blaðið - 14.09.2006, Síða 25
blaðiö
FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2006 33
Hugarró í kirkju
Karl sér um ædruleysismessur i
Dómkirkjunni. Þær veita hugarró
en eru þó langt i frá að vera rólegar.
Messa vetra rins verður á sunnudag.
drekka tvo Carlsberg-bjóra áður en
þeir hlaupa inn á völlinn," segir Karl,
en Liverpool hefur um árabil auglýst
þá bjórtegund. „Þetta sáir sér inn í
íþróttahreyfinguna þar sem ætti
auðvitað að vera að ala upp hreysti
og heilbrigði og eitthvað sem er
eðlilegt.“ Hann nefnir annað dæmi;
aug-lýsingu sem sýnir mann teyma
lítinn vagn með bjórkassa á eftir sér
og hunsar augngotur frá myndarlegri
konu, því hann vill komast heim að
drekka bjórinn sinn. „Svo er bjórnum
hellt í glas og sagt að þessi bjórtegund
sé besti vinur þinn. Skilaboðin eru
að maður eigi frekar að fá sér bjór en
að vera með konu. Mér finnst mjög
leiðinlegt að börnin mín þurfi að sjá
þetta. Ég vil það ekki þvi að það er verið
að reyna að krækja íþau. Það deyr alltaf
ákveðinn fjöldi manna úr alkohólisma
á hverju ári og þegar að þeir eru dánir
þarf að finna nýja viðskiptavini.
Það eru börnin okkar. Þessu er eins
farið í eiturlyf)aheiminum,“ segir
Karl og bætir við að það sé dáðleysi
hjá yfirvöldum að taka ekki á þessu
máli, þar sem auglýsingar á áfengum
drykkjum séu bannaðar samkvæmt
lögum.
Horfirtil Alþingis
Karl sat á Alþingi fyrir Samfylk-
inguna á árunum 2001-2003 og lék
blaðamanni forvitni á að vita hvort
hann hefði hugsað sér endurkomu
á þann vettvang. Karl segir allt opið
í þeim efnum og að hann geti vel
hugsað sér að fara aftur á þing. „Ég
reyndi nú að halda áfram á þingi, en
það var mikil barátta og hörð sem
lyktaði þannig að ég hlaut ekki þing-
sæti. Við getum orðað þetta þannig
að þegar ég byrjaði var nánast enginn
að hvetja mig til að reyna fyrir mér í
þingmennsku, en eftir að yfir lauk
hafa fjölmargir gert það. Eg íhuga
það mjög alvarlega að gefa aftur
kost á mér og hef mikinn áhuga
fyrir því,“ segir Karl. Aðspurður um
hugðarefni sín í stjórnmálum segir
hann af ýmsu að taka. „Ég ræddi nú
áfengis- og fíkniefnamálin talsvert.
Mér var líka hugleikið hvernig skuldir
landsmanna hækka sjálfkrafa við
það að ýmsar vörutegundir hækka í
búðum í sambandi við verðbæturnar
og það þarf að endurskoða það hvernig
við reiknum þær út. Það verður líka
að einfalda allt bótakerfið í landinu
því að sumir falla bara hjá garði. Það
eru til alls kyns bætur fyrir hitt og
þetta en við þurfum að fara að skoða
hvort við getum ekki einfaldað þetta,
svo að þeir sem þurfa að njóta þeirra
séu ekki óöruggir með sig og annað,‘
segir Karl. „Ég held að öryggisvísitala
þjóðarinnar hafi lækkað. Ekki vegna
þess að herinn fór heldur vegna þess
að það er svo mikil ólga í gangi í
fjármálaheiminum, neysluheiminum
og í atvinnulífinu. Það vantar allan
stöðugleika. Það hefur orðið svo
mikil samþjöppun og eins einokun,
t.d. í sjávarútveginum hvað varðar
kvótaúthlutanir. Útgerðum fækkar
og það verða stöðugt færri sem að
hafa eitthvað um þetta að segja. Nú
vilja þessir menn sjálfir ákveða hvað
má veiða mikið. Það skapar ákveðið
óöryggiþví að það er þjóðin sem áþessi
mið, ekki einhverjir einstaklingar.”
bjorn@bladid.net
Mynd/Frikki
„Ég held að öryggis-
vísitala þjóðarinnar
hafi lækkað. Ekki
vegna þess að herinn
fór heldur vegna
þess að það er svo
mikil ólga tgangi t
fjármálaheiminum,
neysluheiminum
og t atvinnulífinu.
Það vantar allan
stöðugleika."
GA (samtökum spilafíkla). Það fer
ekki mikið fyrir spilafíklum en ég
held að fólk sé alveg dýpst niðri
þegar það þjáist af þessum sjúk-
dómi. Maður hefur séð fólk fara
nánast til heljar í tengslum við það,“
segir Karl og bætir við að spilaleikir
á Netinu hafi gert allt annað en að
bæta úr skák. „Ég veit um fólk sem
hefur tapað milljónum á Netinu og
það er alveg ljóst að það er stöðugt
að koma meira inn í sambandi við
þetta.“
Karl segir að auglýsingar fyrir
spilaleiki og áfengi leynist víða og geti
haft mjög brenglandi skilaboð. Nefnir
hann í því samhengi sjónvarpsþátt
um póker sem sýndur er hér á
landi. „Þessi þáttur hefur verið mikil
kynning fyrir spilamennsku á netinu.
Það er látið að því liggja að póker skili
bara ávinningi og þó að fólk tapi sé
það samt að vinna. Ég ætla ekki
að tjá mig um hvort að það eigi að
banna þennan þátt, en mér finnst að
fólk verði að vera mjög meðvitað um
þessa hluti og að minnka ætti auðvelt
aðgengi unglinga að spilakössum,"
segir Karl.
Brenglaðar áfengisauglýsingar
Hann segir síst minna brengluð
skilaboð í auglýsingum fyrir áfengi.
„Þú getur spurt þig að því hvort að
gæjarnir í Liverpool séu búnir að
Njóttu lífsins með
heilbrigðum Iffsstíl
KEA-skyr er frábær hollustuvara sem
cinungis er unnin úr nóttúrulcgum hrá-
efnum. KEA-skyr er einstaklega næringar-
rfkt, það inniheldur hágæða prótein og er
fitulaust.
KEA-skyr er góður kostur fyrir alla þá sem
hafa hollustuna i fyrirrúmi og vilja lifa á
heilsusamlegan hétt.