blaðið - 10.11.2006, Qupperneq 8
8 FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2006
blaöiA
UTAN UR HEIMI
NIKARAGVA
Boðar ekki breytingar
Daníel Orlega, nýkjörinn forseti Níkaragva, segist ekki
ætla að gera róttækar breytingar á efnahagskerfi lands-
ins. Ortega, sem var eitt sinn leiðtogi marxista í landinu,
stjórnaði Nígaragva á árunum 1979 til 1990 en segist
hafa breytt um stjórnmálaskoðanir á síðustu árum.
EGYPTALAND
Samstarf í kjarnorkumálum
Stjórnvöld í Kína og Egyptalandi ætla að vinna saman
að friðsamlegri nýtingu kjarnorku. Fyrir nokkru
ákváðu Egyptar að endurvekja kjarnorkuáætlanir sínar,
en þær voru settar til hliðar fyrir tuttugu árum, og eru
þeir í samstarfi við Rússa um smíði kjarnorkuvers.
Borat bannaður
Rússnesk yfirvöld hafa ákveðið að leyfa ekki sýningar á kvikmynd-
inni um Borat, fréttamanninn umdeilda frá Kasakstan. Myndin
snýst meðal annars um óvægið grín að menningu og sögu Kasakst-
ans. Stjórnvöld þar í landi hafa lýst vanþóknun sinni á gríninu og
svo virðist sem Rússar, bandamenn Kasakstans, séu á sama máli.
Bestu dekkin
átta ár í röðí
I átta ár í röð hafa Toyo dekkin verið
valin þau bestu af Tire Review
Magazine, sem er tímarit sjálfstæðra
hjólbarðasala í Bandaríkjunum.
Vagnhöfða 23 - S: 590 2000
A
TO\ iRES}
Hlutverkaskipti í vændum
Bill og Hillary Clinton. Niðurstödur þing-
kosninganna á þriðjudag auka líkurnar á
forsetaframboði þeirrar siðarnefndu.
VIRKILEGUR SPARNAÐUR!
Verð nú
49.900 stgr.
reykjavIk akureyri reyðarfjörður reykjanesbær
Rönning Rönning Rönning Rönning
Borgartúni 24 óseyri 2 Nesbraut9 Hafnargötu52
Sími 562 4011 Simi 460 0800 Simi 470 2020 Sími 420 7200
RÖNNING
www.ronning.is
Opnunartími: mánudaga - (östudaga kl. 09.00 -18.00 • Laugardaga kl. 11.00 -16.00 Tilboðin gilda á meðan birgðir endast.
Stórsigur Hillary Clinton styrkir stöðu hennar fyrir forsetaframboð:
Yfirburðir Hillary
■ Víðtækur stuðningur ■ Tveir af hverjum þremur kusu hana
Eftir Örn Arnarson
orn@bladid.net
Yfirburðasigur Hillary Clinton, eig-
inkonu Bills Clintons, fyrrum Banda-
ríkjaforseta, í öldungadeildarkosning-
unni i New York-ríki á þriðjudag
er talinn auka líkurnar á að
hún bjóði sig fram sem for-
setaefni demókrata árið
2008. Sjálf er hún þögul
um fyrirætlanir sínar
en flestir telja ljóst hvert
hugur hennar stefnir.
Höfðar til margra
Kosningatölur gefa til kynna að
hún höfði ekki eingöngu til hefðbund-
inna stuðningsmanna demókrata
heldur einnig hófsamra repúblikana.
Hún fékk 66,5 prósent atkvæða eða tiu
prósentum meira en þegar hún bauð
sig fyrst fram í öldungadeildarkosn-
ingunum árið 2000. Hún fékk braut-
argengi í hinum dreifðari byggðum
New York-ríkis sem og i úthverfum
New York-borgar en kjósendur þar
styðja yfirleitt repúblikana.
Kosningarnar á þriðjudag snerust
að töluverðu leyti um ástandið í Irak.
í fyrstu töldu stjórnmálaskýrendur
að staða Hillary Clinton væri veik
vegna óánægju kjósenda með ástand
mála þar í landi en hún studdi
ákvörðun George Bush um innrás-
ina. Aukþess varði hún þá ákvörðun
lengi vel og uppskar töluverða
óánægju meðal vinstrisinnaðra
demókrata. Hinsvegar hefur
hún gagnrýnt framkvæmd
stefnu stjórnvalda í Irak
harðlega og verið einn skæð-
asti andstæðingur Donalds
Rumsfelds varnarmálaráð-
herra í pólitískri umræðu síð-
ustu mánuði. Með þessum mál-
flutningi hefur hún unnið hluta
gagnrýnenda sinna yfir á sitt band.
Þarf að heilla repúblikana
Möguleikar Hillary Clinton á að
verða forseti Bandaríkjanna velta
á fyrst og fremst á tveim þáttum.
Tekst henni að höfða til hófsamra
repúblikana án þess að einangrast
frá vinstrivæng Demókrataflokks-
ins? Niðurstöður kosninganna á
þriðjudag benda til þess að hún
geti hið fyrrnefnda en stjórnmála-
skýrendur fullyrða að áhrifamenn
á vinstrivængnum í Demókrata-
flokknum hafi ekki enn fyrirgefið
henni stuðninginn við Íraksstríðið.
Næstu árin mun Clinton þurfa að
feta pólitískan línudans með tilliti
til þessara þátta.
Geta stjórnmálamanna til þess að
safna fé ræður miklu um áhrif þeirra
og framtíðarhorfur. Meðal demó-
krata er Hillary Clinton í sérflokki
þegar kemur að því að safna fé í
kosningasjóði. 1 aðdraganda kosning-
anna safnaði hún einum og hálfum
milljarði króna í sjóð sinn. Ljóst er
að fáir hugsanlegir frambjóðendur
Demókrataflokksins geta keppt við
slíkt auðvald.
Erfiður andstæðingur
Fyrir nokkru lét Dick Cheney
varaforseti þau orð falla að Hillary
Clinton yrði repúblikönum erfiður
andstæðingur hlyti hún útnefn-
ingu demókrata fyrir forsetakosn-
ingarnar árið 2008. Óljóst er hvort
Cheney standi raunverulega stuggur
af henni eða hvort hann telji hana
draumaandstæðing þar sem ólíklegt
er að hún gæti lagt repúblikana að
velli í mikilvægum ríkjum í forseta-
kosningu. Hvað sem því líður blasir
við að enginn ætti að vanmeta Hill-
ary Clinton.
Barnahúsgögn sem stækka
Barnahúsgögnin okkar bjóða upp á ótal samsetningarmöguleika og sveigjanleika sem gerir þér kleift að nota
eitt og sama rúmið allt frá því barnið hættir í grindarrúminu og fram á unglingsár.
UöliiflUfl 11TI (Tl IL i t)
Sérverslun með barnahúsgögn og fylgihluti
Fossaleynir 6 - 112 Reykjavík - Sími: 586 1000 - Fax: 586 1034 - www.husgogn.is