blaðið - 06.05.2006, Síða 34
34 I TÓMSTUNDIR
LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2006 blaðÍA
ENDA
S A M
R Á Ð
!!!!!!
/-Á
Efþú hefur vit í kollinum
þá er tvennt sem blífur,
aö hætta að nota bflinn og
að eiga góðan hjálm..
imvoncaasE
alvöru fjallahjól
Switchback SX
34.900
Stell: 6061 Ál Framdempari Spinner Grind 2,70
slaglengd stillanlegur Gírar SRAM ESP 3.0 21 gíra
Rockadile Al 2006
28.900
Stell: 6061 Framdempari SpinnerGrind 2.70mm Slaglengd stillanlegur
Gírar SRAM ESP 3.0 21 glra
tssmasssg
Wing Comp 2006
sumartilboð
39.90
(áður 49.900)
Stell: 6061 Ál/Cro-mo Framdempari RST Gila T6,100mm
Afturdempari KS-290 coil over shock Glrar Shimano Altus 24 glra
Hjólað í vinnuna -
allan ársins hring
BIM/SteinarHugl
Morten Lange formaður Landssamtaka hjólreiðamanna segir aðstæður hjólreiðamanna
hafa batnað á höfuðborgarsvæðinu á undanförnum árum en alltaf megi þó gera betur.
Þó að flestir dusti rykið af reiðhjólum
sinum þegar tekur að vora og koma
þeim fyrir inni í geymslu um leið og
fyrstu laufin falla eru margir sem
hjóla allan ársins hring. Morten
Lange formaður Landssamtaka hjól-
reiðamanna fyllir þennan flokk en
hann fer hjólandi nær allra sinna
ferða hvort sem er að vetri til eða
sumri. „Það er ekki svo löng leið
fyrir mig í vinnuna þannig að þetta
er kannski auðveldara fyrir mig en
marga aðra. Það eru dæmi um fólk
sem þarf að fara miklu lengri leiðir.
Ég veit til dæmis um einn sem þarf
að hjóla milli Keldnaholts og miðbæj-
arins og gerir það allan ársins hring,“
segir Morten.
Sinnir innkaupum hjóiandi
Morten segist meðal annars sinna inn-
kaupum á hjólinu og er hjólið útbúið
sérstökum töskum til þess. „Það eru
takmörk fyrir því hvað maður kemur
miklu fyrir en það væri hægt að vera
með kerru ef maður vildi vera með
meira. Einnig er hægt að vera með
sæti eða kerru fyrir litla krakka, til
dæmis til að fara með þá á leikskóla,“
segir Morten.
Morten segir nauðsynlegt að vera
vel útbúinn ef maður ætlar að nota
reiðhjólið til daglegra samgangna.
Bæði þurfi hjólreiðamaðurinn sjálfur
að vera vel klæddur miðað við að-
stæður en ekki er síður mikilvægt að
hjólið sé vel búið. „ Ljós eru nauðsyn-
leg að vetri til og það er mikill kostur
að hafa nagladekk þegar það er hálka.
Á stígum er oft þunnur ís sem maður
sér varla og stundum liggur bleyta
á isnum. Þá finnur maður mikinn
mun eftir því hvort maður er á nagla-
dekkjum eða ekki,“ segir Morten.
Aðstæður hafa batnað
Morten segir að mokstur á göngu- og
hjólreiðastígum hafi batnað á þeim
stöðum sem hann fer um í borginni
en ekki hafi þó allir sömu sögu að
segja. „Sumir lenda í því að það er
rutt beint af götum upp á gangstétt
og þá er erfiðara að komast leiðar
sinnarsegir hann.
Morten segir að aðstæður hjólreiða-
manna á höfuðborgarsvæðinu hafi al-
mennt batnað mjög á undanförnum
árum. „Meðal þess sem hefur verið
gert er lagning útivistarstíga sem
meðal annars nýtast til samgangna.
