blaðið - 10.11.2006, Qupperneq 39
blaðið
FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2006 39
Engir prjónar
Það er ekki nauðsynlegt að borða
sushi með prjónum og engar
reglur um það. (Japan er sushi
oft borðað með fingrunum.
matur
Ómissandi
Bambusmottur eru eina áhaldið sem nauðsynlegt er að eiga ef gera á sushi.
Motturnar eru notaðar þegar gerðar eru sushi-rúllur og þá er innihaldið og
hrísgrjón ásamt þaranum lagt á motturnar og þeim síðan rúllað upp og inni-
haldið þjappað þannig saman svo auðvelt er að skera rúllurnar í bita.
Grænt te með sushi
Með sushi er gott að drekka
bjór, pilsner eða gott hvít-
vín. Unni finnst líka gott
að drekka grænt te
og sake með sushi.
Hún segir að það
sé eitthvert bragð
í grænu tei sem
passi mjög vel
með sushi.
Stutt og kringlótt
Hrisgrjónapottur einfaldar sushi-
gerðina um helming af því það er
mikið mál að ná hrísgrjónum góðum.
Sushi-hrísgrjón eru stutt og kringlótt.
Sumir setja kombuþara með í pottinn en
það er ekki nauðsynlegt. Hrísgrjónin eru
síðan krydduð með hrísgrjónaediki, sake
og teskeið af sykri og salti.
í ekta sushi-eldhúsum í Japan hefur einn
kokkur það hlutverk að kæla hrísgrjónin með
blævæng á meðan annar veltir þeim á trébakka
og setur dressinguna yfir.
Mistress
Yellowtail
Nigri-sushi með silungi
og mangói
Leiðbeiningar
Sjóðið hrísgrjónin þangað til
þau eru örlítið klesst. Best er
að nota sushi-grjón, þau eru
sterkjumeiri en venjuleg hrís-
grjón og auðveldara að vinna
með þau. Þegar grjónin eru
soðin, dreifið þeim á fat eða
bakka, hellið yfir blöndu sem
samanstendur af sushi-vínedik-
inu, salti og sykri á hnífsoddi og
teskeið eða tveim af sake ef vill
og dreifið blöndunni varlega en
vandlega í gegnum grjónin með
trésleif.
Þegar grjónin hafa helst náð her-
bergishita (fyrr ef maður er mjög
óþolinmóður) takið þá sem
svarar kúfaðri matskeið af
grjónum í lófann, mótið úr
grjónunum án þess að klessa
þau bita sem er í laginu eins og
þumalfingur. Bitinn á að vera
kúptur öðrum megin en flatur
hinum megin.
Gott er að hafa við höndina skál
með volgu vatni til að skola fing-
urna, vilji grjónin loða við þá.
Smyrjið örlitlu wasabi ofan á bit-
ann, leggið silunginn þar ofan
á þannig að hann falli þétt að
grjónunum. Leggið þar næst tvo
mangóstrimla ofan á silunginn,
þannig að þeir liggi frá miðju
bitans og vel út fyrir hann.
Festið þá með því að bregða
utan um bitann breiðu nori-belti.
Nori-ið límist saman utan um
bitann væti maður endana með
vatnsblautum fingrum.
Berið fram góða sojasósu í
litlum skálum með súrsuðum
engifer og extra wasabi, mótað í
litlar kúlur. Ef þið hafið tíma fyrir
svoleiðis föndur er gaman að
setja munstur í wasabi-ið með
beittum hníf eða jafnvel forma
það eins og laufblöð. Þetta
magn á að henta sem forréttur
fyrir 4.
Hráefni:
200 g silungur skorinn í þunnar
sneiðar, nægilega stórar til að
þekja botninn á súpuskeið. Ég
mæli með því að verslað sé í
Fylgifiskum, fiskurinn þaðan
hefur mér þótt ferskastur og
bestur í sushi.
Poki af þurrkuðu mangói eða
eitt stykki vel þroskaður man-
góávöxtur. Skorið eða klippt í
þunna strimla. Þurrkaða man-
góið fæst í Sælkerabúðinni
Suðurlandsbraut.
■ 200'g sushi-hrísgrjón
■ 25 ml sushi-vínedik
■ Poki af nori-þarablöðum
■ Wasabi
■ Sojasósa og súrsaður engifer
til að bera fram með.
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN HF.
HLUTAFJÁRÚTBOÐ 10.-15. NÓVEMBER 2006
Fjárhæð útboðs: 6.000.000.000 kr.
Hlutafjárútboð Tryggingamiðstöðvarinnar hf., kt. 660269-2079, Aðalstræti 6, 101 Reykjavik.
FJÁRHÆÐ ÚTBOÐS
Á hluthafafundi Tryggingamiðstöðvarinnar hf. þann 26. september sl. var samþykkt að veita stjórn félagsins heimild til að hækka
hlutafé I félaginu um allt að 186.479.234 hluti. Stjórn félagsins hefur ákveðið að hækka hlutafé um 157.894.737 hluti sem nemur
16,9% aukningu hlutafjár. Heildarhlutir eftir aukninguna verða 1.090.290.905. Hlutirnir eru ( sama flokki og þegar útgefnir hlutir.
