blaðið - 10.11.2006, Blaðsíða 46

blaðið - 10.11.2006, Blaðsíða 46
46 f IR 10. NÓVEMBER 2006 blaðið > húðflii Um 36 prósent Bandaríkjamanna á aldrinum 18 til 29 ára hafa að minnsta kosti eitt húð- flúr einhvers staðar á líkamanum. Vel tengdir Stór hluti heimilislausra Bandaríkjamanna hefur tölvupóstfang þrátt fyrir að eiga hvorki tölvu né samastað. Furðulegt uppátæki Fimmtán ára rúmönsk stúlka gæti þurft að fara í uppskurð eftir að hún gleypti tannbursta. Læknar námu tann- burstann í maga stúlkunnar með röntgen en ætla að bíða og sjá hvort tannburstinn skili sér ekki rétta leið út, sam- kvæmt vefnum Ananova. Þótt þú borðir eins og svín og hagir þér eins og asni ertu samt mennskur. , hitt&betta » Piparsveinaeldhúsið í piparsveinaeldhúsinu er að þessu sinni staddur Val- geir Gestsson, gítarleikari og söngvari hljómsveitar- innar Jan Mayen. Valgeir nemur bókmenntafræði við Háskóla íslands og hans helsta fyrirmynd í eldhúsinu er faðir hans. Valgeir eldar að eigin sögn ekki mikið enn sem komið er sökum lítils þroska í eld- húsfræðum. Storluða j M39VV| Hráefni M — Ær (500-750 gr) ‘ f 1 Hveiti I Picanta j Rjómi 'A lítr. 2 stk. tómatar Sítrónusafi Lúðuna hefur þú í hæfilega litlum bitum og veltir þeim upp úr hveiti og picanta. Bræðir smjör á pönnu og hendir bitunum á og léttsteikir við meðalhita. Þegar búið er að steikja alla bitana hellir maður rjóm- anum á pönnuna, dálitlu af sítrónusafa og bætir niðurskornum tómötum við. Þá eru bæði maturinn og sósan komin og með hvítvíni klikkar þetta ekki. Fullt nafn: Ég heiti Valgeir Gestsson Aldur: 22 ára Andlegur aldur: Ég myndi segja að það væru svona 66 ár. Starf: Skólaliði, nemi og rokkari. Fyrirmynd í lífinu: I eldhúsinu er faðir minn fyrirmyndin, en að öðru leyti hef ég bara tröllatrú á sjálfum mér. Að vinna á togara eða við blóma- skreytingar? Ég væri til í að vinna við blómaskreytingar á togara. Eru skór til að ganga á? Nei, maður gengur í skóm. Myndirðu nota Men Expert Power Buff Anti-Roughness Exfoliator? Nei, ég reyni að halda í allt mitt „roug- hness and toughness". Ertu hræddur við skordýr? Nei. Notarðu nefhársklippur? Nei, en ef ég ætti slíkt apparat mundi ég hiklaust nota það. Áttu safn af skurðarhnífum og wok-pönnu í eldhúsinu? Ekki enn. Nýjasta æðið hjá vinum mínum er hins vegar eldhúshnífar frá japönskum sverðagerðarmönnum sem skera í gegnum bein án þess að missa bitið. Finnst þér gaman að baka kökur? Það er miklu skemmtilegra að borða þær. Ferðu eftir uppskriftum? Mjög sjaldan. Matargerð er eins og tónlist, ef maður hefur réttu tilfinninguna þá þarf maður ekki að lesa nótur. Rakarðu þig annars staðar en fyrir ofan axlir? Ég mundi gera það ef ég ætti nefhársklippur. Kvað er kynþokki? Tilfinning. Hvað ertu að gera í kvöld? Kemur þér ekki við. Færðu oft fólk í mat? Því miður er ég of stutt á veg kominn með elda- mennskuþroska minn, en ég er dug- legur að bjóða fólki eitthvað að borða ef það er á annað borð í heimsókn. Borðar þú oft úti? Nei, en mér er oft boðið í mat. Misþyrmingar Sumarið 2001 fundubændur í Montana í Bandaríkjunum nokkrar ær illa leiknar úti í haga. Dýrin höfðu verið drepin á hryllilegan hátt en hluti höfuðs þeirra var fjarlægður ásamt kynfærum og augum. Engar vísbendingar var að finna nokkurs staðar og ekkert vitni gaf sig fram. Atvikið þótti svipað öðru sem átti sér stað árið 1970 þegar 60 ær fundust dauðar nokkrum fylkjum Bandaríkjanna. Nokkrum dögum áður hafði fjöldi fólks greint frá undarlegum fyrir- bærum á himnum og er málið talið tengjast því en ennþá hefur ekki verið varpað Ijósi á það sem gerðist. Draugagangur' Covenanters-fangelsið í Edinborg er einn vinsælasti ferðamanna- staður Skotlands. Á svæðinu er einnig gamall grafreitur og er vofa sautjándu aldar dómara talin svífa þarna yfir. Þrátt fyrir stöðugt streymi ferða- manna greina hátt í hundrað manns árlegafrá • dularfullum líkams- árásum sem eiga sér stað við heimsókn á staðinn, en greint var frá 80 árásum frá 2000- 2001. Engin skýring hefurfengist á þessu en í öllum tilvikum hefur gerandinn verið ósýnilegur. Hefur nú flestra leiða verið leitað til þess að rannsaka málið og nú síðast var þekktur sjáandi fenginn til þess að kveða niður þann sem talinn er eiga sök á þessu. Sex frægir einstaklingar hafa samþykkt að gangast undir stranga meðferð sem breytt getur lífi þeirra til framtíðar. Komast þeir heilir í gegnum dagskrána sem bíður þeirra í einangrunarbúðunum í Sólheimum í Grímsnesi? inudaginn SKJÁRE/A/A/ næst i gegnuni Skjáinn og Digital island w-r ám' hfli # á: BYGGÐIR IIPPAFi 1IR - s í ^ \
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.