blaðið - 10.11.2006, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2006
blaöiö
INNLENT
HRAÐAKSTUR
Tekinn á 125 kílómetra hraða
Rúmlega tvítugur karlmaður var stöðvaður fyrir
of hraðan akstur á Egilsstöðum í gærmorgun.
Maðurinn mældist á 121 kílómetra hraða þar sem
leyfilegur hámarkshraði er 50. Maðurinn var sviptur
ökuréttindum og gæti átt von á 70.000 króna sekt.
LÖGREGLA
Bitinn af hundi
Maður var bitinn í lærið af hundi en eigandi dýrs-
ins og fórnarlambið höfðu verið aö rífast vegna
viðskipta. Lögreglan var kölluð til og samkvæmt
henni var ekki Ijóst hversu mikil meiðslin voru né
bar mönnunum saman um atburðarásina.
REYKJAVÍK
Kalkofnsvegur opnaður á ný
Kalkofnsvegur hefur verið opnaður á ný eftir þrengingar síðustu
daga og eru nú tvær akreinar í hvora átt. Nýtt frárennslisrör
hefur verið lagt samhliða Kalkofnsvegi að Hverfisgötu. (fram-
haldinu verður rörið lagt þvert á Lækjargötu norðan viö Hverfis-
götu og er ráðgert að hefja þær framkvæmdir í næstu viku.
Skýrsla Sameinuðu þjóðanna:
Island næstbest
í árlegri skýrslu Sameinuðu
þjóðanna um lífsgæði í heiminum
kemur fram að hvergi er betra að
búa en í Noregi, Islandi, Ástralíu,
írlandi og Svíþjóð. Hinsvegar eru
lífsgæði lítil í Afríku og þeim
fer hnignandi vegna vaxandi út-
breiðslu eyðnisjúkdómsins.
Þróunaráætlun Sameinuðu
þjóðanna hefur lagt mat á lífs-
gæði í löndum heims allar götur
frá 1990. Könnunin staðfestir
hin augljósu sannindi að íbúar
ríkra þjóða eru almennt séð heil-
brigðari og hafa fleiri tækifæri til
menntunar en íbúar í fátækum
ríkjum. Hinsvegar eru á þessu
undantekningar. Víetnamar eru
fátækir en þar er betra að búa en
í mörgum ríkari ríkjum. Þessu er
þveröfugt farið með Barein. Þjóð-
artekjur þar eru tvöfalt hærri en
í Chiíe en þar er hinsvegar betra
að búa sökum þess að stjórn-
völd í Barein verja litlu fé til
menntamála.
FYRIRTÆKI & VERSLANIR
HEHVAniAusmn í uM'búvum
papplr. gjafapokar • pakkaskraut • gjafabönd greinar • borðar • öskjur • silkiblóm • slaufur Melabraut 19 • 220 Hafnarfiröi • Slmi 575 0200 • danco@danco.is H II )A E 1 L III NCO >VE RSLU N
RUM í ÚRVALI
mið og gerið góð kaup
Varnarliðssala Geymslusvæðisins - Sigtúni 40
I Mánud. Þriðjud. Miðvikud. Fimmtud. Föstud. Laugard. Sunnud.
1 12-18 12-18 12-18 12-21 10-18 10-18 12-18
Unglingarúm
Barnarúm
Sjálfstæðismenn í Suðurkjördæmi:
Margir slást um
örfá sæti listans
■ Fjórir þingmenn bjóöa sig fram ■ Árni Johnsen leitar eftir endurkjöri
Eftir Höskuld Kára Schram
hoskuldur@bladid.net
Tíu frambjóðendur og þar af fjórir
þingmenn og tveir fyrrverandi þing-
menn berjast um efstu fjögur sætin á
lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjör-
dæmi. Kosið verður í prófkjörinu á
morgun en um 5.500 manns eru á
kjörskrá. Reiknað er fastlega með
því að Árni M. Mathie- senfjármála-
ráðherra muni fá
umboð til að leiða
listann en óvíst er
hvort Árni Johnsen,
fyrrverandi þing-
maður, nái að tryggja
sér öruggt sæti.
Árni óþekkt stærð
„Árni Johnsen er óþekkt
stærð í prófkjörinu. Það
veit enginn hvað hann mun
gera og hversu mikið bakiand hann
hefur,“ segir Einar Mar Þórðarson,
stjórnmálafræðingur og verkefna-
stjóri hjá Félagsvísindastofnun.
„Annað hvort kemur Árni til með að
fá örugga kosningu í annað sætið eða
hreinlega kolfalla.“
Sjálfstæðisflokkurinn fékk þrjá
þingmenn kjörna í Suðurkjördæmi
í síðustu kosningum eða um 7.300
m
sæl
^ ha
atkvæði sem jafngildir 29,2%
allra atkvæða í kjördæminu.
