blaðið - 10.11.2006, Blaðsíða 31
blaðið
FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2006 31
m m m m HVAÐ FINNST ÞÉR?
§ dlb Er þetta ekki stórsigur
■ UIK folk@bladid.net fyrir íslenska pabba? „Jú, og þetta undirstrikar vaxandi skilning á L
föðurhlutverkinu í samfélaginu." á
Gísli Gíslason, formaður Félags ábyrgrafeðra
Um þessar mundir eru Barbapabbabækurnar loksins fáanlegar aftur á
íslensku og hafa þær aldrei verið vinsælli en einmitt nú. Á sunnudaginn
verður einnig haldið í fyrsta sinn upp á feðradaginn á fslandi.
HEYRST HEFUR...
Staðfestar fregnir herma að
Svanhildur Hólm muni
prýða forsíðu næsta tölublaðs
fsafoldar. Margir
hafa beðið þess
með óþreyju að
fá að líta dóttur
fréttaparsins,
Svanhildar og
Loga, augum
og sú bið er senn á enda
með umfjöllun
ísafoldar. Reynir
Traustason rit-
stjóri hefur áður
flaggað stjörnu
með nýfætt barn
á forsíðu glanstímarits sem
hann ritstýrir en Linda P og
dóttir hennar voru á forsíðu
Mannlífs þegar hann sat þar á
ritstjórastóli.
Mikil umræða hefur verið í
gangi að undanförnu um
símhringingar og SMS-skeyti
frá pólitíkusum í próf-
kjörslag og þeir
sem merktir
eru með x í
símaskránni
hafa meira að
segja ekki sloppið
við slíkar upphringingar.
Margir þeirra sem sent hafa
slík skilaboð og staðið fyrir
símhringingum eru sjálfir
merktir með ónáðið ekki-merki
í skránni. Það er víst ekki sama
hvað verið er að selja þegar
hringt er í fólk.
Miklar vangaveltur voru um
það síðsumars hvort Egilf
Helgason kæmi aftur á Stöð 2 í
vetur með þátt sinn
Silfur Egils. Egill
mætti aftur, eins
og allir vita, en nú
segir Steingrímur
Sævarr Ólafsson á
bloggsíðu sinni að Égill sé fjúk-
andi illur út í yfirmenn á Stöð 2
vegna nýs þáttar um pólitik og
hyggist hætta. Við spyrjum eins
og bloggheimur - er þetta rétt?
- og kosningar framundan!
Ólöf Rós Káradóttir er verkfræðingur sem
sérhæfir sig í líkanagerð með áherslu á
straumfræði. Hún hefur unniö að likani sem
reiknar sjávarföll í kringum Island.
Rannsakar sjávarföllin
Ólöf Rós Káradóttir er verkfræð-
ingur og starfar á Verkfræðistofu
Sigurðar Thoroddsen. Stofan býður
upp á verkfræðiráðgjöf á ýmsum
sviðum en Ólöf sérhæfir sig ekki í
hefðbundinni ráðgjöf eins og við
byggingu mannvirkja heldur fæst
hún við reiknilíkön í straumfræði.
Ólöf hefur undanfarin 12 ár unnið
að þróun líkans sem reiknar sjávar-
föll og sjávarfallastrauma í Norður-
Atlantshafi ásamt Gunnari Guðna
Tómassyni.
„Líkanið er unnið fyrir Siglinga-
stofnun þar sem það er notað á
hverjum degi til að spá fyrir um
sjávarföll í kringum landið og niður-
stöður eru birtar á heimasíðu stofn-
unarinnar. Margir sjófarendur nota
þessar upplýsingar frá stofnuninni
og stundum er líkanið notað við
hönnun mannvirkja við sjó.”
Líkanið segir til um hver sjávar-
hæðin og straumarnir eru alls staðar
í Norður-Atlantshafi á öllum tímum.
Það eru ýmsir þættir sem teknir eru
inn í líkanið, afstaða jarðar, sólar
og tungls ræður sjávarföllum, en
fleiri hlutir hafa áhrif eins og lögun
sjávarbotns og strandlína. Einnig er
reiknað með veðri, en vindur og loft-
þrýstingur hafa áhrif á sjávarhæð.
„Við sjáum í líkaninu hvernig
hæðin breytist milli flóðs og fjöru.
Við höfum líka notað líkanið til
að búa til ýmis smærri líkön sem
sýna til dæmis ferðalag olíuflekks
eftir ímyndaðan olíuleka og skólp-
mengun við strendur fslands,” segir
Ólöf.
Ólöf lærði umhverfis- og bygging-
arverkfræði i Háskóla fslands og að
námi loknu vann hún á verkfræði-
stofu VST á Akureyri. Þaðan fór hún
til Seattle í Bandaríkjunum og klár-
aði meistaranám í verkfræði með
áherslu á vatna- og straumfræði auk
þess sem hún tók meistaragráðu i
hagnýtri stærðfræði frá University
ofWashington.
„Likanið er í stöðugri þróun og
býður upp á endalausa möguleika
til að stækka og byggja við. Núna
erum við til dæmis að sækja um
styrki í samvinnu við tvo há-
skóla, Siglingastofnun, Hafrann-
sóknastofnunina o.fl. til að nota
líkanið til að staðsetja þorsk eftir
sjávarföllum. Þá eru sett tæki í
maga þorska sem mæla þrýsting
í umhverfi þeirra, en þrýstingur-
inn breytist eftir því hvernig sjáv-
arföllin eru. Þegar þorskurinn er
síðan veiddur er hægt að kortleggja
ferðir hans í sjónum þar sem við
þekkjum sjávarföllin i kringum
landið. Þetta er mjög praktískt
verkefni og vonandi verður það að
veruleika," segir Ólöf og bætir við
að það séu endalausir möguleikar í
notkun á líkaninu.
„Þetta er mjög skemmtileg
vinna og mjög fjölbreytt og það er
spennandi að sjá hvert framhaldið
verður.
SU DOKU tainaþraut
Lausn síðustu gátu:
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum
frá 1-9 lárétt og lóðrétt (reitina, þannig
að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða
lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur
aðeins nota einu sinni innan hvers níu
reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út
frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins:
i 7 5 4 8
8 2 1 4
5 2 7
4 1 9
6 3
5 1 2 3 7 6
5 7
7 3 9 8
8 1
4 8 7 3 6 2 9 1 5
9 5 1 8 7 4 2 3 6
6 2 3 9 5 1 4 7 8
7 9 6 4 2 8 1 5 3
8 1 2 7 3 5 6 9 4
3 4 5 1 9 6 7 8 2
5 7 4 2 1 3 8 6 9
1 6 8 5 4 9 3 2 7
2 3 9 6 8 7 5 4 1
eftir Jim Unger
Pabbi setti lím í tannglasið hennar.
12-27
ejim Unger/dist. by United Media, 2001
Á förnum vegi
Ertu farin/n að
kaupa jólagjafir?
Anna Eir Guðfinnudóttir, nemi
Nei, og ég er ekki einu sinni far-
in að hugsa um það.
■
Hörður Óskarsson,
fjármálastjóri
Nei, konan gerir það.
María Pálmadóttir, kennari
Já, ég er aðeins byrjuð.
Þórarinn Arnar Sigurðsson,
kokkur
Nei, ég er ennþá að kaupa
afmælisgjafir."
K
Ólöf Ingvadóttir, einstæð móðir
Nei, en ég hugsa að ég fari að
byrja mjög fljótlega.