Fjölgun hverfa þar sem 30 km há-
markshraði er í gildi hefur einnig
gert það að verkum að auðveldara
er að hjóla. Þá er umferðin ekki eins
ógnandi," segir hann.
Þrátt fyrir að margt hafi áunnist
vantar margt upp á að aðstæður hjól-
reiðafólks verði eins og best er á kosið
á höfuðborgarsvæðinu. Margir hjól-
reiðamenn hafa meðal annars bent á
að bæta þurfi tengingar á milli borg-
arhluta. Morten tekur undir þetta
en bætir við að verið sé að vinna í
þessum málum sums staðar. „Núna
er til dæmis verið að verið að vinna
að tengingu á milli Reykjavíkur og
Kópavogs við Arnarnesvog. Það
tekur langan tíma en ég reikna með
að því verði að minnsta kosti lokið
fyrir haustið,“ segir hann.
Ekki tekið tillit til hjólreiðamanna
Morten segir að hjólreiðamenn séu
ennfremur ekki sáttir við hvernig
staðið sé að framkvæmdum við ný
samgöngumannvirki á höfuðborg-
arsvæðinu. „Það sem er verst fyrir
okkur er að framkvæmdir standa yfir
allt sumarið og þar er oftar en ekki
hálfgert drullusvað fyrir gangandi og
hjólandi á þeim tíma sem flestir vilja
ferðast um með þeim hætti,“ segir
Morten. „Þegar mannvirkin eru
síðan tilbúin gera þau okkur oftar en
ekki erfiðara fyrir að komast leiðar
okkar. Það er ekki reiknað með að
fólk fari beint yfir þessar hraðbrautir
heldur þurfa menn að taka á sig
stóran sveig yfir brýr eða í gegnum
undirgöng. Við nýju Hringbrautina
er til dæmis brú með miklum krús-
ídúllum en ekki virðist vera gert ráð
fyrir því að maður fari beint yfir,“
segir hann.
Ad hverju þarf að huga áður en lagt er af stað?
Gakktu úr skugga um að hjólið sé í
góðu ástandi eftir að hafa legið inni
í geymslu um veturinn. Skynsamlegt
er að yfirfara hjólið og athuga að allt
virki eins og það á að gera. Láttu fag-
menn yfirfara hjólið ef þess er þörf.
Útvegaðu þér góðan hjólreiða-
hjálm ef þú átt ekki einn slíkan fyrir
enda hefur reynslan sýnt að hjálmur
getur komið í veg fyrir alvarleg höf-
uðmeiðsl og jafnvel bjargað manns-
lífum. Höfuðmeiðsl eru alvarlegustu
áverkar sem hljótast við hjólreiðaslys
og þó að hjálmurinn komi ekki í veg
fyrir slysin geta þeir dregið úr alvar-
leika þeirra og minnkað líkurnar á
alvarlegum höfuðmeiðslum um allt
að 80%.
Vertu vel útbúinn. Á íslandi er allra
veðra von og því nauðsynlegt að eiga
skjólgóðar og vatnsheldar flíkur til
að klæðast við hjólreiðar, sérstaklega
þegar lagt er í lengri ferðir. Reiðhjóla-
og útivistarverslanir selja oft hent-
ugan klæðnað og aðra auícahluti fyrir
hjólreiðamenn.
Börn og hjólreiðar
Afar brýnt er að börn hjóli aðeins á
öruggum svæðum og fjarri umferð.
Börnum upp að 15 ára aldri ber að
nota viðurkennda öryggishjálma við
hjólreiðar. Höfuð barns eru hlutfalls-
lega stórt og þungt miðað við aðra
líkamshluta þess og því viðkvæmara
fyrir höfuðáverkum auk þess sem
börn bera síður fyrir sig hendur þegar
þau detta.
r Varöan veitir þér 1
feröafríöind • 1
Kynntu þér hvað við getum gert meira fyrir þig á landsbanki.is.
L Landsbankinn
Njóttu þess að vera í Vörðunni