blaðið - 14.09.2006, Síða 10
10 FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2006
blaöi6
Lúxusvetnisbíll
BMW hefur tilkynnt aö bráðlega hefji verksmiðjan
framleiðslu á fyrsta vetnisknúna lúxusbílnum.
Bíllinn gengur undir nafninu Hydrogen 7 og verður
seldur í takmörkuðu upplagi í Evrópu og síðar í
Bandaríkjunum.260 hestafla vél verður í bílnum.
Viðræður í dag
Javier Solana, utanríkismálastjóri ESB, fundar með Ali Larijani,
aðalsamningamanni stjórnarinnar í Teheran, um hvernig megi enda
deiluna um kjarnorkuáform íran. Þetta er lokatilraun til að koma af
stað samningaviðræðum á ný áður en Bandaríkjamenn og ESB reyna
að ná fram samstöðu um þvingunaraðgerðir gegn klerkastjórninni.
Arásarmennirnir sýrlenskir
Að sögn sýrlenskra fjölmiðla voru mennirnir fjórir sem
gerðu misheppnaða árás á bandaríska sendiráðið í
Damaskus í Sýrlandi á þriðjudag allir Sýrlendingar. Þrír
mannanna voru felldir af öryggisvörðum þegar þeir gerðu
áhlaupið en sá fjórði dó af skotsárum á sjúkrahúsi í gær.
Kína:
Enn eitt námuslysið
mbl.is Einn er látinn og tuttugu og
þrír námuverkamenn lokuðust
inni í kolanámu við Datong-borg
í Shanxi-héraði í Kína eftir slys
í námunni. Slysið varð um mið-
nætti á staðartíma, um kl. 04:00 í
fyrrinótt að íslenskum tíma. Tekist
hefur að bjarga 11 manns úr nám-
unni en einn þeirra lést á sjúkra-
húsi skömmu síðar.
Flóð, sprengingar og hrun í
námagöngum eru ekki óalgeng í
kínverskum kolanámum og eru
þær hættulegustu námur í heimi.
Auglýslngasímlnn er
510 3744
Átak gegn umferðarslysum:
Dirfska veldur dauða
■ Allir leggir sitt af mörkum ■ Nú segjum við stopp
Rekja má meirihluta banaslysa í
umferðinni á þessu ári til áhættuhegð-
unar ökumanna og þörf er á róttækri
hugarfarsbreytingu landsmanna til
að laga ástandið. Þetta kemur fram í
tilkynningu sem Umferðarráð sendi
frá sér í gær. Sigurður Helgason, verk-
efnastjóri hjá Umferðarstofu, segir
nauðsynlegt að almenningur taki
höndum saman til að bregðast við
þeirri öldu umferðarslysa sem hefur
skollið á landsmönnum að undan-
förnu. Um 19 manns hafa látið lífið í
umferðarslysum það sem af er þessu
ári.
„Það er aldrei of seint að bregðast
við aðstæðum og það verður hver og
Aldrei of
seint að bæta
stöðuna
Siguröur Helgason
verkefnisstjóri
Umferðarstofu
einn að leggja sitt á vogarskálarnar
til að bæta stöðuna,“ segir Sigurður
Helgason, verkefnastjóri hjá Umferð-
arstofu. Umferðarstofa i samvinnu
við fjölmörg félagasamtök og ráðu-
neyti blæs í dag til herferðar gegn
umferðarslysum undir yfirskriftinni
„Nú segjum við stopp!“ í tilefni af átak-
inu verða haldnir borgarafundir á sjö
stöðum víðs vegar um landið, þar á
meðal í Reykjavík.
Sigurður segir ýmsar leiðir færar
til að bæta umferðarmenningu hér á
landi og koma í veg fyrir alvarleg slys.
Segir hann nauðsynlegt að vegir út
frá höfuðborgarsvæðinu verði bættir
og jafnvel þurfi að koma fyrir ein-
hvers konar h^aðahemlunarbúnaði í
bifreiðar. „Það ér búið að setja niður
hóp til þess að fara yfir refsingar
vegna umferðarlagabrota. Þá hefur
einnig komið til tals að koma fyrir
hemlunarbúnaði í bílum eða einhvers
konar ökurita. Þetta eru allt hlutir
sem menn koma til með að skoða og
ræða.“
Skólavörðustíg 21 a Njálsgötumegin
S. 551 4050
Sorg og sorgarviðbrögð
Fræðslufundur 1 Fossvogskirkju í kvöld
14. september kl. 20-22.
Fyrirlesari sr. Orn Bárður Jónsson
Allir velkotnnir!
Nt DÖGUN
Samtök um sorg og sorgarviðbrögð
naust) - fyrir þá sem ferðast
GSM
festingar
í mælaborð
ORYGGISBUNAÐUR
UHF talstöövar.
Léttar og litlar talstöövar.
Endlngarg óðar lithium
hleðslurafhlööur
Orægni allt aö 4-5 kilómetrar
Hljóð eða titrari
UHF og CBtalstöðvar
f mlklu úrvali
Hleðslutæki
fyriralla farsíma
jabra
Bluetooth handfrjáls
búnaður.
Margartegundlr.
naustj
S: 535.9000 • www.bilanaust.is