Hver hlutur er ein króna að nafnverði.
Fyrirtækjaráðgjöf Glitnis banka hf. hefur umsjón með útboðinu og hefur sölutryggt sölu allra hluta. Hluthöfum er boðið að kaupa nýja
hluti í hlutfalli við hlutafjáreign sfna. Verð í útboðinu verður 38 krónur á hlut.
TILGANGUR ÚTB0ÐS
Tilgangur útboðsins er að styrkja eiginfjárstöðu Tryggingamiðstöðvarinnar hf. vegna kaupa á hlutum í NEMI Forsikring ASA.
FORGANGSRÉTTARÚTBOÐ - FYRIRKOMULAG OG SKILMÁLAR
157.894.737 hlutir eru boðnir hluthöfum Tryggingamiðstöðvarinnar hf. í réttu hlutfalli við hlutafjáreign eins og hún var skráð í
hlutaskrá félagsins í lok viðskiptadags þann 1. nóvember 2006.
Forgangsréttarútboðið stendur frá 10. nóvember kl. 10.00 til 13. nóvember kl. 19.00.
Áskriftum hluthafa ber að skila með rafrænum hætti á sérstöku áskriftarformi á vef Glitnis, www.glitnir.is. Kennitala og lykilorð sem
send voru til hluthafa 2. nóvember eru nauðsynlegtil að geta skráð áskrift. Rafræn staðfesting er skilyrði fyrir gildri áskrift. Þeir hluthafar
sem ekki hafa aðgang að Internetinu geta hringt f Þjónustuver Glitnis í sfma 440 4000 milli kl. 09.00 og 19.00 virka daga eða farið
í næsta útibú Glitnis til að skrá áskrift sina. Nauðsynlegt er að hafa bréf þetta meðferöis til að skráning geti farið fram með réttum
hætti. Þeir sem hringja inn til að skrá áskrift sfna fá senda staðfestingu á áskrift með tölvupósti eða pósti ef hluthafi hefur ekki
netfang. Ekki verður tekið við áskriftum með öðrum hætti en hér hefur verið lýst.
Hluthafar geta framselt forgangsrétt sinn f útboðinu að nokkru eða öllu leyti. Réttur til umframáskriftar er ekki framseljanlegur.
Hluthöfum er heimilt að skrá sig fyrir fleiri eða færri hlutum en þeir eiga hlutfallslegan rétt til. Nýti einhverjir hluthafar ekki rétt sinn
að fullu, skiptast þeir hlutir sem eftir standa á milli hluthafa sem hafa skráð sig fyrir hærri fjárhæð í hlutfalli við hlutafjáreign
samkvæmt hlutaskrá í lok dags þann 1. nóvember 2006.
ALMENNT ÚTBOÐ - FYRIRKOMULAG OG SKILMÁLAR
Seljist ekki allir hiutir f forgangsréttarútboðinu munu þeir hlutir sem eftir standa verða boðnir f almennu útboði að loknu áskriftartímabili.
Lágmarksáskrift (almenna útboöinu er 5.000.000 kr. að markaðsvirði. Umsjónaraðili fyrir hönd útgefanda hefur heimild til að velja eða
hafna áskriftum að eigin vild. Glitnir áskilur sér rétt til að hætta við almenna útboðið ef 95% eða meira af nýjum hlutum verða seldir f
forgangsréttarútboðinu.
Almenna útboðið stendur frá 14. nóvember kl. 10.00 til 15. nóvember kl. 19.00.
Áskriftum ber að skila með rafrænum hætti á sérstöku áskriftarformi á vef Glitnis, www.glitnir.is. Rafræn staðfesting er skilyrði fyrir
gildri áskrift.
NIÐURSTAÐA ÚTBOÐS
Niðurstaða sölu f almenna útboðinu verður tilkynnt Kauphöll Islands þegar sölu lýkur. Þátttakendur geta, frá og með 17. nóvember,
nálgast upplýsingar um úthlutun ( útboðinu með sama hætti og skráning fór fram.
GREIÐSLA
Áskrift i útboðinu er skuldbindandi. Gjalddagi greiðsluseðla vegna hlutafjárkaupa er þriðjudagurinn 28. nóvember 2006. Berist
greiðsla ekki tímanlega má innheimta skuldina á þann veg sem lög heimila. í stað þess að grípa til innheimtuaðgerða hefur bankinn
einhliða heimild til að fella ógreiddar áskriftir niður og ráðstafa þeim til þriðja aðila.
AFHENDING HLUTA
Eigi síðar en 30. nóvember verða hlutirnir gefnir út rafrænt hjá Verðbréfaskráningu íslands og afhentir til hluthafa.
SKJÖL VARÐANDI SKRÁNINGUNA
Lýsing verður gefin út 10. nóvember á ensku og hana má nálgast í fréttakerfi
Kauphallar íslands, news.icex.is, og á heimasíðu Glitnis, www.glitnir.is.
Einnig er hægt að óska eftir útprentuðu eintaki hjá umsjónaraðila.
Glitnir banki hf. - Fyrirtækjaráðgjöf, Kirkjusandi, 155 Reykjavík, tmutbod2006@glitnir.is.
Reykjavfk, 10. nóvember Glitnir banki hf.
GLITNIR