill í sjónvarpinu. b) Þegar hann kemur heim bíður hans heitt bað með róandi tónlist. Eftir baðið fær hann slakandi nudd og ljúffengan kvöldverð. c) Fer út um kvöldið og leyfi honum að vera einum en skil eftir bjórkippu og pizzu. d) Elda uppáhaldsmatinn hans handa honum. 2Kærastan/ kærastinn er veislustjóri í brúðkaupi vin- konu sinnar. Það hefur verið mikið að gera við undirbúning og hún/hann gleymdi að undirbúa myndadisk sem sýna á í brúðkaup- inu daginn eftir? Hvað gerir þú? a) Segi henni/honum að betri undir- búningur hefði greinilega verið nauð- synlegur og hún/hann geti sjálfum sér um kennt. b) Sýni henni/honum hlýju og hjálpa við að búa til góða afsökun fyrirvinina. c) Sýni henni/honum að mér þyki það leiðinlegt en hafi því miður ekki tímatilaðhjálpatil. d) Bý sjálf/ur til myndadiskinn og eyði nóttinni fyrir brúðkaupið í það. Blucamp Sky 20, Ford 125 hestöfl TDCI, lengd 6,3m. svefnpláss fyrir 4, loffkæling, rafm. rúður, tveir airbag, geislaspilari m/fjarstýringu. verð: 4,5 skráður Rockwood Ford Ecomoline V8 Sjálfskiptur Einn með öllu kr. 3.300.000.- Sky 400 Ford BLUCAMP commandrail diesel lengd 7,13 mtr vel útbúinn, loftkæling, 137 H.Ö. verð: 5,6 skráður Hobby T 650 FSC Nýr 2006 Ford 125 Hest 2,0L TDCI Lengd 6,9 m svefnpláss fyrir 4 kr. 5.9000.000.- www.bilexport.dk Bilexport á íslandi ehf. Upplýsingar veitir Bóas í síma 0045-40110007 3Þú hefur verið í sambandi í nokkur ár og þér finnst kom- inn tími á bónorð. Þar sem makinn virðist ekki vera á þeim bux- unum að biðja þín ákveður þú að taka málin í þínar hendur. Hvernig myndi bónorðið fara fram? a) Ég byrja á því að senda makann í nudd og allsherjar dekur. Þegar heim kemur er íbúðin full af logandi kertum og ég hef eldað lúxus máltíð. Þegar á máltíðinni stendur krýp ég, tjái makanum ást mína og bið hans. b) Égdrekkmigfulla/nogspyrhvort makinn vilji giftast mér. c) Ég sæki makann í vinnu á föstu- degi og keyri út á flugvöll, honum til mikillar furðu. Saman fljúgum við til Parísar þar sem ég bið hans á róm- antískum veitingastað, á hnjánum vitanlega. d) Ég kaupi fallega hringa og spyr ást- úðlega um hönd hans/hennar kvöld eitt yfir rómantískri kvikmynd. Valentínusardeginum er fagnað víða um heim í febrúar. Fagnar þú Valentínusardegi? a) Ekkert frekar. Það þarf ekki að minna mig á að gleðja ástvin minn heldur reyni ég að gera það reglulega. b) Já, ég kaupi eina rós handa makanum. c) Já, ég vil tjá ást mína en það geri ég venjulega með lostafullri máltíð og einhverri rómantískri gjöf. d) Já, því þá slepp ég við knús og óvæntar gjafir það sem eftir er af árinu. 5Hvað er rómantískasta gjöf sem þú getur hugsað þér? a) Tölvuleikur. b) Ljóðabók með frumsömdum ástarljóðum. c) Konfekt. d) Skartgripur. Hvað táknar rómantík í þínurn huga? a) Rauðar rósir, hjarta og ást. b) Kertaljós og kynlíf. c) Ást og umhyggja. d) Bjór, fótbolti og faðmlag. Makinn á afmæli og þig langar að gera eitthvað sérstakt. Hvað verður fyrir valinu? a) Kaupi einhverja fallega afmælis- gjöf og elda góðan mat. b) Býð elskunni minni út að borða á fínan veitingastað og gef henni/ honum draumagjöfina. c) Leigi rómantíska kvikmynd og panta pizzu. d) Undirbý óvænta veislu þar sem allir vinir og ættingjar makans verða. Áður fórum við eitthvað fínt út að borða, svo makann gruni örugglega ekki neitt. 8Hver er uppáhaldsliturinn þinn? a) Rauður. b) Blár. c) Hvítur. d) Grænn. Teldu stigin saman i. a)2 b)4 c)1 d)3 2. a) 1 b) 3 c)2 d) 4 3. a) 3 b) 1 c)4 d) 2 4. a)4 b)2 c)3 d) 1 5. a) 1 b) 4 c) 2 d) 3 6. a)3 b)2 c)4 d) 1 7. a)2 b)3 c)1 d)4 8. a) 4 b) 1 c)3 d) 2 0-9 stig: Þú ert langt frá þvf aö vera rómantfsk/ ur og finnst rómantfk sennilega vera óþarfa peningaeyðsla og væmni. Þótt þú hafir gaman af upplyftingu þá viltu hafa hlutina einfalda og þægilega, en ekkert óþarfa vesen. Þér f innst pizza og bjór ágætis máltfð og skilur ekkert f maka þfnum þegar hann heimtar meiri rómantik. Það er alltaf gott að gleyma sér ekki f markaðsbrellum samfélagsins en reyndu þá að vera rómantfskari f gjörðum þinum. Þó ekki nema væri til að gleðja makann. 10-16 stig: Rómantfk skiptir þig ekki miklu máli þó þú hafir ekkert á móti henni. Það er ekki það að þú sért að reyna að vera órómantísk/ur heldur er þetta eitthvað sem þú pælir ekkert I. Þú vilt helst eiga rólega kvöldstund heima við f örmum makans, það er þfn hugmynd um þæg- indi og lúxus. Annað er óþarfa vafstur. Þrátt fyrir það er alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt og þú ættir hiklaust að inn- leiða smá rómantík í Iff þitt. Hver veit nema það kryddi tilveruna og geri Iffið skemmtilegra. 17-25 stig: Þú ert augsýnilega rómantísk/ur og gef- in fyrir góðar stundir f Iffinu. Þú vilt láta dekra við þig rétt eins og þú hefur gam- an af því að dekra við aðra. Kertaljós, góð máltíð og ánægjuleg kvöldstund er toppurinn á tilverunni f þfnum huga. Þó þú sért rómantfsk/ur þá þekkirðu þín takmörk og gengur sjaldan of langt. Enda getur rómantíkin orðið of mikil, rétteinsog alltannað. 26-32 stig: Þú ert mjög rómantfsk/ur og vilt allt fyrir ástvin þinn gera. Þú nýtur lifsins og elskar að fá tilbreytingu i Iffið. Eins leggur þú þig fram við að skipuleggja atburði fyrirfram sem gerir þá enn rómantfskari. En gleymdu ekki að allt er gott f hófi. Þó það sé gaman að lífga upp Iff sitt með rómantfk endrum og eins þá er leiðinlegra ef hún heltekur lif þitt. Njóttu rómantfkurinnar, ástvinar þfns og Iffsins.

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.