blaðið - 10.11.2006, Qupperneq 26
26 FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2006
blaðiö
Sleggjudómar og hótanir um líkamsmeiðingar!
Umræðan um frjálst flæði út-
lendinga inn í landið fer mjög fyrir
brjóstið á fjórflokknum Sjálfstæðis-
flokki, VG, Samfylkingu og Fram-
sóknarflokki enda voru flokkarnir
samtaka í því að opna allar gáttir ís-
lensks vinnumarkaðar.
í stað þess að ræða þessi málefni
með yfirveguðum hætti, ræða það
hvernig þessi málefni snerta alian
þorra almennings, hafa talsmenn
flokkanna og pistlahöfundar af-
vegaleitt umræðuna. Þingmenn
Frjálslynda flokksins hafa sætt
svívirðingum frá forystumönnum
ungliðahreyfinga og talsmönnum
fjórflokksins, verið kallaðir kynþátta-
hatarar, fenjafólk, aðskilnaðarsinnar,
Jóni Magnús-
syni varhótað
líkamsmeið-
ingum efhann
léti sjá sig á
ísafirði
Umrœðan
Sigurjón Þóröarson
að þeir ali á ótta og svo má lengi telja.
Sumar yfirlýsingarnar hafa endað
með því að réttast væri að setja
Frjálslynda flokkinn í einhvers
konar einangrun eins og holdsjúk
stjórnmálasamtök.
Það er rétt að spyrja hvort þessar
yfirlýsingar séu eðlileg viðbrögð við
þeirri umræðu sem þingmenn Frjáls-
lynda flokksins hafa staðið fyrir um
afleiðingar af frjálsu flæði erlends
vinnuafls til landsins. Það er mín
skoðun að viðbrögðin séu ekki eðli-
leg, heldur er markmiðið að reyna
að þagga niður umræðu um áhrif af
frjálsu flæði á vinnumarkaðinn, þar
á meðal umræðu um uppsagnir ís-
lenskra starfsmanna.
Það er einnig rétt að velta upp þeirri
spurningu hvort ekki sé rétt að velta
því fyrir sér hvað sé viðurkvæmileg
umræða. Þess eru dæmi að framan-
greindir talsmenn hafa ekki einungis
látið sér nægja að fella sleggjudóma,
heldur er dæmi um að pistlahöfundur
Ríkisútvarpsins á ísafirði hafi gengið
svo langt að hóta Jóni Magnússyni
líkamsmeiðingum ef hann léti sjá til
sfn á ísafirði. Þessi hótun hefur ef-
laust verið sett fram í nafni upplýsts
umburðarlyndis.
Það er einnig athyglisvert að það
hefur verið látið óátalið af sjálfskip-
uðum fulltrúa umburðarlyndis að
ófaglært íslenskt starfsfólk og iðnaðar-
menn hafi verið rægð.
f sjálfu Ríkissjónvarpinu, í miðjum
Kastljóssþætti, var eins og ekkert
væri spilað viðtal við atvinnurekanda
sem leyfði sér að rakka niður íslenskt
verkafólk. Það var sagt óáreiðanlegt
upp til hópa, að það hefði reynst
illa, það mætti illa og væri alltaf í
símanum. Tekið var fram að ungir
íslenskir karlmenn væru sérstaklega
kærulausir.
Að lokum er rétt að geta þess að
Frjálslyndi flokkurinn hefur aldrei
sýnt neins konar andúð í garð útlend-
inga, meðal annars margoft boðið
fram fólk af erlendu bergi brotið og
gefið út kynningarefni á pólsku og
fleira.
Vonandi verður þessi umræða til
þess að forysta fjórflokksins hugsi
sinn gang og hætti að útmála alla um-
ræðu, sem varðar almenning miklu,
sem af hinu illa.
Höfundur er þingmaður
Frjálslynda flokksins
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi
Opinn fundur
með ióni Gunnarssyni
Umrœðan
föstudagur 10. nóvember kl. 20.00
Jón Gunnarsson
Kraftmikinn mann á þing!
Það er mikilvægt að fólk með fjölbreytta reynslu taki sæti á Alþingi. Bakgrunnur Jóns Gunnarssonar er úr atvinnullfinu og hann hefur einnig verið í forystu
Slysavarnafélagsins Landsbjargar um árabil. (störfum sínum hefur Jón gegnt ábyrgðarstöðum þar sem oft hefur þurft að taka skjótar og fumlausar ákvarðanir.
Við teljum mikilvægt að fá kraftmikinn mann á þing. Tryggjum Jóni 4. sætið I prófkjöri Sjálfstæðismanna I Suðvesturkjördæmi laugardaginn 11. nóvember 2006.
Verið alltaf velkomin á kosningarskrifstofuna Bæjarlind 14, Kópavogi.
Þingmenn höf-
uðborgarsvæð-
isins þurfa að
beitaséraf
hörku til að
tryggja úrbætur
Bryndís Haraldsdóttir
Úrbóta þörf í
samgöngum
Samgöngumál eru okkur íbúum
höfuðborgarsvæðisins ofarlega í
huga. Hér eru umferðarhnútar tíðir
og allt of langan tíma tekur að kom-
ast á milli staða á annatíma. Upp-
bygging vegamannvirkja á höfuð-
borgarsvæðinu er í engu samræmi
við þá gríðarlegu íbúafjölgun sem
hefur átt sér stað á síðustu árum.
Úrbóta er þörf og bættar samgöngur
á höfuðborgarsvæðinu eiga að vera
í forgangi. Vegakerfið er bæði á
höndum ríkis og sveitarfélaga. Því
er mjög mikilvægt að sveitarstjórnir
á höfuðborgarsvæðinu sameinist
um að bæta samgöngur hér. En auk
þess þurfa þingmenn höfuðborg-
arsvæðisins að beita sér af hörku
til að tryggja úrbætur. Algilt er
að þingmenn landsbyggðarinnar
standi saman hvar í flokki sem þeir
eru þegar kemur að útdeilingu fjár-
muna í samgöngur.
Fjárlög næsta árs gera ráð fyrir
aukningu á fé til samgöngumála
og það sama gera áætlanir fyrir
næstu ár. Mikilvægt er að þessum
fjármunum sé skipt af sanngirni
og í samræmi við hvaðan tekjurnar
koma. Á höfuðborgarsvæðinu búa
rúmlega 6o prósent landsmanna en
skipting fjármagns til samgöngu-
mála er í engu samræmi við íbúa-
hlutfall. Samgönguráðuneytið er nú
að leggja lokahönd á endurskoðun
samgönguáætlunar og brýnt er að
þar séu samgöngubætur á höfuð-
borgarsvæðinu ofarlega á blaði.
Höfundur er varaþingmaður Suðvest-
urkjördæmis og gefur kost á sér í 4.-5.
sæti (prófkjöri Sjálfstæðisflokksins sem
fram fer 11. nóvember næstkomandi.
Jón Gunnarsson
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Bjarni Benediktsson
Gunnar Birgisson
Opinn fundur verður á kosningaskrifstofu Jóns Gunnarssonar, Bæjarlind 14 Kópavogi, í kvöld kl. 20:00.
Gestir verða þau Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra, Bjarni Benediktsson alþingismaður
og Gunnar Birgisson bæjarstjóri. Á fundinum munu frambjóðendur spjalla um stefnumál sín við fundargesti.
Léttar veitingar í boði. Allir eru velkomnir.