Töluverðar líkur eru á þvi
að flokkurinn bæti við sig
einu þingsæti í næstu kosn-
ingum og jafnvel tveim. Kristján Páls-
son, fyrrverandi þingmaður, hefur
snúið aftur en hann klauf sig frá
flokknum eftir að honum var hafnað
í uppstillingu á lista fyrir síðustu
kosningar og var með sérframboð.
Þá býður Gunnar
Örn Örlygsson
þingmaður sig fram
í þriðja til fjórða sæti
en hann skipti yfir í Sjálf-
stæðisflokkinn úr Frjáls-
lynda flokknum á miðju
kjörtímabili.
Einar segir á brattann að
sækja fyrir Kristján og Gunnar og
hann gerir ekki ráð fyrir að þeir
hljóti góða kosningu. „Sjálfstæðis-
menn hafa aldrei í svona prófkjörum
lyft fólki hátt upp sem kemur frá
öðrum flokkum. Það er því líklegt
að Gunnari komi ekki til með að
ganga vel. Eins er það með Kristján
Pálsson. Það eru mjög margir sjálf-
stæðismenn sem hafa ekki fyrirgefið
honum þetta sérframboð síðast “
Mikiðaf körlum
Drífa Hjartardóttir þingmaður
hefur leitt sjálfstæðismenn í Suð-
FRAMBJÓÐENDUR
í SUÐURKJÖRDÆMI
Árni M. Mathiesen
ÁrniJohnsen
Drífa Hjartardóttir
Kjartan Ólafsson
Kristján Pálsson
Björk Guðjónsdóttir
Guðjón Hjörleifsson
Gunnar Örn Örlygsson
Kári Sölmundarson
Grímur Gíslason
Helga Þorbergsdóttir
Unnur Brá Konráðsdóttir
Birgitta Jónsdóttir Klasen
1. sæti
1.-2. sæti
2. sæti
3.-4. sæti
4. sæti
. 5. sætið
5.-6. sæti
urkjördæmi frá þvf Árni Ragnar
Árnason féll frá á miðju kjörtímabili.
Hún sækist nú eftir öðru sæti og er
að öllum líkindum eina konan sem
hefur raunhæfa möguleika á því
að tryggja sér eitt af fjórum efstu
sætunum.
Þá er einnig spurning með þá Guð-
jón Hjörleifsson og Kjartan Ólafsson
þingmenn, en hvorugur hefur haft
sig mikið í frammi á yfirstandandi
kjörtímabili. Það eitt og sér gæti
skaðað framboð þeirra að mati
margra sem Blaðið ræddi við.
Einar segir allt útlit fyrir að karl-
menn muni raða sér í fjögur af fimm
efstu sætunum og það gæti haft áhrif
á gengi flokksins í næstu kosningum.
,Ef Drífu gengur ágætlega og endar
í öðru sæti þá er Sjálfstæðisflokkur-
inn í ágætis málum í kjördæminu.
En ef hún fer að hrynja niður list-
ann og endar í fjórða
eða fimmta þá
getur það
haft slæm
áhrif.“
Arni jonnsen, ryrrverandi
þingmaður Óþekkt stærð og
líklegur til alls. Spurning hvort
kjósendur hafi fyrirgefið honum.
Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra
I Kemur nýr inn í kjördæmið úr Kragan-
um. Ætti að vera öruggur i fyrsta sæti.
Hafnarfjörður hafnaði umsókn um breytingar fyrir fatlaða:
KFC fær ekki lyftu
„Sem betur fer skiptir það ekki
máli lengur,“ segir Kristín Helga-
dóttir, framkvæmdastjóri skyndi-
bitastaðarins KFC í Hafnarfirði, en
bæjaryfirvöld í Hafnarfirði höfn-
uðu leyfi fyrir lyftu handa fötluðum.
Ástæðan fyrir því að beiðninni var
hafnað mun vera sú að ummál, burð-
argeta og breidd dyra var ekki sam-
kvæmt byggingarreglugerð.
„Þetta kom ekki að sök að lokum
því neðri hæðin mun eingöngu
verða borðsalur,“ segir Kristín en
það þýðir að engin þjónusta verður
niðri og því óþarft að hafa lyftu. Að-
spurð hvað gerist ef salurinn á efri
hæðinni verður þéttsetinn en ekki
sá neðri segist Kristín hafa það
mikla trú á fólki að hún telji að fólk
færi sig þá.
Lokaði á mánudag KFC staðnum
lokað vegna framkvæmda. BlaWFrikkl